Fréttir

true

Skýrist í dag hvaða ákvörðun HB Grandi tekur

Í dag klukkan 14 er boðaður fundur með stjórnendum HB Granda með forystu Verkalýðsfélags Akraness og trúnaðarmönnum í fiskvinnslu fyrirtækisins á Akranesi. Í framhaldi af því munu stjórnendur ræða við starfsmenn. Þá kemur í ljós hvort HB Grandi fylgi eftir boðun um uppsagnir í fiskvinnslu eða taki áskorun alþingsmanna og bæjarstjórnar Akraness um að fresta…Lesa meira

true

Vegur án ofaníburðar í 48 ár

Malarvegurinn frá Hvanneyri að Hvítárvöllum í Andakíl er með þeim lélegri sem um getur. Íbúar á svæðinu eru langþreyttir á ástandinu og segjast ekki geta orða bundist lengur um þá lítilsvirðingu sem Vegagerð og fjárveitingavaldið sýnir landsbyggðinni. Katrín Arna Ólafsdóttir á Hvítárvöllum tók meðfylgjandi mynd af veginum á sunnudaginn. Hún segir fróða menn hafa verið…Lesa meira

true

Snæfellskonur komnar með yfirhöndina

Snæfell bar sigurorð af Stjörnunni í gær í fyrstu viðureign liðanna í undanúrslitum Dominos deildar kvenna í körfubolta. Lokatölur leiksins urðu 93-78 sem fram fór í Stykkishólmi og leiddu Snæfellskonur allan leikinn. Atkvæðamest Snæfellskvenna í leiknum var Aaryn Ellenberg sem átti stórleik. Hún skoraði 42 stig, hirti 14 fráköst og gaf 6 stoðsendingar. Næstar komu…Lesa meira

true

Stjórnvöld, fjölmiðlar og almenningur blekkt

Rannsóknarnefnd Alþingis hefur sannreynt að þýski bankinn Hauck & Aufhäuser var aldrei í reynd fjárfestir í Búnaðarbankanum þegar 45,8% hlutur ríkisins í honum var seldur í janúar 2003, ólíkt því sem haldið var fram allt frá upphafi. Það er afdráttarlaus niðurstaða rannsóknarnefndar Alþingis að stjórnvöld hafi skipulega verið blekkt í aðdraganda og kjölfar sölunnar. „Ítarleg…Lesa meira

true

Kaupfélagið hagnaðist um 17 milljónir

Aðalfundur Kaupfélags Borgfirðinga fór fram í Borgarnesi síðastliðinn fimmtudag. Samkvæmt ársreikningi sem samþykktur var á fundinum nam hagnaður félagsins á síðasta ári um 17,2 milljónum króna en heildarvelta var tæpar 354 milljónir. Eiginfjárhlutfall samkvæmt efnahagsreikningi var 33,2%. Félagsmönnum fjölgaði um 71 frá 2015 og voru þeir 1606 um síðustu áramót. Þeim hefur fjölgað stöðugt undanfarin…Lesa meira

true

Þyrla á toppi Kirkjufells

Íbúar Grundarfjarðar vissu ekki hvaðan á sig stóð veðrið í ljósaskiptunum síðasta mánudagskvöld þegar drunur úr stórri þyrlu ómuðu um svæðið. Hvað þá heldur þegar þyrlan lenti á toppi kennileitis bæjarins, sjálfu Kirkjufellinu. Þar var þyrlan í smá tíma áður en henni var flogið á loft að nýju og sveimaði um hlíðar fellsins með ljóskastara…Lesa meira

true

Lögregla rannsakar innbrot í báta

Hjá lögreglunni á Vesturlandi eru til rannsóknar ítrekuð innbrot undanfarið í báta í höfninni í Ólafsvík þar sem lyfjum og öðrum verðmætum var stolið. „Ef einhver hefur upplýsingar varðandi þessi innbrot, eða hefur orðið var við grunsamlegar mannaferðir á eða við höfnina í Ólafsvík, er sá hinn sami beðinn um að hafa samband við Lögregluna…Lesa meira

true

Allir þingmenn NV kjördæmis senda HB Granda áskorun

Haraldur Benediktsson fyrsti þingmaður Norðvesturkjördæmis og oddviti Sjálfstæðismanna hefur sent stjórn HB Granda sameiginlega ályktun fyrir hönd allra þingmanna kjördæmisins um að fyrirtækið gangi þegar til viðræðna við bæjaryfirvöld á Akranesi og falli frá áformum um lokun fiskvinnslu á Akranesi:   „Til stjórnar HB Granda Þingmenn NV kjördæmis hafa á undanförnum árum fylgst með áformum…Lesa meira

true

Viljayfirlýsing bæjarstjórnar Akraness til HB Granda

Á bæjarstjórnarfundi sem enn stendur yfir á Akranesi var eftirfarandi viljayfirlýsing til stjórnar HB Granda samþykkt samhljóða: „Bæjarstjórn Akraness lýsir yfir eindregnum vilja til að ganga frá samkomulagi við HB Granda og Faxaflóahafnir um gerð landfyllingar og nauðsynlegar endurbætur á hafnaraðstöðu við Akraneshöfn til að unnt sé að koma til framkvæmda áformum fyrirtækisins frá 2007…Lesa meira

true

Bæjarstjórn sendir stjórn HB Granda yfirlýsingu

Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri á Akranesi segir tíðindin um mögulegar uppsagnir fiskvinnslufólks HB Granda á Akranesi gríðarlega alvarleg. „Sjávarútvegurinn hér er sálin í bænum okkar og partur af því sem þetta bæjarfélag snýst um. Og að fara að loka vinnslu eru mjög alvarleg tíðindi og hefði mikil áhrif á samfélagið allt,“ sagði Sævar í samtali…Lesa meira