Fréttir

true

Hagnaður HB Granda dróst saman milli ára

Rekstrartekjur HB Granda hf. á síðasta ári námu ríflega 200 milljónum evra og drógust saman um 11% miðað við árið 2015. Hagnaður ársins í fyrra nam 26,2 milljónum evra á móti 44,5 milljónum evra árið 2015. Heildareignir félagsins námu 450 milljónum evra í árslok 2016, eigið fé nam 250,1 milljónum evra og var eiginfjárhlutfallið því…Lesa meira

true

Fékk tvær milljónir í Víkingalottói

Tveir skiptu með sér fyrsta aðalvinningi í Víkingalottói vikunnar og fær hvor um sig 55,6 milljónir króna að launum. Vor báðir miðarnir keyptir í Noregi. Einn var með allar tölur réttar í Jóker og hlýtur hann tvær milljónir í vinning. Miðinn var keyptur í Skútunni, söluskála N1, við Þjóðbraut á Akranesi.Lesa meira

true

Héldu leiðtogadag á Kleppjárnsreykjum

Grunnskóli Borgarfjarðar, Kleppjárnsreykjadeild, er þátttakandi í verkefninu Leiðtoginn í mér sem er hugmyndafræði fyrir skóla sem byggir á bók Steven R. Covey: 7 venjur til árangurs. Hún gengur út á það að byggja upp sterka einstaklinga til að takast á við áskoranir í lífi og starfi. Tilgangurinn er ekki að búa til leiðtoga úr öllum,…Lesa meira

true

Snjóþekja og hálka á vegum

Hálka, snjóþekja og éljagangur er á vegum á Vesturlandi. Þæfingsfærð er á Fróðárheiði en unnið er að hreinsun, segir í tilkynningu frá Vegagerðinni.Lesa meira

true

Galdraskóli á Laugum í Sælingsdal

Um hundrað skátar frá Skátafélaginu Stíganda í Dalabyggð og Skátafélaginu Erninum í Grundarfirði komu saman á Laugum í Sælingsdal um helgina þar sem Harry Potter ævintýrið var alls ráðandi. Gamla Laugaskóla var breytt í Hogwart skóla undir vaskri stjórn skátaforingja og starfsmanna Ungmenna- og tómstundabúðanna á Laugum. Fálkaskátar, dróttskátar og rekkaskátar voru að störfum alla…Lesa meira

true

Fyrsti viðburðurinn á afmælisári Ólafsvíkurkirkju

Konudagsmessa var haldin í Ólafsvíkurkirkju síðastliðinn sunnudag. Messan var jafnframt fyrsti viðburður afmælisnefndar vegna 50 ára afmælis kirkjunnar. Verða fleiri viðburðir út afmælisárið en afmæli kirkjunnar er 19. nóvember á þessu ári. Konur í Kvenfélagi Ólafsvíkur tóku virkan þátt í messunni á sunnudaginn með því að lesa ritningarlestra og leiða bænir. Að messu lokinni færðu…Lesa meira

true

„Ég er bara Ronja“

Laugardaginn 11. mars næstkomandi verður leikritið um Ronju ræningjadóttur frumsýnt í Bíóhöllinni á Akranesi. Uppfærslan er gerð á vegum leiklistarklúbbs Nemendafélags Fjölbrautaskóla Vesturlands. Blaðamaður Skessuhorns hitti Aldísi Eir Valgeirsdóttur í liðinni viku en hún fer með hlutverk Ronju í sýningunni. Hún segir uppsetninguna vera stóra í sniðum og að margir komi að henni með einum…Lesa meira

true

Tvö skemmtiferðaskip hafa boðað komu sína til Akraness í sumar

Síðastliðið vor tilkynntu Faxaflóahafnir sf. að von væri á fyrstu skipakomu skemmtiferðaskips til Akraness sumarið 2017. Fyrsta skipið til að boða  komu sína var skemmtiferðaskipið Le Boreal. Það mun koma 30. júlí í sumar og hafa viðdvöl við aðalhafnargarðinn.  Le Boreal var smíðað árið 2010 og er 10,944 brúttótonn. Það er 142 m. á lengd, breidd…Lesa meira

true

Uppfærir lagalistann og útsetur lög meðan hann plægir túnin

Það hlýtur að vera einsdæmi norður á Ströndum að hægt sé að plægja tún í upphafi góu. Sú er engu að síður raunin í dag, en Viðar Guðmundsson kórstjóri og bóndi á Miðhúsum í Kollafirði situr þessa stundina í dráttarvél sinni og plægir tún. Ekkert frost er í jörðu og aðstæður því með besta móti…Lesa meira

true

Notkun stefnuljósa dregur úr streitu í umferðinni

Þegar rýnt er í könnun Samgöngustofu frá 2016, þar sem aksturshegðun Íslendinga er skoðuð, kemur í ljós að 62% ökumanna hafði á síðustu sex mánuðum oft eða stundum orðið fyrir truflun eða verið undir álagi vegna hegðunar annarra vegfarenda. Árið á undan var þetta hlutfall 41%, þannig að hegðun annarra í umferðinni hefur mun meiri…Lesa meira