Fréttir

true

Vinnustofan Skærin á vinnuborðinu opnuð á Akranesi í september

„Ég byrjaði upphaflega árið 2010 í samstarfi við vinkonu mína. Við byrjuðum að sauma úr gömlum bolum því við áttum ekki pening fyrir efni. Við saumuðum ýmislegt og héldum svo sýningar. Það tókst svo vel til að við opnuðum saumastofuna Origami. Við stukkum þá í djúpu laugina og það gekk vonum framar. Vinkona mín hætti…Lesa meira

true

Förum varlega í umferðinni um verslunarmannhelgi

Margir verða á faraldsfæti þessa stærstu ferðahelgi ársins. Til að mynda eru bæjarhátíðir víða um land og umferðin verður þung. Gott er að hafa eitt og annað í huga þegar ferðast er um landið í mikilli umferð, s.s. að stíga létt á bensíngjöfina og gefa sér tíma. Halda sig innan leyfilegs hámarkshraða og við þann…Lesa meira

true

Reykhóladagar afslappaðir og skemmtilegir

Reykhóladagar fóru fram um dagana 27.-29. júlí síðastliðna. Dagskráin var að mestu leyti hefðbundin. Dráttarvélasýningin er líklega sá viðburður sem flestir telja einkenna hátíðina og var hún að sjálfsögðu á sínum stað. Venju samkvæmt var síðan keppt í dráttarvélaleikni að sýningunni lokinni. Sú keppni er löngu orðin víðfræg, en þar er ekið eftir þrautabraut á…Lesa meira

true

Opnaði útskurðarsýningu á Akranesi

Í tilefni af 80 ára afmæli sínu þá hefur Ásgeir Samúelsson sett upp sýningu á tréútskurði sínum á Bókasafni Akraness að Dalbraut. Sýningin stendur gestum til boða út ágústmánuð á opnunartíma safnsins. Sérstakt opnunarteiti fór fram í gær þar sem gestum var boðið upp á kaffi og kleinur á meðan þeir skoðuðu gripina. Verk Ásgeirs…Lesa meira

true

Unglingalandsmót um verslunarmannahelgi

Unglingalandsót UMFÍ er haldið ár hvert um verslunarmannahelgina fyrir ungmenni á aldrinum 11 til 18 ára, en mótið er jafnframt hin glæsilegasta vímulausa fjölskylduhátíð. Í ár verður mótið haldið í Þorlákshöfn við glæsilegar aðstæður fyrir alla mótsgesti. Keppt verður í fjölbreyttum íþróttagreinum á mótinu, svo sem körfubolta, golfi, skotfimi, sundi og fleira, og geta allir…Lesa meira

true

Fyrrverandi gjaldkeri UMFG kærður fyrir fjárdrátt

Héraðssaksóknari hefur á borði sínu kæru frá Ungmennafélagi Grundarfjarðar á hendur fyrrverandi gjaldkera félagsins. Maðurinn sat í stjórn félagsins um árabil og gegndi stöðu gjaldkera fram til ársins 2015 að minnsta kosti. Samkvæmt upplýsingum frá Héraðssaksóknara er kæra UMFG til rannsóknar hjá embættinu en ekki var hægt að veita frekari upplýsingar um efni hennar. Fréttin…Lesa meira

true

Á góðri stund fór vel fram

Um 2500 manns voru samankomnir í Grundarfirði um helgina á bæjarhátíðinni Á góðri sttund. Hátíðin fór vel fram og ánægja var með hvernig til tókst. Veður var gott þó aðeins hafi rignt á meðan skrúðgangan stóð yfir. Myndasyrpu frá hátíðinni má sjá í Skessuhorni vikunnar sem kom út í dag.Lesa meira

true

Hópur sjálfboðaliða við störf á Akranesi

Undanfarnar hefur hópur sjálfboðaliða á vegum Veraldavina unnið á Akranesi. Veraldarvinir eru íslensk félagasamtök sem rekin eru án hagnaðarsjónarmiða. Samtökin voru stofnuð í júní 2001 og hafa frá upphafi haft umhverfismál í öndvegi. Markmið samtakanna er að stuðla að heilbrigðum lífsháttum og betri umgengni manna við umhverfi sitt. Lögð er rík áhersla á alþjóðlegt samstarf…Lesa meira

true

Hefur aldrei þekkt lífið öðruvísi en með tónlist

Theodóra Þorsteinsdóttir mun fagna 60 ára afmæli sínu þann 7. ágúst næstkomandi í faðmi fjölskyldu og vina. „Við höldum veisluna á afmælisdaginn næsta þriðjudag í Hjálmakletti og byrjum á því að bjóða gestum upp á tónleika með léttu ívafi áður en við förum í hefðbundin veisluhöld. Að þessu sinni bjóðum við vinum, ættingjum og fólki…Lesa meira

true

Fasteignasalan Hákot er 25 ára

Fasteignasalan Hákot á Akranesi fagnaði 25 ára afmæli nú fyrir skemmstu. Hákot stofnuðu hjónin Daníel Rúnar Elíasson og Halla Ingólfsdóttir föstudaginn 23. júlí 1993 á 8 ára afmælisdegi sonar þeirra. Af tilefni afmælisins hitti blaðamaður Skessuhorns Daníel í húsnæði Hákots við Kirkjubraut 12 á Akranesi og fór með honum yfir farinn veg. Áður en Daníel…Lesa meira