Fréttir

true

Stefnt að opnun nýs 61 herbergis hótels í Borgarfirði vorið 2019

Eigendaskipti hafa orðið að Hótel Varmalandi í Borgarfirði. Umfangsmiklar breytingar á húsi gamla Húsmæðraskólans hafa staðið yfir í nokkur ár, en að þeim stóð Benedikt Kristinsson í Svíþjóð sem meðal annars rekur ferðaskrifstofuna Vulkan Resor þar í landi. Framkvæmdir á Varmalandi stöðvuðust síðasta sumar en þá hafði kostnaður farið umtalsvert fram úr upprunalegri áætlun. Meðal…Lesa meira

true

Konur eru ragari við að koma fram

Systurnar og framakonurnar Eva Laufey Kjaran og Edda Hermannsdætur halda námskeið fyrir konur með yfirheitinu, Hvernig nærðu árangri? Eitt slíkt var í síðustu viku og kíkti tíðindamaður Skessuhorns á það. Námskeiðið var haldið í íþróttahúsinu á Seltjarnarnesi. Þar miðluðu systurnar reynslusögum sínum og gáfu ráð til kvenna í atvinnulífinu, meðal annars konum sem starfa í…Lesa meira

true

Koma á frístundastyrk í Snæfellsbæ

Bæjarstjórn Snæfellsbæjar samþykkti á síðasta fundi sínum að vísa frístundastyrk til fjárhagsáætlunargerðar fyrir árið 2019. J-listinn hafði lagt fram tillögu þess efnis að núverandi styrk Snæfellsbæjar til Umf. Víkings og Umf. Reynis yrði breytt á þá leið að hann rynni til foreldra barna sem stunduðu íþróttir. Núverandi styrkur til íþróttaiðkunar barna er greiddur til ungmennafélaganna…Lesa meira

true

EM Orka áformar að reisa 35 vindmyllur í landi Garpsdals

Eigendur orkufyrirtækisins EM Orku hf. hyggjast reisa vindmyllugarð í landi Garpsdals við Gilsfjörð í Reykhólahreppi. Gangi áform fyrirtækisins eftir munu rísa 35 vindmyllur á 3,3 ferkílómetra svæði á Garpsdalsfjalli, í nálægt 500 metra hæð yfir sjávarmáli. Áætlaður kostnaður við verkefnið er 16 milljarðar króna. Samningar hafa náðst við landeigendur, að því er fram kemur á…Lesa meira

true

Dagvistun barna á tímamótum

Dagvistunarmál á Akranesi hafa verið mikið til umræðu síðustu misseri. Breytingar á inntökualdri leikskólabarna og inntöku í leikskóla var breytt um síðustu áramót. Börn allt niður í fimmtán mánaða voru tekin inn á leikskóla í haust. Foreldrar, börn, starfsfólk á leikskólum og dagforeldrar finna fyrir breytingunum. Skessuhorn settist niður með Valgerði Janusdóttur, sviðsstjóra skóla- og…Lesa meira

true

Starfið leggst vel í nýjan sveitarstjóra Reykhólahrepps

Tryggvi Harðarson var í síðustu viku ráðinn sveitarstjóri Reykhólahrepps. Hann tekur við af Ingibjörgu Birnu Erlingsdóttur, sem greindi frá því í vor að hún gæfi ekki kost á sér til starfsins áfram. Skessuhorn sló á þráðinn til Tryggva eftir hádegi á mánudag, sem var einmitt fyrsti dagurinn hans í nýju vinnunni. „Það er fyrsti dagurinn…Lesa meira

true

Viðurkenningar veittar á lokahófi yngri flokka ÍA

Lokahóf yngri flokka knattspyrnufélags ÍA var haldið í Akraneshöllinni um helgina. Hófið gekk afar vel fyrir sig og var góð stemning meðal iðkenda og foreldara þeirra, að því er fram kemur á heimasíðu KFÍA. Að venju voru engin einstaklingsverðlaun veitt í 6. og 7. flokki karla og kvenna heldur fengu allir iðkendur viðurkenningarskjal fyrir góða…Lesa meira

true

Sjóböð eru nýjasta sportið í Borgarnesi

Það hefur færst í vöxt að íbúar í Borgarnesi stingi sér til sunds í sjónum við strandlengju bæjarins. Nú hefur Sjóbaðsfélagið „Seamen“ Borgarbyggðar verið sett á laggirnar til að ýta undir þetta nýjasta sport í bæjarfélaginu og er félagið strax komin með um 20 virka „Seamen“ félaga. „Þetta er búin að vera í umræðu í…Lesa meira

true

Skelin boðar komu haustsins

Einn af boðberum haustsins í Stykkishólmi er upphaf skelfiskveiða, en þær hefjast venjulega nálægt mánaðamótum ágúst og september. Sumarliði Ásgeirsson, ljósmyndari og tíðindamaður Skessuhorns í Stykkishólmi, slóst í för með Sigurði Þórarinssyni skipstjóra og áhöfn hans á Leyni SH á mánudaginn og myndaði það sem fyrir augu bar. Sneru Sigurður og áhöfnin á Leyni heim…Lesa meira

true

Fyrirlestur um skjá- og tölvunotkun barna á Akranesi og í Snæfellsbæ

Fyrirlestur um skjá- og tölvunotkun barna verður í Tónlistarskólanum á Akranesi á morgun klukkan 18-20. Námskeiðið er sniðið að foreldrum og öðrum  sem koma að málefnum ungmenna og vilja fæðast um einkenni óheilbrigðrar tölvu- og skjánotkunar þeirra og læra aðferðir til að sporna gegn henni. Enn er hægt að skrá sig á námskeiðið. Námskeiðið kostar…Lesa meira