
Hafnar eru framkvæmdir við endurgerð Kalmanstorgs á Akranesi, en það er hringtorgið á mótum Esjubrautar, Kalmansbrautar og Akranesvegar. Er torgið í daglegu tali stundum kallað spæleggið. Útbúinn verður nýr göngustígur norðan við Esjubraut og lagfæra á yfirborð götunnar til austurs að Esjutorgi, á mótum Esjubrautar, Innnesvegar og Þjóðbrautar. Samhliða gatnaframkvæmdunum munu Veitur endurnýja hitaveitu, vatnsveitu,…Lesa meira








