Fréttir

true

Erik Hamrén tekur við íslenska landsliðinu

Sænski knattspyrnuþjálfarinn Erik Hamrén hefur verið ráðinn þjálfari karlalandsliðs Íslands í knattspyrnu. Hann tekur við starfinu af Heimi Hallgrímssyni sem lét af störfum eftir HM í Rússlandi fyrr í sumar. Formlega var tilkynnt um ráðningu Hamréns í dag. Á sama tíma var Freyr Alexandersson kynntur sem aðstoðarmaður hans. Samið var við báða til tveggja ára.…Lesa meira

true

VLFA stefnir Norðuráli fyrir félagsdóm

Verkalýðsfélag Akraness mun stefna Norðuráli fyrir félagsdóm vegna ágreinings félagsins og fyrirtækisins um túlkun á grein í kjarasamningi VLFA við Norðurál. Grein þessi lýtur að svokölluðum vikulegum frídegi, það er að segja rétti starfsmanna til frítöku sem nemur átta tímum á dagvinnulaunum ef starfsmenn vinna í samfellt sjö daga eða meira. „Fyrirtækið telur að þessi…Lesa meira

true

Keyrði fullur á ferðamenn í Borgarnesi

Á tíunda tímanum að morgni frídags verslunarmanna handtóku lögreglumenn í Borgarnesi ölvaðan ökumann. Maðurinn hafði áður misst stjórn á lítilli jeppabifreið á Brúartorgi, ekið inn á bílastæði og á tvo erlenda ferðamenn. För mannsins stöðvaðist loks þegar hann ók á ljósastaur. Við áreksturinn steig hann út úr bílnum og gekk burt af vettvangi en vegfarendur…Lesa meira

true

Le Boreal væntanlegt til Akraness í fyrramálið

Franska skemmtiferðaskipið Le Boreal mun leggjast að við aðalhafnargarðinn á Akranesi klukkan átta í fyrramálið, fimmtudaginn 9. ágúst. Skipið var smíðað árið 2010 og er tæplega 11 þúsund brúttótonn, 142m. að lengd, 18m. að breidd og með djúpristu upp á 4.8 m. La Boreal ferjar 264 farþega auk áhafnar. Gestir geta spókað sig um á…Lesa meira

true

Hefja keppni á EM í körfuknattleik U16

Í gærmorgun héldu leikmenn og fylgdarlið í U16 ára landsliði drengja út til Sarajevo í Bosníu þar sem þeir mun leika á Evrópumóti FIBA dagana 9.-18. ágúst. Liðið var á ferðalagi í gær og í dag en eru nú að koma sér fyrir og taka æfingu og hefja svo leik á morgun. Strákarnir okkar leika…Lesa meira

true

Ásthildur tekur við bæjarstjórastarfi norðan heiða

Snæfellingurinn Ásthildur Sturludóttir stjórnmála- og stjórnsýslufræðingur hefur verið ráðin bæjarstjóri á Akureyri og tekur hún við starfinu af Eiríki Birni Björgvinssyni. Ásthildur hefur verið bæjarstjóri í Vesturbyggð frá 2010 og þar til í vor, en starfaði áður m.a. hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi, var verkefnisstjóri við byggingu tónlistarhúss og hjá Háskóla Íslands.Lesa meira

true

Ólafsdalshátíðin verður á laugardaginn

Næstkomandi laugardag stendur Ólafsdalsfélagið fyrir sinni árlegu Ólafsdalshátíð á gamla skólastaðnum við Gilsfjörð. „Dagskrá Ólafsdalshátíðarinnar 2018 er fjölbreytt og fræðandi,“ segir í tilkynningu. „Allir eru velkomnir í dalinn 11. ágúst nk. og enginn aðgangseyrir.“ Dagskráin hefst klukkan 11 þegar farin verður gönguferð að víkingaaldarskálanum í Ólafsdal og öðrum minjum undir leiðsögn Birnu Lárusdóttur fornleifafræðings. Mæting…Lesa meira

true

Lag tileinkað Grundarfirði

Bæjarráð Grundarfjarðarbæjar tók fyrir erindi frá Bakkastofu, Culture centre, á síðasta fundi sínum. Í erindinu var óskað eftir því að Grundarfjarðarbær tæki þátt í kostnaði við upptöku á lagi Valgeirs Guðjónssonar, en lagið er tileinkað Grundarfirði. Bæjarráð samþykkti samhljóða að veita umbeðinn styrk, 120 þús. króna auk virðisaukaskatts. Styrkurinn tekur mið af því að höfundur…Lesa meira

true

Danskir dagar í Stykkishólmi framundan

Bæjarhátíðin Danskir dagar fer fram í Stykkishólmi dagana 17.-19. ágúst næstkomandi. Hátíðin hefur verið haldin frá árinu 1994 og og er því ein elsta bæjarhátíð landsins. Undirbúningur hefur gengið vel að sögn Hjördísar Pálsdóttur safnstjóra Byggðasafns Snæfellinga og Hnappdæla. En undirbúningur er í höndum starfsmanna safnanna ásamt fleirum. „Dagskráin hefst með danskri krakkasmiðju á bókasafninu…Lesa meira

true

Vel sóttur sveitamarkaður

Sveitamarkaður var haldinn í Nesi í Reykholtsdal síðastliðinn laugardag 28. júlí. Markaðurinn var vel sóttur enda fjölbreytt og gott úrval vara til kaups. Sem dæmi var hægt að næla sér í tælenskan mat, Laufeyjarís, ýmsa skrautmuni, kjöt og margt fleira auk þess sem gestir gátu fengið sér nýbakaðar vöfflur með rjóma og kaffi.Lesa meira