Fréttir

true

Bærinn eignast vélaskemmu að fullu

Á fundi bæjarstjórnar Akraneskaupstaðar í síðustu viku voru staðfest drög að kaupsamningi bæjarins á 35,58% eignarhluta Golfklúbbsins Leynis í vélageymslu á starfssvæði klúbbins. Skemma þessi var byggð árið 2013 og átti bærinn fyrir 64,42% hlut í henni og eignast hana því að fullu. Kaupverð á eignarhlutnum er 38,4 milljónir króna, en fasteignasalan Valfell hafði verið…Lesa meira

true

Bíll valt ofan í skurð

Ökumaður missti stjórn á bifreið sinni á Akrafjallsvegi með þeim afleiðingum að fór út af veginum, valt og endaði á hvolfi ofan í skurði. Slysið varð til móts við Lönguása laust fyrir klukkan tíu í gærkvöldi. Tveir voru í bílnum þegar slysið varð. Við fyrstu athugun virtust meiðsli þeirra ekki hafa verið alvarleg, að sögn…Lesa meira

true

West Side var í síðustu viku

Íþróttakeppnin West Side fór fram í Ólafsvík á fimmtudaginn, 11. október. West Side er stærsti viðburður framhaldsskólanna á Vesturlandi; Fjölbrautaskóla Vesturlands, Fjölbrautaskóla Snæfellinga og Menntaskóla Borgarfjarðar. Að þessu sinni var Nemendafélag FSN gestgjafi keppninnar, sem haldin var í íþróttahúsi Snæfellsbæjar í Ólafsvík. Þar öttu framhaldsskólanemar kappi í Gettu betur áður en íþróttakeppni hófst þar sem…Lesa meira

true

Vökudagar hefjast í næstu viku

Lista- og menningarhátíðin Vökudagar hefst á Akranesi fimmtudaginn 25. október og stendur fram á sunnudaginn 4. nóvember. Um er að ræða árlegan viðburð sem orðinn er fastur liður í menningarlífinu á Akranesi. Að sögn Sveins Arnars Sæmundssonar, eins skipuleggjanda Vökudaga, hefur undirbúningur fyrir hátíðina gengið mjög vel í ár. „Dagskráin er orðin mjög myndarleg og…Lesa meira

true

Dans er allra meina bót

Í byrjun október var Jón Pétur Úlfljótsson danskennari í heimsókn í Grunnskóla Snæfellsbæjar norðan Fróðárheiðar. Hann ásamt V. Lilju Stefánsdóttur kenndu nemendum grunnskólans dans. Lagt var upp með að efla hópana á mið- og unglingastigi. Nemendum var ýmist kennt í hverjum bekk fyrir sig eða skólastigunum saman. Gekk þetta vel og stóðu nemendur sig með…Lesa meira

true

Haustlitafundur

Nú þegar tíu dagar eru í fyrsta vetrardag eru sífellt fleiri lauf farin að yfirgefa uppeldisstöðvar sínar og svífa til jarðar. Þar jarðgerast þau smám saman og mynda næringu fyrir það líf sem kviknar með hækkandi sól. Þessa litríku haustlitamynd tók Áslaug Þorvaldsdóttir í Borgarnesi af breiðu laufblaða í Skallagrímsgarði.Lesa meira

true

Hlaut tónlistaruppeldi með tvinnakeflum og flöskum með vatni

Skagakonan og söngfuglinn Jónína Björg Magnúsdóttir ætlar að standa fyrir blústónleikum á Vökudögum sem hefjast á Akranesi í næstu viku. Tónleikarnir fara fram föstudagskvöldið 26. október klukkan 21 við Kirkjubraut 8 á Akranesi. Nína hefur verið að syngja eins lengi og hún man eftir sér og segir blaðamanni að hún hafi fengið alveg einstakt tónlistaruppeldi.…Lesa meira

true

Eigandinn vitjaði skútunar sem stolið var um helgina

Eigandi frönsku skútunnar Inook Lorient sem stolið var frá Ísafirði aðfararnótt sunnudags kom til landsins í gærkvöldi. Hélt hann rakleiðis vestur á Snæfellsnes í morgun til að kanna ástand skútunnar sem liggur nú í Rifshöfn. „Ég er í áfalli yfir að skútunni hafi verið stolið,“ sagði eigandinn en kveðst þó þakklátur fyrir að fá hana…Lesa meira

true

Siglt um Norður-Íshafið með hvalkjöt til Japans

Siglt var með um 1.500 tonn af hvalkjöti úr nýliðinni hvalveiðivertíð með frystiskipi frá Hafnarfirði áleiðis til Japans síðastliðinn laugardag. Skipinu verður siglt um Norður-Íshafið til Japans. Þegar sú siglingarleið er valin er venju samkvæmt siglt upp með strönd Noregs, tekin olía í Noregi og farið norður fyrir Rússland um Norður-Íshafið áleiðis til hafnarborgarinnar Osaka.…Lesa meira

true

Smiðjuhelgi var haldin í GBF

Dagana 5. til 6. október var haldin smiðjuhelgi í Grunnskóla Borgarfjarðar, en þær eru fastur liður í starfi skólans. Tilgangur þeirra er að mæta vali unglinganna með öðrum hætti en almennt tíðkast og gefa nemendum kost á að hafa meira um val sitt að segja. Með smiðjuhelgum er nemendum boðið upp á fjölbreyttari valfög en…Lesa meira