Fréttir

true

Landsbjörg í landsátaki – söfnunarþáttur í sjónvarpi í kvöld

Slysavarnafélagið Landsbjörg stendur um þessar mundir fyrir kynningar- og fjáröflunarátaki undir yfirskriftinni: „Þú getur alltaf treyst á okkur – nú treystum við á þig.“ Hápunktur átaksins er söfnunarþáttur í opinni dagskrá á Stöð 2 næstkomandi föstudag. Útsendingin hefst klukkan 19.25 og stendur fram á kvöldið. Markmiðið með þættinum er að varpa ljósi á fjölbreytt og…Lesa meira

true

Ólafsvíkingar bæta aðstöðu til fótboltaiðkunar

Fyrr í sumar var nýr gervigrasvöllur í Ólafsvík tekinn í notkun og er völlurinn með þeim betri á landinu. Þar spilar Víkingur Ólafsvík sína heimaleiki í knattspyrnu. Nú er verið að bæta aðstöðu til knattspyrnuiðkunar í bænum enn frekar með byggingu nýs battavallar. Þegar er búið að steypa rammann utan um battavöllinn sjálfan sem staðsettur…Lesa meira

true

Tillögur um lokun fengsælustu miða vestlenskra smábáta

Yrði náðarhögg fyrir smábátaútgerð einkum við Faxaflóa en slæmt fyrir Breiðafjarðarsvæðið   Starfshópur sem þáverandi sjávarútvegsráðherra skipaði fyrir þremur árum og fjalla átti um; „faglega heildarendurskoðun á regluverki varðandi notkun veiðarfæra, veiði- og verndunarsvæða á Íslandsmiðum,“ hefur skilað lokaskýrslu til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Í skipunarbréfi starfshópsins kom fram að ákveðið hafi verið að vinnuhópurinn væri…Lesa meira

true

Yngstur Íslendinga í Meistaradeild Evrópu

Skagamaðurinn Arnór Sigurðsson varð í vikunni yngsti Íslendingurinn til að leika í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu. Arnór kom inn á fyrir CSKA Moskva gegn Viktoria Plzen í gærkvöldi. Arnór er aðeins 19 ára gamall, fæddur árið 1999 og er því tveimur árum yngri en Kolbeinn Sigþórsson var þegar hann lék sinn fyrsta leik í meistaradeildinni…Lesa meira

true

Lögregla gerir ekki athugasemdir við notkun nagladekkja

„Veðurspár gera ráð fyrir frosti og að öllum líkindum hálku, a.m.k. á fjallvegum næstu daga,“ segir í tilkynningu frá Lögreglunni á Vesturlandi. „Lögreglan mun ekki gera athugsemdir þó ökumenn bregðist við með því að setja nagladekk undir bíla sína.“ Þá er það á hreinu.Lesa meira

true

Öryrkjabandalagið segir tíma seinkana og mannréttindabrota úti

Með bréfi síðastliðinn föstudag fór Samband íslenskra sveitarfélaga þess á leit við félags- og jafnréttisráðherra að gildistöku laga um Notendastýrða persónulega þjónustu (NPA) sem taka eiga gildi þann 1. október verði frestað til áramóta. Þessum tillögum hafnar málefnahópur Öryrkjabandalagsins um sjálfstætt líf algerlega. „Tími seinkana og mannréttindabrota er liðinn,“ segir í tilkynningu frá ÖBÍ. „Með…Lesa meira

true

Námskeið um tölvufíkn fellur niður

Námskeið sem fyrirhugað var í kvöld í Tónlistarskólanum á Akranesi um skjá- og tölvunotkun barna fellur niður vegna ónógrar þátttöku. Þetta kemur fram í tilkynningu frá námskeiðshöldurum. Fram kom hjá þeim að enn er fyrirhugað að halda sambærilegt námskeið í Grunnskóla Snæfellsbæjar 2. október þar sem foreldrum er boðin ókeypis þátttaka náist nægur fjöldi.Lesa meira

true

Skora á VÍS að halda áfram – ella hverfa í viðskipti annað

„Við hjá HP pípulögnum ehf. skorum hér með á VÍS að endurskoða ákvörðun sína um að loka svæðisskrifstofunum á Vesturlandi. Að öðrum kosti munum við hætta öllum viðskiptum við fyrirtækið frá og með næstu áramótum.  Við hvetjum hér með einstaklinga og fyrirtæki hér á svæðinu til að gera slíkt hið sama. Við viljum halda störfum…Lesa meira

true

VÍS lokar umboðsskrifstofum sínum á Vesturlandi

Stjórn tryggingafélagsins VÍS ásamt stjórnendum fyrirtækisins hafa í sameiningu mótað þá framtíðarsýn fyrir VÍS að félagið verði stafrænt þjónustufyrirtæki. Í því felst að félagið hyggst loka fjölda þjónustustaða á landsbyggðinni strax um næstu mánaðamót og skerða þjónustu. Svokölluð tryggingaumboð VÍS sem og þjónustuaðilum á fjölmörgum smærri stöðum, svo sem í Ólafsvík, Grundarfirði og Stykkishólmi, hætta…Lesa meira

true

Haustlægðin gerir smalamennskur erfiðari

Bændur eru víða í síðari leitum nú þegar fyrsta alvöru haustlægðin gengur yfir allt norðanvert landið. Verst er veðrið á Vestfjörðum og Norðurlandi en angar af lægðinni teigja sig þó allt suður í Borgarfjörð. Þórhildur Þorsteinsdóttir bóndi á Brekku í Norðurárdal var í morgun í smalamennsku inn á Bjarnadal, sem gengur inn af ofanverðum Norðurárdal…Lesa meira