Fréttir

true

Fataverslun Íslendinga jókst hér á landi

Kortavelta Íslendinga í innlendri fataverslun jókst um 13,1% í ágúst síðastliðnum og nam tæpum 2,2 milljörðum í ágúst nú samanborið við rúman 1,9 milljarða í ágúst í fyrra. Í samantekt Rannsóknaseturs verslunarinnar kemur fram að fataverslun hefur einnig vaxið undanfarna mánuði og kortavelta í flokknum aukist um 17% ef tímabilið apríl til ágúst á þessu…Lesa meira

true

Vetrarlegt á fjallvegum

Eftirstöðva lægðar sem snert hefur norðanvert landið undanfarna tvo daga gætir enn, þ.á.m. í færð á vegum. Í tilkynningu frá Vegagerðinni í morgun segir að snjóþekja og éljagangur er á Holtavörðuheiði. Hálkublettir eru á flestum fjallvegum á Vestfjörðum en hálka á Steingrímsfjarðarheiði. Snjóþekja er á Strandarvegi. Hálkublettir eru á Vatnsskarði, Öxnadalsheiði, í Héðinsfiðri, Ólafsfjarðarmúla og…Lesa meira

true

Borgfirskir briddsarar hefja vetrarstarfið

Næstkomandi mánudagskvöld hyggjast félagar í Briddsfélagi Borgarfjarðar setjast við spilaborðið eftir sumarfríið. “Við hefjum leik á mánudaginn kemur, stundvíslega klukkan 20. Það eru allir spilarar velkomnir til okkur, en við munum slípa saman mannskapinn með stökum tvímenningskvöldum til að byrja með,” sagði Ingimundur Jónsson fjölmiðlatengill BB í samtali við Skessuhorn. Sem fyrr verður spilað í…Lesa meira

true

Landsbjörg í landsátaki – söfnunarþáttur í sjónvarpi í kvöld

Slysavarnafélagið Landsbjörg stendur um þessar mundir fyrir kynningar- og fjáröflunarátaki undir yfirskriftinni: „Þú getur alltaf treyst á okkur – nú treystum við á þig.“ Hápunktur átaksins er söfnunarþáttur í opinni dagskrá á Stöð 2 næstkomandi föstudag. Útsendingin hefst klukkan 19.25 og stendur fram á kvöldið. Markmiðið með þættinum er að varpa ljósi á fjölbreytt og…Lesa meira

true

Ólafsvíkingar bæta aðstöðu til fótboltaiðkunar

Fyrr í sumar var nýr gervigrasvöllur í Ólafsvík tekinn í notkun og er völlurinn með þeim betri á landinu. Þar spilar Víkingur Ólafsvík sína heimaleiki í knattspyrnu. Nú er verið að bæta aðstöðu til knattspyrnuiðkunar í bænum enn frekar með byggingu nýs battavallar. Þegar er búið að steypa rammann utan um battavöllinn sjálfan sem staðsettur…Lesa meira

true

Tillögur um lokun fengsælustu miða vestlenskra smábáta

Yrði náðarhögg fyrir smábátaútgerð einkum við Faxaflóa en slæmt fyrir Breiðafjarðarsvæðið   Starfshópur sem þáverandi sjávarútvegsráðherra skipaði fyrir þremur árum og fjalla átti um; „faglega heildarendurskoðun á regluverki varðandi notkun veiðarfæra, veiði- og verndunarsvæða á Íslandsmiðum,“ hefur skilað lokaskýrslu til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Í skipunarbréfi starfshópsins kom fram að ákveðið hafi verið að vinnuhópurinn væri…Lesa meira

true

Yngstur Íslendinga í Meistaradeild Evrópu

Skagamaðurinn Arnór Sigurðsson varð í vikunni yngsti Íslendingurinn til að leika í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu. Arnór kom inn á fyrir CSKA Moskva gegn Viktoria Plzen í gærkvöldi. Arnór er aðeins 19 ára gamall, fæddur árið 1999 og er því tveimur árum yngri en Kolbeinn Sigþórsson var þegar hann lék sinn fyrsta leik í meistaradeildinni…Lesa meira

true

Lögregla gerir ekki athugasemdir við notkun nagladekkja

„Veðurspár gera ráð fyrir frosti og að öllum líkindum hálku, a.m.k. á fjallvegum næstu daga,“ segir í tilkynningu frá Lögreglunni á Vesturlandi. „Lögreglan mun ekki gera athugsemdir þó ökumenn bregðist við með því að setja nagladekk undir bíla sína.“ Þá er það á hreinu.Lesa meira

true

Öryrkjabandalagið segir tíma seinkana og mannréttindabrota úti

Með bréfi síðastliðinn föstudag fór Samband íslenskra sveitarfélaga þess á leit við félags- og jafnréttisráðherra að gildistöku laga um Notendastýrða persónulega þjónustu (NPA) sem taka eiga gildi þann 1. október verði frestað til áramóta. Þessum tillögum hafnar málefnahópur Öryrkjabandalagsins um sjálfstætt líf algerlega. „Tími seinkana og mannréttindabrota er liðinn,“ segir í tilkynningu frá ÖBÍ. „Með…Lesa meira

true

Námskeið um tölvufíkn fellur niður

Námskeið sem fyrirhugað var í kvöld í Tónlistarskólanum á Akranesi um skjá- og tölvunotkun barna fellur niður vegna ónógrar þátttöku. Þetta kemur fram í tilkynningu frá námskeiðshöldurum. Fram kom hjá þeim að enn er fyrirhugað að halda sambærilegt námskeið í Grunnskóla Snæfellsbæjar 2. október þar sem foreldrum er boðin ókeypis þátttaka náist nægur fjöldi.Lesa meira