Fréttir

true

Afmælishátíðin verður haldin í Borgarnesi í apríl

Borgarnes fagnar stórafmæli 22. mars næstkomandi. Þann dag verða liðin 150 ár frá því að Kristján IX Danakonungur undirritaði skjal þess efnis að Borgarnes hlyti stöðu sem löggiltur verslunarstaður. Skipuð hefur verið hátíðarnefnd til að halda utan um og skipuleggja hátíðarhöld á afmælisári. Í nefndinni sitja Björk Jóhannsdóttir, Guðrún Jónsdóttir, Guðveig Eyglóardóttir, Theódór Þórðarson og…Lesa meira

true

Baráttuglaðir Skagamenn urðu að lúta í gras

ÍA mætti Breiðabliki í næstsíðustu umferð 1. deildar karla í körfuknattleik í gær. Leikið var í Kópavogi. Fyrir leikinn voru Skagamenn í 8. og næstneðsta sæti deildarinnar en heimamenn öruggir í 4. sæti og búnir að tryggja sér þátttökurétt í úrslitakeppninni. Hvorugt lið hafði því að miklu að keppa og sú staðreynd skein í gegn…Lesa meira

true

Fá bílastæði miðað við umferð

Bílaplanið við Kirkjufellsfoss við Grundarfjörð er nú þéttsetið bílum og rútum alla daga. Er umferðin á bílastæðinu orðin svo mikil að ekki er alltaf pláss fyrir alla sem vilja stoppa og skoða sig þarna um. Þegar þessi mynd var tekin voru tvær rútur á svæðinu og annarri lagt í vegkantinum þannig að hún tók helminginn…Lesa meira

true

Skólanum færð minningargjöf um Tryggva Eðvarðs

Grunnskóla Snæfellsbæjar barst á dögunum höfðingleg gjöf. Það var Ásbjörn Óttarsson og fjölskylda hans sem færðu skólanum MakerBot Replicator 3D prentara og skanna að gjöf. Gjöfina gáfu þau í minningu Tryggva Eðvarðssonar, afa Ásbjarnar, sem hefði orðið 100 ára 12. febrúar síðastliðinn. Við afhendinguna sagði Ásbjörn að það væri greinilegt að gott starf færi fram…Lesa meira

true

Birkið er sligað og brotið af snjóþunga

Glöggir vegfarendur um Hafnarskóg hafa tekið eftir því að birkið í skóginum er illa farið eftir snjóinn sem féll aðfararnótt 26. febrúar síðastliðinn. Gera má ráð fyrir að svipaðar aðstæður séu víðar í landshlutanum þar sem mikið snjóaði þessa nótt en eftir það hefur veður verið hæglátt þannig að snjórinn hefur ekki fokið til. Jón…Lesa meira

true

Ný reglugerð um samræmd próf í grunnskólum

Frá því síðasta haust hefur á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytis verið unnið að breytingum á reglugerð um framkvæmd og fyrirkomulag samræmdra könnunarprófa í 4., 7. og 10. bekk grunnskóla. Helstu breytingar frá gildandi reglugerð eru þær að samræmd könnunarpróf eiga að vera einstaklingsmiðuð, þ.e. laga sig að getu nemandans miðað við frammistöðu hans á prófinu.…Lesa meira

true

Heilbrigðiseftirlit Vesturlands opnar heimasíðu og kynnir lógó

Heilbrigðiseftirlit Vesturlands hefur nú fengið lógó og opnað heimasíðu. „Lengi hafa fundargerðir heilbrigðiseftirlitsins verið birtar á heimasíðu SSV, en heilbrigðisteftirlitið sjálft ekki verið með slíka síðu. Markmiðið með nýrri heimasíðu er að bæta upplýsingastreymi til íbúa á Vesturlandi ásamt því að fræða og leiðbeina fólki hvert það skal snúa sér þegar kemur að heilbrigðis- og…Lesa meira

true

Heimtu átta kindur af Botnsheiði

Síðastliðinn sunnudag fór Friðjón Guðmundsson bóndi á Hóli í Svínadal við fjórðamann frá Hóli til smalamennsku á Botnsheiði. Sést hafði til útigenginna kinda. Að sögn Friðjóns fundu þeir átta kindur syðst á afréttinum við Sellæk skammt frá Hvalvatni. Kindurnar reyndust vera frá tveimur bæjum í Hvalfjarðarsveit og einum bæ í Lundarreykjadal, tvær fullorðnar og sex…Lesa meira

true

Úrskurðað að of dýrt sé að koma ábúanda í netsamband

Úrskurðarnefnd fjarskipta- og póstmála hefur staðfest ákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunar nr. 5/2016 um fjarskiptasamband ábúanda í Strandasýslu. Málið varðar réttinn til alþjónustu á sviði fjarskipta, en erindi barst PFS frá ábúanda í Strandasýslu þar sem óskað var eftir svörum við því hvenær von væri á síma- og háhraðatengingu líkt og allir landsmenn ættu rétt á.…Lesa meira

true

Mjög góð loðnuveiði við Snæfellsnes

Rífandi gangur er í loðnuveiðunum við Snæfellsnes þessa dagana. Skip HB Granda; Víkingur AK og Venus NS, skiptast á um að sigla að landi á Akranesi með hæfilegan farm og stöðug vinnsla er í gangi í húsum fyrirtækisins. Loðnan er flokkuð, hrygnan skorin og hrogn fryst, en annað fer í bræðslu. Hráefni er auk þess…Lesa meira