Fréttir

true

Hvasst af fjöllum víða á Vesturlandi í dag

Það hvessir í dag og í gildi er gul viðvörun Veðurstofunnar fyrir landshlutann. Einkum verður hvasst í dag vestanlands frá skilum lægðar. Það verður suðaustanátt og hviður allt að 30 m/s á norðanverðu Snæfellsnesi frá hádegi. Einnig verða hviður annað slagið undir Hafnarfjalli frá því klukkan 15. Á þessum svæðum gengur veðrið svo að nýju…Lesa meira

true

Innflytjendur tæpur fimmtungur vinnuafls

Á öðrum ársfjórðungi þessa árs voru að jafnaði 200.798 starfandi á Íslandi á aldrinum 16-74 ára. Starfandi innflytjendur voru að jafnaði 37.388 á öðrum ársfjórðungi eða 18,6% af vinnuafli. Í samantekt Hagstofunnar kemur fram að með skráð lögheimili á Íslandi voru að jafnaði 96,9% vinnuafls. 14,1% erlends vinnuafls er ekki með skráð lögheimili í landinu.Lesa meira

true

„Þrjátíu hektara garður með nokkrum golfbrautum á milli“

Á Hamarsvelli í Borgarnesi hafa orðið töluverðar breytingar á skipulagi golfvallarins sem og rekstri golfklúbbsins og hótelsins. Fyrr í sumar var tekið í notkun nýtt klúbbhús en Golfklúbbur Borgarness og Icelandair Hótel Hamar gerðu samninga um að hótelið sæi um rekstur klúbbhúss GB, það er móttöku kylfinga og veitingasölu. Með þessum breytingum hafa miklar framkvæmdir…Lesa meira

true

Apótekarinn snýr aftur á Akranes

Forsvarsmenn Lyfja og heilsu hyggja á opnun apóteks í verslunarkjarnanum við Dalbraut 1 á Akranesi á næstu misserum. Verður það opnað undir merkjum Apótekarans, en Apótekarinn er hluti af Lyfjum og heilsu. Þetta staðfestir Kjartan Örn Þórðarson, framkvæmdastjóri Lyfja og heilsu, í samtali við Skessuhorn. Hann kveðst þó ekki geta sagt nákvæmlega til um hvenær…Lesa meira

true

Fasteignagjöld lækkuðu á Akranesi

Byggðastofnun hefur nú líkt og undanfarin ár fengið Þjóðskrá Íslands til að reikna út fasteignamat og fasteignagjöld á sömu viðmiðunarfasteigninni á 26 þéttbýlisstöðum á landinu. Fasteignagjöldin eru reiknuð út samkvæmt núgildandi fasteignamati sem tók gildi um síðustu áramót. Viðmiðunareignin er einbýlishús sem er 161,1 m2 að grunnfleti sem stendur á 808 m2 lóð. Fasteignagjöld samanstanda…Lesa meira

true

Borgfirðingar sigruðu í púttkeppni ársins

Lokaviðureign hinnar árlega púttkeppni milli eldri borgara á Akranesi og í Borgarbyggð fór fram á Garðavelli á Akranesi fimmtudaginn 23. ágúst síðastliðinn í blíðskaparveðri. Mótið var þriðja og síðasta mót sumarsins þar sem þess lið eigast við. Keppt var á golfvellinum í Nesi í Reykholtsdal í júní, Hamri í Borgarnesi í júlí og nú endað…Lesa meira

true

Tunnulest fyrir börnin

Tryggvi Konráðsson staðarráðsmaður í Reykholti í Borgarfirði er mikill hagleiksmaður. Meðal annars hefur hann gert upp fjölda gamalla fólks- og jeppabifreiða. Undanfarið hefur hann þó verið í öðru verkefni og smíðað skemmtilega vagna úr tunnum, einskonar tunnulest. Börnin skemmta sér í það minnsta konunglega þegar þau fá að setjast um borð.Lesa meira

true

Náttúruhamfaratrygging Íslands tekin til starfa

Sveitarfélög landsins eiga von á glaðningi á næstu dögum frá Náttúruhamfaratryggingu Íslands (NTÍ), áður Viðlagatryggingu, í tilefni lagabreytinga og nýs nafns stofnunarinnar. Um er að ræða bókina Náttúruvá á Íslandi sem kom út fyrir nokkrum árum á vegum stofnunarinnar og Háskólaútgáfunnar. „Við vorum að ljúka við að pakka og koma í póst rúmlega 70 eintökum…Lesa meira

true

„Hæ, sjómenn íslenskir erum við og björg að landi berum við…“

Þannig er upphaf textans sem Jónas gerði ódauðlegan við lag Jóns Múla bróður síns. Eins og það getur verið þægilegt á vetrum að stunda innivinnu eins og kallað er, þegar snjór og kalsatíð ríkir, getur það að sama skapi tekið á sálartetrið að vera lokaður inni við störf á skrifstofu heilu dagana þegar tíðarfarið er…Lesa meira