Fréttir

true

Viskukýrin verður á fimmtudaginn

Fimmtudaginn 9. febrúar fer fram stærsti viðburðurinn sem Nemendafélag Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri stendur fyrir á ári hverju, Viskukýrin. Þessi bráðskemmtilega spurningakeppni er vinsæl meðal heimamanna, nemenda og gesta og fer að þessu sinni fram í 13. skiptið. Sem fyrr verður Logi Bergmann spyrill og stjórnandi.Lesa meira

true

Blóðsöfnun á Akranesi í dag

Blóðbankabíllinn verður við Ráðhúsið, Stillholti 16-18 á Akranesi í dag, þriðjudaginn 7. febrúar frá kl. 10:00 til 17:00. Þangað eru allir þeir sem geta og mega gefa blóð hvattir til að mæta. Blóðbankinn þarf 70 blóðgjafa á dag til að uppfylla lágmarkslager.Lesa meira

true

Ungt sundfólk af Akranesi keppti í Keflavík

Á laugardag fór fram Speedomót IRB í sundi í Keflavík. Mótið er fyrir 12 ára og yngri. Sundfélag Akraness sendi níu keppendur á þetta skemmtilega mót og stóðu krakkarnir sig allir með prýði. Alls voru 27 bætingar hjá þessu framtíðarsundfólki á Akranesi en bestum árangri náði Ingibjörg Svava Magnúsdóttir sem synti til verðlauna í 100m…Lesa meira

true

Færeyskur línubátur landaði í Ólafsvík

Færeyski línubáturinn Jákup B frá Klakksvík landaði rúmlega 40 tonnum af fiski í Ólafsvík í dag og fór aflinn til sölu í Fiskmarkaði Íslands. Aflinn fékkst í fimm lögnum vestur af Snæfellsnesi. Að sögn Óskars Melsted sölustjóra fékkst gott verð fyrir fiskinn sem var að mestu þorskur. Fengust 345 krónur fyrir kílóið. Óskar sagði í…Lesa meira

true

Leiknir/Skáney efst eftir fyrstu keppni Vesturlandsdeildarinnar

Fyrsta mótið í Vesturlandsdeildinni í hestaíþróttum fór fram í Faxaborg í Borgarnesi á föstudagskvöldið. Það var liðið Leiknir/Skáney sem hlaut Fjórgangs – liðaplattann fyrir bestan samanlagðan árangur, en fyrir liðið kepptu þau Randi Holaker liðsstjóri, Haukur Bjarnason og Konráð Valur Sveinsson. Randi og Haukur riðu til úrslita og höfnuðu þar í öðru og þriðja sæti…Lesa meira

true

„Orðið er laust“ opin þingmannaviðtöl VG

Þingmenn Vinstri hreifingarinnar græns framboðs boða almenning til skrafs og ráðagerða í höfuðstöðvum hreyfingarinnar á Túngötu 14 í Reykjavík einu sinni í mánuði alveg fram á vor. „Þetta er nýmæli í vinnu þingmanna, sem kynnt er í dag á 18. afmælisdegi Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs. Þetta er hugsað til þess að auka gagnsæi og aðgengi…Lesa meira

true

„Tvisvar í sömu fötum! Er það í lagi?“

Á næstu vikum og mánuðum stendur Náttúrustofa Vesturlands fyrir röð opinna fræðsluerinda um fjölbreytt viðfangsefni sem tengjast umhverfi og náttúru. Erindin verða alls tíu og flutt af nokkrum af helstu sérfræðingum landsins um viðkomandi efni, ýmist heimafólki eða gestum. Það verður Borgnesingurinn Stefán Gíslason hjá UMÍS sem ríður á vaðið með fyrirlestri miðvikudagskvöldið 8. febrúar…Lesa meira

true

Hvassir vindstrengir við fjöll

Veðurstofan býst við stormi, 18-25 m/s víða á sunnan- og suðvestanverðu landinu í dag. Gert er ráð fyrir snörpum vindhviðum meðal annars á Kjalarnesi og á veginum við Hafnarfjall, allt að 35 m/s þegar verst lætur um miðjan dag.Lesa meira

true

Hætta með verslunina Dekurblóm

Þær Kirstín Benediktsdóttir og Auður Vestmann opnuðu verslunina Dekurblóm við Dalbraut á Akranesi haustið 2015. Þær hafa nú ákveðið að loka. „Við í Dekurblómum höfum ákveðið að hætta með verslunina vegna ýmissa ástæðna. Við höfum átt frábæran tíma hérna og langar okkur að þakka þeim sem hafa litið inn til okkar kærlega fyrir öll viðskiptin,“…Lesa meira

true

Snæfell fór illa með botnliðið

Heil umferð var leikin í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik um helgina. Snæfell fór illa með botnlið Grindavíkur þegar liðin mættust í Stykkishólmi í gær. Snæfell hafði yfirhöndina allan leikinn og stakk af í síðari hálfleik. Að lokum fór svo að sigur Snæfells var æði stór, 90-59. Nokkuð jafnræði var með liðunum framan af fyrsta…Lesa meira