Fréttir

true

Fékk tvær milljónir í Víkingalottói

Tveir skiptu með sér fyrsta aðalvinningi í Víkingalottói vikunnar og fær hvor um sig 55,6 milljónir króna að launum. Vor báðir miðarnir keyptir í Noregi. Einn var með allar tölur réttar í Jóker og hlýtur hann tvær milljónir í vinning. Miðinn var keyptur í Skútunni, söluskála N1, við Þjóðbraut á Akranesi.Lesa meira

true

Héldu leiðtogadag á Kleppjárnsreykjum

Grunnskóli Borgarfjarðar, Kleppjárnsreykjadeild, er þátttakandi í verkefninu Leiðtoginn í mér sem er hugmyndafræði fyrir skóla sem byggir á bók Steven R. Covey: 7 venjur til árangurs. Hún gengur út á það að byggja upp sterka einstaklinga til að takast á við áskoranir í lífi og starfi. Tilgangurinn er ekki að búa til leiðtoga úr öllum,…Lesa meira

true

Snjóþekja og hálka á vegum

Hálka, snjóþekja og éljagangur er á vegum á Vesturlandi. Þæfingsfærð er á Fróðárheiði en unnið er að hreinsun, segir í tilkynningu frá Vegagerðinni.Lesa meira

true

Galdraskóli á Laugum í Sælingsdal

Um hundrað skátar frá Skátafélaginu Stíganda í Dalabyggð og Skátafélaginu Erninum í Grundarfirði komu saman á Laugum í Sælingsdal um helgina þar sem Harry Potter ævintýrið var alls ráðandi. Gamla Laugaskóla var breytt í Hogwart skóla undir vaskri stjórn skátaforingja og starfsmanna Ungmenna- og tómstundabúðanna á Laugum. Fálkaskátar, dróttskátar og rekkaskátar voru að störfum alla…Lesa meira

true

Fyrsti viðburðurinn á afmælisári Ólafsvíkurkirkju

Konudagsmessa var haldin í Ólafsvíkurkirkju síðastliðinn sunnudag. Messan var jafnframt fyrsti viðburður afmælisnefndar vegna 50 ára afmælis kirkjunnar. Verða fleiri viðburðir út afmælisárið en afmæli kirkjunnar er 19. nóvember á þessu ári. Konur í Kvenfélagi Ólafsvíkur tóku virkan þátt í messunni á sunnudaginn með því að lesa ritningarlestra og leiða bænir. Að messu lokinni færðu…Lesa meira

true

„Ég er bara Ronja“

Laugardaginn 11. mars næstkomandi verður leikritið um Ronju ræningjadóttur frumsýnt í Bíóhöllinni á Akranesi. Uppfærslan er gerð á vegum leiklistarklúbbs Nemendafélags Fjölbrautaskóla Vesturlands. Blaðamaður Skessuhorns hitti Aldísi Eir Valgeirsdóttur í liðinni viku en hún fer með hlutverk Ronju í sýningunni. Hún segir uppsetninguna vera stóra í sniðum og að margir komi að henni með einum…Lesa meira

true

Tvö skemmtiferðaskip hafa boðað komu sína til Akraness í sumar

Síðastliðið vor tilkynntu Faxaflóahafnir sf. að von væri á fyrstu skipakomu skemmtiferðaskips til Akraness sumarið 2017. Fyrsta skipið til að boða  komu sína var skemmtiferðaskipið Le Boreal. Það mun koma 30. júlí í sumar og hafa viðdvöl við aðalhafnargarðinn.  Le Boreal var smíðað árið 2010 og er 10,944 brúttótonn. Það er 142 m. á lengd, breidd…Lesa meira

true

Uppfærir lagalistann og útsetur lög meðan hann plægir túnin

Það hlýtur að vera einsdæmi norður á Ströndum að hægt sé að plægja tún í upphafi góu. Sú er engu að síður raunin í dag, en Viðar Guðmundsson kórstjóri og bóndi á Miðhúsum í Kollafirði situr þessa stundina í dráttarvél sinni og plægir tún. Ekkert frost er í jörðu og aðstæður því með besta móti…Lesa meira

true

Notkun stefnuljósa dregur úr streitu í umferðinni

Þegar rýnt er í könnun Samgöngustofu frá 2016, þar sem aksturshegðun Íslendinga er skoðuð, kemur í ljós að 62% ökumanna hafði á síðustu sex mánuðum oft eða stundum orðið fyrir truflun eða verið undir álagi vegna hegðunar annarra vegfarenda. Árið á undan var þetta hlutfall 41%, þannig að hegðun annarra í umferðinni hefur mun meiri…Lesa meira

true

Fræðsluferð til Noregs um markaðssetningu ferðaþjónustu til sveita

Hey Ísland, sem áður hét Ferðaþjónusta bænda, undirbýr nú ferð til Noregs þar sem þátttakendur fá að kynna sér þarlenda markaðssetningu ferðaþjónustu til sveita og afurða beint frá býli. Ferðin er fyrirhuguð 25. – 30. apríl í vor og tekur því alls sex daga. Fararstjóri verður Erla Hjördís Gunnarsdóttir. „Markmið ferðarinnar er að kynnast því…Lesa meira