Fréttir

true

„Stjórnvöld vanbúin að bregðast við, taka og læra af gagnrýni“

„Íslendingar hafa farið sér hægar en nágrannaþjóðirnar í aðgerðum til að tryggja heilindi í opinberum störfum og hér á landi hefur minna tillit verið tekið til tilmæla og leiðbeininga alþjóðlegra stofnana um varnir gegn spillingu en æskilegt hefði verið,“ segir í skýrslu starfshóps um eflingu traust á stjórnmálum. Skýrslunni var nýverið skilað til forsætisráðherra. Að…Lesa meira

true

Kínverjar setja fram sérkröfur sem útiloka kjöt af riðusvæðum

Á síðustu þremur árum hefur verið unnið að gerð samnings um heilbrigðiskröfur og eftirlit með útflutningi lambakjöts frá Íslandi til Kína. Sú vinna hefur verið í höndum ráðuneyta og Matvælastofnunar. Nýlega undirritaði svo Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra samninginn fyrir Íslands hönd. Í honum koma fram ýmsar sérkröfur og skilyrði sem uppfylla þarf varðandi útflutning á…Lesa meira

true

Eiríkur fjallar um þjóðernispopulisma í nýju bók sinni

Dr. Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann á Bifröst, hefur sent frá sér bókina Conspiracy & Populism – The Politics of Misinformation. Hið virta forlag Palgrave Macmillan gefur bókina út á heimsvísu og er hún nú í dreifingu beggja vegna Atlantsála. Conspiracy & Populism er áttunda fræðibók Eiríks en hann hefur einnig sent frá…Lesa meira

true

Viðurkenningar í tengslum við Dag íslenskrar náttúru

Tómas Guðbjartsson og Ólafur Már Björnsson hlutu í dag fjölmiðlaverðlaun umhverfis- og auðlindaráðuneytisins og Sveinn Runólfsson fékk Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti. Verðlaunin voru veitt í tengslum við Dag íslenskrar náttúru sem var í gær. Að venju valdi dómnefnd skipuð fagfólki úr fjölmiðlum handhafa fjölmiðlaverðlaunanna en í henni sátu í ár Ragna Sara Jónsdóttir formaður, Jón…Lesa meira

true

Berglind en ekki Þórður taka við ON

“Ákveðið hefur verið að forstöðumaður fyrirtækjamarkaða ON, Berglind Rán Ólafsdóttir, taki tímabundið við starfi framkvæmdastjóra ON en ekki forstöðumaður tækniþróunar, eins og áður var tilkynnt.” Þetta kemur fram í tilkynningu frá Orku náttúrunnar sem var að berast. Berglind er sameindalíffræðingur með MBA próf frá IESE í Barcelona. Hún kom til starfa hjá Orku náttúrunnar fyrir…Lesa meira

true

Framkvæmdastjóri rekinn fyrir dólgshátt

Bjarna Má Júlíussyni, framkvæmdastjóra Orku náttúrunnar, dótturfélags Orkuveitu Reykjavíkur, var sagt upp störfum í síðustu viku og hefur hann þegar látið af störfum. Brottrekstur hans skýrist af óviðeigandi framkomu hans gagnvart samstarfsfólki, einkum konum. Þórður Ásmundsson hefur verið ráðinn til að gegna starfi framkvæmdastjóra Orku náttúrunnar til bráðabirgða en starfið verður auglýst til umsóknar. Mál…Lesa meira

true

Afleit veðurspá frá miðvikudegi til föstudags

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun vegna lægðar sem mun hafa veruleg áhrif á veðrið síðari hluta vikunnar. Það verður norðan hvassviðri eða stormur með rigningu eða snjókomu norðan- og austanlands. Snemma á miðvikudagsmorgni gengur í norðan 15-23 m/s, en hvassast verður austast á landinu. Með norðanáttinni fylgir úrkoma norðan- og austanlands, frá Vestfjörðum og…Lesa meira

true

Malbikað við vegamót Vesturlandsvegar og Borgarfj.brautar

Í dag, mánudaginn 17. september er stefnt að því að malbika báðar akreinar og gatnamót á Vesturlandsvegi við Borgarfjarðarbraut (sunnan Borgarfjarðarbrúar). Annarri akreininni verður lokað í einu og umferð stýrt í gegnum vinnusvæðið. Búast má við umferðartöfum. Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli klukkan 08.00 og 22.00. „Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar…Lesa meira

true

Skallagrímsmenn lutu í gras gegn Reyni Sandgerði

Eftir að hafa nýlega tryggt sér sæti í þriðju deild á næsta tímabili þá þurfti Skallagrímur að sætta sig við stórt tap gegn Reyni Sandgerði þegar liðin mættust í úrslita viðureign fjórðu deildar á laugardaginn. Leikurinn fór fram á hlutlausum velli í Keflavík. Fyrsta mark kom frá Sandgerðismönnum strax á sjöttu mínútu þegar Magnús Þórir…Lesa meira