
Hálka, hálkublettir eða snjóþekja er á vegum á Vesturlandi samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Hálka og skafrenningur er á Bröttubrekku. Þá er hvassviðri á Kjalarnesi og vegfarendur hvattir til að aka um með gát.Lesa meira

Hálka, hálkublettir eða snjóþekja er á vegum á Vesturlandi samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Hálka og skafrenningur er á Bröttubrekku. Þá er hvassviðri á Kjalarnesi og vegfarendur hvattir til að aka um með gát.Lesa meira

Strætisvagn á suðurleið á akstursleiðinni Akureyri-Reykjavík lenti útaf þjóðvegi 1 og hafnaði í vegskurði skammt ofan við bæinn Lyngholt í Melasveit laust fyrir klukkan 10 í morgun. Samkvæmt upplýsingum lögreglu voru sjö í bílnum þegar óhappið varð. Nokkrir voru fluttur til læknisskoðunar og þar af einn með sjúkrabíl á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi. Strætisvagninn er…Lesa meira

Konur í Kvenfélagi Ólafsvíkur tóku daginn snemma í gær. Yfir 20 kvenfélagskonur mættu galvaskar í Félagsheimilið Klif klukkan fimm að morgni. Tilefnið var að baka sólarpönnukökur. Kvenfélagið hefur í mörg ár bakað sólarpönnukökur og er þetta ein helsta fjáröflun félagsins. Bakað var á tíu pönnum og bökuðu sumar konurnar á tveimur pönnum í einu. Aðrar…Lesa meira

Leikfélagið Sv1 í Menntaskóla Borgarfjarðar frumsýndi á föstudaginn hið sígilda leikrit Astrid Lindgren um Línu Langsokk. Önnur sýning var síðan á sunnudaginn að viðstöddum Guðna Th Jóhannessyni forseta Íslands, Elizu Reid eiginkonu hans og tveimur yngstu börnum þeirra hjóna. Nánar er fjallað um sýninguna í Skessuhorni sem kemur út í fyrramálið.Lesa meira

Verktakafyrirtækið Stafnafell hóf í vikunni að sturta efni við stöplana á Kolgrafafjarðarbrú. Vegna gríðarmikilla strauma þarna hefur efnið sem fyrir var sópast frá stöplum brúarinnar þannig að þeir standa berskjaldaðir eftir. Fyrir tveimur árum var prófað að sturta 1500 rúmmetrum af efni niður með stöplunum en það hafði lítið að segja og sópaðist burt á…Lesa meira

Algjör mokveiði var í öll veiðarfæri á Snæfellsnesi í dag og fyrsti dagurinn eftir rúmlega tveggja mánaða verkfall sjómanna var vægast sagt gjöfull þeim bátum sem sóttu sjóinn. Dragnótabátar mokfiskuðu og var Steinunn SH til að mynda með 57 tonn sem fékkst í fjórum köstum. Að sögn Óðins Kristmundssonar stýrimanns á Steinunni fengu þeir 29…Lesa meira

Loðnan hefur gengið hratt suður og vestur með landinu síðustu dagana og fremsta gangan var komin meðfram suðausturströnd landsins vestan við Hornafjörð. Á þessu svæði eru nú flest íslensku uppsjávarveiðiskipin að veiðum en þau létu úr höfn strax að afloknu sjómannaverkfalli í gærkvöldi. Að sögn Garðars Svavarssonar framkvæmdastjóra uppsjávarsviðs HB Granda var hrognafyllingin fremst í…Lesa meira

Aðfararnótt fimmtudags í liðinni viku var brotist inn Neðri-Sýrupart, eitt af gömlu uppgerðu húsunum á Safnasvæðinu í Görðum á Akranesi. Þegar starfsfólk kom á vettvang var aðkoman ljót. Búið var að stela nokkrum munum úr húsinu, eyðileggja aðra og allt var á tjá og tundri. „Ef einhver hefur orðið var við mannaferðir á svæði safnsins…Lesa meira

Í janúar nam erlend greiðslukortavelta 17 milljörðum króna samanborið við 12 milljarða í sama mánuði í fyrra. Um er að ræða tæplega helmings aukningu frá janúar 2016. Þó um töluverða aukningu sé að ræða jókst kortaveltan ekki í sama hlutfalli og fjöldi þeirra ferðamanna sem sóttu Ísland heim í mánuðinum. Í samantekt Rannsóknamiðstöðvar verslunarinnar kemur…Lesa meira

Skallagrímur og Snæfell mættust í Vesturlandsslag Domino‘s deildar karla í körfuknattleik í gær. Leikið var í Borgarnesi. Fyrir leikinn voru liðin í 11. og 12. sæti deildarinnar. Skallagrímur hafði 12 stig í næstneðsta sætinu og hefur verið í mikilli baráttu í þéttum pakka í neðri hluta deildarinnar þar sem fá stig skilja fallsæti frá sæti…Lesa meira