
Þorsteinn Víglundsson félags- og jafnréttismálaráðherra hefur staðfest breytingu á reglugerð um húsnæðisbætur sem hækkar þau viðmið tekna sem leigjendur geta haft áður en þær skerða rétt þeirra til húsnæðisbóta. Reglugerðin er afturvirk og gildir frá gildistöku laga um húsnæðisbætur 1. janúar 2017. Með reglugerðarbreytingunni er brugðist við misræmi sem orðið hefur á milli framfærsluviðmiðs almannatrygginga…Lesa meira








