
Einn hvalur hefur frá því í morgun synt um í höfninni í Ólafsvík á Snæfellsnesi. Kunnugir telja að hér sé hrefna á ferð sem vafalítið er á höttunum eftir makríl sem mikið er af á þessum slóðum.Lesa meira

Einn hvalur hefur frá því í morgun synt um í höfninni í Ólafsvík á Snæfellsnesi. Kunnugir telja að hér sé hrefna á ferð sem vafalítið er á höttunum eftir makríl sem mikið er af á þessum slóðum.Lesa meira

Landhelgisgæslan var á áttunda tímanum í gærmorgun send til aðstoðar skipverjum á báti sem var olíulaus úti fyrir Akranesi. Áhöfn varðbátsins Óðins fór frá Reykjavík á áttunda tímanum um morguninn. Þegar bátsverjar á Óðni voru komnir á staðinn kom í ljós að stýrisbúnaður bátsins var einnig laskaður. Í kjölfarið var björgunarskip Landsbjargar, Ásgrímur S. Björnsson,…Lesa meira

Kver um kerskni og heimsósóma heitir ný bók eftir Helga Ingólfsson sem bókaútgáfan Sæmundur gefur út. „Hér er að finna vísur og kvæði af ýmsu tagi, einkum gamanmál þar sem skopast er að dægurþrasi líðandi stundar og stjórnmálamenn teknir á beinið, stundum nokkuð stórkarlalega, en inn á milli eru einnig alvarlegri ljóð og stökur. Form…Lesa meira

Á morgun, laugardag, opnar listakonan Steinunn Steinarsdóttir, í samstarfi við Safnahús Borgarfjarðar í Borgarnesi, sýninguna SAGA þar sem ullarmyndverk eftir þá fyrrnefndu verða til sýnis. Ullarmyndverkin snúast um ýmis form sögu, eins og heiti hennar gefur til kynna, og tengist verkefnið Safnahúsinu á ýmsan hátt. Steinunn notast við gamlar ljósmyndir sem hún finnur á ljósmyndasíðu…Lesa meira

Um helgina, laugardag og sunnudag frá klukkan 13-15 báða dagana, mun Fasteignasalan Lögheimili kynna væntanlegar íbúðir við Dalbraut 4 á Akranesi. Kynningin fer fram á Skólabraut 26. Íbúðirnar verða í fyrsta húsinu sem rísa mun á nýjum kjarna miðsvæðis á Akranesi, svokölluðum Dalbrautarreit. Á neðstu hæði í byggingunni verður félagsheimili fyrir eldri borgara á Akranesi.…Lesa meira

Matvælastofnun hefur birt lista yfir skráð fóðurfyrirtæki og bændur sem hyggja á heyútflutning til Noregs. Skráningin er forsenda þess að geta flutt út hey. Samkvæmt lista stofnunarinnar í dag hafa á þriðja hundrað bændur á landinu skráð sig sem heysala. Langflestir eru þeir á norðan- og austanverðu landinu þar sem sprettu- og heyskapartíð var með…Lesa meira

Mikill verðmunur var í flestum tilfellum á matvöru milli verslana í nýrri verðkönnun verðlagseftirlits ASÍ sem gerð var 28. ágúst. Oftast var yfir 40% verðmunur á hæsta og lægsta verði í könnuninni eða í 57 tilfellum af 107 en í 37 tilfellum af 107 var yfir 60% verðmunur á hæsta og lægsta verði. Iceland var…Lesa meira

Lögreglan á Vesturlandi leitar að bifreiðinni DZ-H05 sem er ljósgrá Honda Jazz. Ökumaður bifreiðarinnar tengist máli sem upp kom a Hellissandi milli klukkan 13 og 14 í dag. „Áríðandi er að láta vita í 112 stax ef til bifreiðarinnar sést,“ segir í tilkynningu lögreglu.Lesa meira

Sverrismótið í knattspyrnu verður haldið á Sverrisvelli á Hvanneyri sunnudaginn 2. september og hefjast leikar stundvíslega klukkan 10. Mótið er haldið árlega og er til minningar um Sverri Heiðar Júlíusson knattspyrnuþjálfara og Hvanneyring. Í leikjum Sverrismóts eru fimm leikmenn inná í einu í hvoru liði, en samtímis verður spilað á þremur völlum. Spilaðir verða 2…Lesa meira

Þrátt fyrir töluverða eftirgrennslan hefur ekkert spurst til ferða Skagamannsins Jóhanns Gíslasonar. Síðast sást til Jóhanns á leið niður á strönd á Alicante á Spáni fimmtudaginn 12. júlí í sumar, en hann hafði þá dvalið í nokkra daga ytra og verið í daglegu sambandi við ættingja sína heima á Íslandi. Hann fór utan 8. júlí…Lesa meira