Fréttir

true

Húsmæðraskólinn á Varmalandi verður hótel

Um þessar mundir er unnið hörðum höndum að því að breyta gamla Húsmæðraskólanum á Varmalandi í hótel sem áætlað er að opnað verði í sumar. Skessuhorn var á ferðinni í Borgarfirði á dögunum og ræddi við Bjarna Þór Ólafsson, verkefnis- og byggingarstjóra og Hauk Birgisson, rekstrarstjóra Hótels Varmalands, um framkvæmdina. „Hér er verið að breyta…Lesa meira

true

Á Vesturland fara 116 milljónir til umhverfisverkefna

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir ráðherra ferðamála hefur staðfest tillögu stjórnar Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða um úthlutun styrkja vorið 2017. Alls eru veittir styrkir til 58 verkefna á landsvísu og nemur heildarfjárhæð þeirra 610 milljónum króna. Þar af renna tæplega 116 milljónir til 13 verkefna á Vesturlandi, eða sem nemur 19% af úthlutun sjóðsins. Að auki hefur ráðherra…Lesa meira

true

Aukin kaupgleði en minni umsvif fataverslunar

Aukinn kaupmáttur og vaxandi væntingar er jafnan ávísun á aukna kaupgleði. Þess sjást meðal annars merki í neyslu á mat og drykk. Í nýrri skýrslu Rannsóknaseturs verslunarinnar kemur fram að í febrúar var velta dagvöruverslana 3% meiri en í sama mánuði í fyrra og að jafnaði hefur velta dagvöruverslana aukist um 6% síðustu 12 mánuði.…Lesa meira

true

Vill skoða að lagt verði umhverfisgjald á ruslpóst

Andrés Ingi Jónsson alþingismaður VG í Reykjavík hefur lagt fram fyrirspurn á þingi til umhverfisráðherra um kostnað almennings við förgun óumbeðins ruslpósts. Andrés Ingi segir fyrirspurn sína sprottna vegna umræðna á samskiptasíðunni Betri Reykjavík. „Þar hefur mikið verið rætt um ruslpóst og meðal annars er velt upp þessari spurningu: „Hvað ætli fari mörg tonn af…Lesa meira

true

Góður rekstur UMSB á liðnu ári

Síðastliðinn laugardsag var 95. sambandsþing UMSB haldið í Hjálmakletti í Borgarnesi. Dagskrá þingsins var hefðbundin samkvæmt lögum sambandsins og fengum við góða gesti í tilefni þingsins. Gunnlaugur Júlíusson sveitarstjóri Borgarbyggðar færði kveðjur frá ÍSÍ en hann situr í stjórn ÍSÍ og Guðmundur Sigurbergsson færði kveðju UMFÍ ásamt því að hann veitti Írisi Grönfeldt starfsmerki UMFÍ…Lesa meira

true

Ævar Þór einn af bestu barnabókahöfundum Evrópu

Barnabókahöfundurinn Ævar Þór Benediktsson er á lista yfir 39 bestu evrópsku barnabókahöfundana, undir 39 ára aldri. Var þetta kynnt á alþjóðlegu bókamessunni London Book Fair sem nú fer fram í London. Um er að ræða svokallaðan Aarhus 39-lista og er Ævar Þór eini Íslendingurinn á listanum. Ævar er staddur í London til að veita viðurkenningunni…Lesa meira

true

Brimrún Eir tryggði sér silfur á Íslandsmeistaramóti

Íslandsmeistaramótaröðinni í klifri lauk um síðustu helgi í Klifurhúsinu í Reykjavík. Eins og áður fjölmenntu ÍA klifrarar á mótið og stóðu sig með prýði. Í unglingaflokki klifraði Brimrún Eir Óðinsdóttir fyrir ÍA. Fyrir mótið var hún í öðru sæti og þurfti því að klifra vel til að verja sitt sæti. Hún lauk keppni með 147…Lesa meira

true

Á nýju rakarahorni eftir tæp 40 ár í gamla bænum

„Þetta er búinn að vera yndislegur tími. Nú er nýr kafli hafinn hérna í nýja miðbænum,“ segir Ingileif Aðalheiður Gunnarsdóttir (Heiða) hárgreiðslumeistari í Borgarnesi. Heiða flutti stofuna sína, Hárgreiðslustofuna Heiðu, um síðustu áramót á heimili sitt að Kjartansgötu 29. Þá hafði hún klippt og greitt í 40 ár í gamla bænum í Borgarnesi. „Ég byrjaði…Lesa meira

true

Þrír frá ÍA í U21 landsliðið

Skagamennirnir Aron Ingi Kristinsson, Steinar Þorsteinsson og Tryggvi Hrafn Haraldsson hafa verið valdir í hóp U21 landsliðs karla í knattspyrnu sem heldur til Georgíu 20. mars næstkomandi. Mun liðið leika tvo æfingaleiki við heimamenn, dagana 22. og 25. mars. Að því loknu verður haldið til Ítalíu þar sem liðið mætir Sádi-Aröbum 28. mars. „Við óskum…Lesa meira

true

Framkvæmdir í Fossabrekku í Ólafsvík

Í vetur hafa með hléum verið unnið við framkvæmdir í Fossabrekku í Ólafsvík. Er þetta annar áfangi verks sem byrjað var á 2008 en allt sett á ís eftir hrun. Eina einbýlishúsið sem stendur við Fossabrekku seldist fyrr á þessu ári og var þá ákveðið að halda áfram þar sem frá var horfið. Nú er…Lesa meira