Fréttir

true

Íslandsmeistaramótið í hrútadómum verður á sunnudaginn

Mikið hefur verið um að vera á Sauðfjársetrinu á Ströndum í sumar, margvíslegar uppákomur og viðburðir. Framundan er svo stærsta samkoma ársins; Íslandsmeistaramótið í hrútadómum, sem verður haldið sunnudaginn 19. ágúst og hefst kl. 14:00 í Sævangi við Steingrímsfjörð. Ester Sigfúsdóttir framkvæmdastjóri Sauðfjársetursins segir að undirbúningur fyrir helgina gangi vel: „Það er alltaf góð þátttaka…Lesa meira

true

Samið um byggingu félagslegra íbúða á Akranesi

Skrifað hefur verið undir samning þess efni að byggingfyrirtækið Modulus byggi 33 nýjar leiguíbúðir í þremur húsum við Asparskóga 12, 14 og 16 á Akranesi fyrir Bjarg íbúðafélag. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist í haust og að íbúðum verði skilað fullkláruðum, þeim fyrstu 22 um miðjan maí á næsta ári en síðustu ellefu…Lesa meira

true

Rakel í starfshóp ráðherra

Rakel Óskarsdóttir bæjarfulltrúi á Akranesi og formaður stjórnar SSV hefur verið skipuð í starfshóp á vegum Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins um hlutverk og stöðu landshlutasamtaka sveitarfélaga. Í hópnum eru fimm fulltrúar, tveir fulltrúanna eru tilnefndir af ráðuneytinu, tveir frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og loks er Rakel tilnefnd af landshlutasamtökum sveitarfélaga. Megin hlutverk hópsins er að meta…Lesa meira

true

Tvímennt um Vesturland

Reiðhjól eru af ýmsum gerðum. Erlend hjón voru nýverið á ferð á þessu tveggja manna hjóli í Grundarfirði. Framan við stýrið sat konan og steig petala, en maðurinn sat fyrir aftan, steig sína petala og stýrði. Skemmtileg útfærsla og vissulega óvenjuleg í það minnsta á vegum hér á landi.Lesa meira

true

Öryggisveggur settur upp í Upplýsingamiðstöð Snæfellsness

Í byrjun þessa mánaðar var settur upp öryggisveggur í Upplýsingamiðstöð Snæfellsness á Breiðabliki. Veggurinn er settur upp af Safe Travel í samvinnu við Svæðisgarðinn Snæfellsnes, sem annast rekstur upplýsingamiðstöðvarinnar. Þar má sjá rafrænar upplýsingar um færð og veður og kort af Snæfellsnesi sem sýnir staði þar sem ástæða þykir til að gæta sérstakrar varúðar. Ragnhildur…Lesa meira

true

„Engar reykvélar, ekkert ljósasjóv og engar dansmeyjar – bara solid rokk“

Hljómsveitin Key to the Highway heldur stórtónleika til heiðurs Eric Clapton í Brún í Bæjarsveit að kvöldi næsta miðvikudags, 22. ágúst. Hljómsveitin var stofnuð árið 2015 í tilefni af sjötugsafmæli Claptons. Var tímamótunum fagnað með stórtónleikum í Brún. Allar götur síðan hefur sveitið komið fram á ári hverju og heiðrað tónlistarmanninn með hljómleikum. Hljómsveitina Key…Lesa meira

true

Á góðviðrisdögum iðar Langisandur af mannlífi

Um leið og veður tók að skána og góðar tveggja stafa tölur fóru að sjást á hitamælunum var fólk mætt á ströndina á Langasandi á Akranesi. Meðfylgjandi mynd tók Áskell Þórisson á einum góðviðrisdegi fyrir skömmu. Heit sturta er á sandinum, hreinlætisaðstaða og næg bílastæði. Þá er í byggingu í flæðarmálinu neðan við stúku Akranesvallar…Lesa meira

true

Starfsemin samrýmist ekki nýju deiliskipulagi

Með bréfi sem lögmaður Borgarbyggðar hefur ritað forsvarsmönnum Líflands annars vegar og Bifreiðaþjónustu Harðar hins vegar er þess krafist að starfsemi fyrirtækjanna verði hætt á Borgarbraut 55 í Borgarnesi þegar lóðarsamningur rennur út. Húsið skulu fyrirtækin láta rífa á sinn kostnað og skila lóðinni til sveitarfélagsins eigi síðar en 25. apríl 2019. Á lóðinni Borgarbraut…Lesa meira

true

Undirbúningur hafinn að brúargerð yfir Norðlingafljót

Nú er hafin vegagerð að væntanlegu brúarstæði yfir Norðlingafljót á Arnarvatnsheiði. Samið hefur verið við Vestfirska verktaka ehf. um að byggja brúna og stendur til að því verki verði lokið fyrir 1. október næstkomandi. Reist verður stálgrindarbrú með timburgólfi milli tveggja hraunklappa við ána, skammt ofan við Helluvað. Verktakar úr Borgarfirði sjá um vegagerðina sem…Lesa meira

true

Slitlagsframkvæmdir í Borgarfirði í dag

Vegavinna er í dag í gangi á kaflanum frá Borgarnesi að Baulusjoppunni í Stafholtstungum. Umferðarstýring verður á svæðinu og reikna má með töfum í fimm mínútur í senn, segir í tilkynningu frá Vegagerðinni. Áætlað er vinnan standi til klukkan 19 í kvöld.Lesa meira