Fréttir

true

Rætt um fjarskipti og vegamál á fundi með þingmönnum

Þingmennirnir Haraldur Benediktsson, formaður fjárlaganefndar, og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ráðherra ferðamála, héldu opinn fund í Dalakoti í Búðardal í gær. Fundurinn var vel sóttur og mest rætt um samgöngu- og fjarskiptamál. Ljósleiðaramálin voru fyrirferðamikil í umræðunni ásamt ástandi vega um Skógarströnd og Laxárdal. Báðar tengja þessar leiðir landshluta. Annars vegar Dali og Snæfellsnes og…Lesa meira

true

Vesturlandsvegur lokaður í Melasveit

Lokað verður um Vesturlandsvegi við Lyngholt í Melasveit næstu tvo klukkutíma, eða fram á hádegi. Verið er að ná strætisvagni upp á veg sem hafnaði í gær í vegskurði skammt vestan við Lyngholt. Hjáleið er um Dragháls en lögreglan mun stýra umferð eins og hægt er, segir í tilkynningu frá Vegagerðinni.Lesa meira

true

Saumastofan færð á fjalirnar í Lyngbrekku

Saumastofan eftir Kjartan Ragnarsson verður frumsýnd í félagsheimilinu Lyngbrekku næstkomandi föstudagskvöld. Eru það félagar í Leikdeild Umf. Skallagríms sem færa verkið á fjalirnar og leikstjórn er í höndum Gunnars Björns Guðmundssonar. Þessa dagana vinna félagar leikdeildarinnar hörðum höndum við lokaundirbúning fyrir frumsýninguna. Ása Dóra Garðarsdóttir, gjaldkeri leikdeildarinnar og einn af leikurum í sýningunni, segir undirbúninginn…Lesa meira

true

Söngdagar framundan á Akranesi

Svokallaðir Söngdagar hefjast á Akranesi í dag, miðvikudag. Um er að ræða röð viðburða sem Kór Akraneskirkju, Kalman – listafélag og kirkjan sameinast um að halda. Að sögn Sveins Arnars Sæmundssonar organista verða viðburðirnir þrír talsins og hefjast þeir á sálmakvöldi í Akraneskirkju í kvöld sem ber yfirskriftina „Umhverfis jörðina í sálmasöng“. Þar mun Margrét…Lesa meira

true

„Verðum að skoða alla kosti“

Jón Gunnarsson samgönguráðherra hefur skipað starfshóp í ráðuneyti sínu sem á í síðasta lagi í maí í vor að skila af sér fyrstu hugmyndum um útfærslu stórátaks í vegagerð á suðvesturhorni landsins sem fjármagnaðar verða með veggjöldum. „Það verður byrjað á að skilgreina verkefnið og þessar hugmyndir, svo sem framkvæmdaröð, áætla kostnað og slíkt. Við…Lesa meira

true

Fann fjórtán útigengnar kindur með hjálp dróna

Halldór Sigurðsson á Þorvaldsstöðum í Hvítársíðu hefur nú um skeið átt öflugan dróna. Sjálfur býr hann með sauðfé og notar tækið töluvert við bústörfin. Með honum hafi hann fundið kindur sem átt hafi það til að fela sig og þá segist hann reka féð með tækinu. Kindurnar forðist tækið og suðið sem það gefur frá…Lesa meira

true

Síberíu komið fyrir á Breið

Síðastliðinn laugardag var listaverkinu Síberíu komið fyrir á Breiðinni á Akranesi, skammt frá Akranesvita. Elsa María Guðlaugs Drífudóttir er höfundur verksins og er það hennar fyrsta útilistaverk. Það er gert úr rekaviði frá Árneshreppi á Ströndum og var upphaflega smíðað árið 2015 fyrir samsýningu á Vökudögum á Akranesi sama ár. Talið er að langstærstur hluti…Lesa meira

true

Banaslys á Reykjanesbraut í morgun

Einn lést og tveir slösuðust í hörðum árekstri jeppa og fólksbíls á Reykjanesbraut, austan við Brunnhóla, um klukkan sjö í morgun. Í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir að talið sé að annarri bifreiðinni hafi verið ekið yfir á rangan vegarhelming. Sá sem lést var farþegi í annarri bifreiðinni en ekki er hægt að greina…Lesa meira

true

Færðu Akraneskaupstað fjórar milljónir króna til kaupa á hraðamælingastaurum

Aðalfundur var haldinn í Slysavarnadeildinni Líf á Akranesi í gærkvöldi. Eftir venjubundin aðalfundarstörf var tekið á móti gestum sem veittu rausnarlegum gjöfum og styrkjum viðtöku frá félaginu. Akraneskaupsstað voru færðar fjórar milljónir króna að gjöf og er peningurinn eyrnamerktur í þeim tilgangi að koma upp hraðamælingarstaurum á sex stöðum í bæjarfélaginu. Tvær verða við akstursleiðir…Lesa meira

true

Nítján ára piltur lést í Suður-Afríku

Nítján ára íslenskur piltur fannst látinn á vinsælu útivistarsvæði á fjallinu Tafelberg í nágrenni Höfðaborgar í Suður-Afríku um helgina. Talið er að hann hafi látist af slysförum. Hann hét Bjarni Salvar Eyvindsson og var búsettur í Hafnarfirði, en á ættir að rekja á Vesturland. Bjarni var við sjálfboðaliðastörf í Suður-Afríku.Lesa meira