Fréttir

true

Grundargata lokuð vegna framkvæmda

Grundargatan í Grundarfirði er lokuð á gatnamótum Borgarbrautar þessa dagana vegna framkvæmda við nýja vatnslögn. Þetta er töluvert rask á umferð enda liggur Grundargatan þvert í gegnum bæinn og er fjölfarnasta akstursleið innan bæjarmarkanna. Reiknað er með að lokunin vari í eina viku en stefnt er á að malbika yfir skurðinn aftur á þriðjudaginn í…Lesa meira

true

HVE í tilraunaverkefni um styttingu vinnutíma

Heilbrigðisstofnun Vesturlands hefur gert samkomulag um þátttöku í tímabundnu tilraunaverkefni um styttingu vinnutíma hjá ríkisstarfsmönnum. Samkomulagið er gert í kjölfar viljayfirlýsingar ríkisstjórnarinnar frá 2015 í tengslum við kjarasamninga ríkisins við aðildarfélög BSRB undir stjórn Elsu Láru Arnardóttir sem er formaður starfshóps sem velferðarráðuneytið skipaði til að vinna að framgangi verkefnisins. Heilbrigðisstofnun Vesturlands skuldbindur sig nú…Lesa meira

true

Reynsluboltar í sveitarstjórnarmálum heiðraðir

Boðið var til sérstaks hátíðarkvöldverðar sl. fimmtudagskvöld á haustþingi Sambands sveitarfélaga á Vesturlandi, sem haldið var á Bifröst á fimmtudag og föstudag. Þar voru heiðraðir reynslumiklir sveitarstjórnarfulltrúar af Vesturlandi; Ása Helgadóttir Hvalfjarðarsveit, Björn Bjarki Þorsteinsson Borgarbyggð, Ingibjörg Pálmadóttir Akraneskaupstað, Kristján Þórðarson Snæfellsbæ og Sturla Þórðarson Stykkishólmsbæ. Öll eiga þau það sammerkt að hafa setið í…Lesa meira

true

Kalla eftir tilnefningum um menningarverðlaun

Hin árlegu menningarverðlaun Akraneskaupstaðar verða afhent á menningarhátíðinni Vökudögum sem haldin verður 25. október til 4. nóvember næstkomandi. Á vef Akraneskaupstaðar er búið að opna fyrir tilnefningar og er hægt að tilnefna til og með 7. október. „Akraneskaupstaður hvetur bæjarbúa til að nýta sér þetta tækifæri til að hafa áhrif á það hver fái menningarverðlaunin…Lesa meira

true

Fjölgun í málum þar sem akstur undir áhrifum á í hlut

Þó enn séu rúmir þrír mánuðir eftir af árinu hafa svipað margir verið teknir fyrir akstur undir áhrifum áfengis og fíknefna í umdæmi lögreglunnar á Vesturlandi og allt síðasta ár. Í yfirliti lögreglu kemur fram að 107 hafa með þessum hætti komist í kast við lögin það sem af er ári, en voru 112 allt…Lesa meira

true

Fyrirmyndadagurinn verður 5. október

Vinnumálastofnun stendur fyrir Fyrirmyndardeginum í fimmta skipti föstudaginn 5. október næstkomandi. Markmið dagsins er sem fyrr að atvinnuleitendur með skerta starfsgetu fái að vera gestastarfsmenn í boði fyrirtækja og stofnana í einn dag eða hluta úr degi. „Þennan dag hafa atvinnuleitendur með skerta starfsgetu fengið tækifæri til að kynna sér ýmiskonar störf og starfsvettvang. Um…Lesa meira

true

Kanna hækkun til lífeyrisþega

Hækkun á viðmiðunartekjum elli- og örorkulífeyrisþega í Snæfellsbæ var til umræðu á síðasta fundi bæjarstjórnar. Bæjarfulltrúar J-listans lögðu fram tillögu þess efnis að tekjumörk elli- og örorkulífeyrisþega í bæjarfélaginu verði hækkuð. Hámarksafsláttur verði hækkaður úr 70 þús. krónum í 100 þús. krónur. Bæjarstjórn samþykkti að láta reikna út kostnað sveitarfélagsins við hækkanir þessar og vísaði…Lesa meira

true

Göngunum skilað hreinum líkt og stássstofu í aðdraganda jólaboðs

Í síðustu viku voru Hvalfjarðargöngin lokuð í fjórar nætur vegna árlegrar hreingerningar og viðhalds mannvirkisins. Venjulega hefur Spölur framkvæmt þessa hreinsun í október en þar sem nú stendur til að afhenda göngin íslenska ríkinu til eignar í lok vikunnar, var verkinu flýtt. Auk hreinsunar var að þessu sinni skipt um blásara í loftinu á einum…Lesa meira

true

Svavar Örn er Norðurlandameistari í klassískum kraftlyftingum

Svavar Örn Sigurðsson úr Kraftlyftingafélagi Akraness varð um helgina Norðurlandameistari unglinga í klassískum kraftlyftingum í -74 kg flokki, en Norðurlandamótið var haldið á Akureyri. Svavar gerði sér lítið fyrir og lyfti 210 kg í hnébeygju, 140 kg í bekkpressu og 222,5 kg í réttstöðulyftu. Samanlagt lyfti Svavar því 572,5 kg og skilaði það honum Norðurlandameistaratitlinum.…Lesa meira

true

Fyrsta heimsókn Jóku kvenna var til Ritari.is

Jókur – félag kvenna í atvinnurekstri á Akranesi og nágrenni var stofnað fyrr á þessu ári. Nafn félagsins er með vísun í tröllskessuna Jóku, en félagið er fyrir konur sem eru stjórnendur eða leiðtogar í sínum fyrirtækjum/stofnunum. Tilgangur félagsins er að skapa tengslanet fyrir konur á eða frá Akranesi og úr nærsveitum, styrkja þær í…Lesa meira