Fréttir

true

Snjóinn gæti tekið upp eftir helgina

Spáð er hæglætis veðri í dag og á morgun. Á sunnudag verður norðaustlæg átt og þykknar upp vestantil á landinu þar sem verður frostlaust við ströndina en vægt frost inn til landsins. Gera má ráð fyrir að snjóinn taki upp smám saman en reikna má með klakabunkum þar sem hann hefur náð að troðast niður.…Lesa meira

true

Robert Menzel gengur til liðs við ÍA

Pólski hafsentinn Robert Menzel hefur samið við Knattspyrnufélag ÍA út leiktíðina. Robert er 26 ára gamall og hefur spilað 70 leiki í efstu og næst-efstu deildinni í Póllandi en hann lék síðast með Podbeskidzie Bielsko-Biala í efstu pólsku deildinni. Hann kom á reynslu til liðsins fyrir tveimur vikum og ákveðið var að semja við þennan…Lesa meira

true

Andlát – Guðjón Finnbogason

Guðjón Finnbogason, fyrrverandi verslunarmaður, knattspyrnukappi og knattspyrnudómari á Akranesi er látinn, 89 ára að aldri. Guðjón var fæddur 2. desember 1927, næstyngstur fimm systkina. Hann bjó alla tíð á Akranesi og starfaði í 56 ár, nær alla sína starfsævi, sem verslunarmaður í hinni sögufrægu Axelsbúð. Þá kom hann víða við í íþróttastarfi á Akranesi. Hann…Lesa meira

true

Sveitarstjórnarfólk fundaði með þingmönnum

Í liðinni viku fundaði stjórn Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, ásamt fulltrúum sveitarfélaga í landshlutanum, með fimm þingmönnum Norðvesturkjördæmis í tengslum við kjördæmaviku. Þar bar ýmis hagsmunamál Vestlendinga á góma en meginþungi umræðunnar var um samgöngumál og þá stöðu sem komin er upp vegna vanfjármögnunar samgönguáætlunar og ítarlega hefur verið greint frá í Skessuhorni. „Það liggur…Lesa meira

true

„Mikill vaxtarbroddur í ferðaþjónustunni í Grundarfirði“

Við Hrannarstíg 5 í Grundarfirði reka hjónin Gunnar Kristjánsson og Jóhanna H Halldórsdóttir gistiheimilið H5 íbúðir. Gunnar var kennari og síðast skólastjóri í grunnskólanum alls um 25 ára skeið og Jóhanna var kaupmaður í Hrannarbúðinni í um þrjá áratugi. Verslunin var einmitt síðast í húsnæðinu þar sem H5 íbúðir eru nú til húsa. „Við lokuðum…Lesa meira

true

Borgarverk styrkir Skallagrím

Miðvikudaginn 1. mars síðastliðinn undirrituðu Ragnheiður Guðmundsdóttir, f.h. körfuknattleiksdeildar Skallagríms og Óskar Sigvaldason, f.h. Borgarverks, samstarfs- og styrktarsamning til þriggja ára. Undirrituðu þau samninginn í hálfleik leiks Skallagríms og Grindavíkur sem mættust í Domino‘s deild kvenna í Borgarnesi. „Borgarverk hefur verið og verður nú áfram einn af öflugustu styrktaraðilum körfuknattleiksdeildarinnar og er það deildinni mikið…Lesa meira

true

Gistináttum fjölgaði verulega

Gistinætur á hótelum hér á landi í janúarmánuði voru 281.400 sem er 43% aukning miðað við janúar 2016. Þar af voru gistinætur útlendinga 89% af þeim fjölda. Útlendingum fjölgaði um 47% frá því í fyrra á meðan gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 17%. Í tölum Hagstofunnar sem birtar voru í liðinni viku má sjá að aukningin…Lesa meira

true

Telja líklegt að fuglaflensa berist til landsins

Frá því í október á síðasta ári hefur alvarlegt afbrigði fuglaflensu greinst í fuglum víða í Evrópu. Matvælastofnun, ásamt sérfræðingum við Tilraunastöð Háskóla Íslands á Keldum og Háskóla Íslands, telja töluverðar líkur á að fuglaflensuveiran berist til landsins með farfuglum. „Fuglaeigendur þurfa því að vera undir það búnir að geta hýst fuglana sína eða haft…Lesa meira

true

Sumarbúðir KFUM og KFUK

Í dag fimmtudaginn kl. 13 hefst skráning í sumarbúðir og leikjanámskeið KFUM og KFUK á Íslandi fyrir sumarið 2017. Sumarbúðirnar hafa verið hluti af sumarupplifun íslenskra barna í bráðum heila öld en árlega dvelja hátt á þriðja þúsund börn í sumarbúðunum sem er á fimm stöðum í Vatnaskógi, Vindáshlíð, Ölveri, Kaldárseli og Hólavatni. Í sumarbúðunum…Lesa meira

true

Snæfell skellti í lás í framlengingunni

Topplið Snæfells heimsótti Val í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í gær. Eftir kaflaskiptan fyrri hálfleik tók við spennandi síðari hálfleikur og úrslit leiksins réðust síðan ekki fyrr en eftir framlengingu. Snæfell hafði betur, 70-77. Snæfell hafði yfirhöndina í upphafi leiks og komst í 8-15 skömmu eftir miðjan fyrsta leikhluta. Valur rétti hlut sinn áður…Lesa meira