Fréttir

true

Veðurhæðin nær hámarki fyrir hádegi

Kröpp óveðurslægð gengur um hádegi í dag hratt yfir skammt vestan við landið. Það hvessir verulega suðvestan- og vestanlands upp úr klukkan 9 og  nær veðurhæðin hámarki um hádegi. Reikna má við veðurhæð 23-30 m/s og að vindhraði í hviðum verði staðbundið allt að 40-50 m/s.  Vestantil á Norðurlandi, allt norður í Skagafjörð verður einnig…Lesa meira

true

Hreppti þriðja sætið í Bocuse d‘Or heimsmeistarakeppninni í matreiðslu

Viktor Örn Andrésson keppti fyrir Íslands hönd í heimsmeistarakeppni í matreiðslu, Bocuse d´Or í Lyon í Frakklandi, í lok janúar og hreppti þriðja sætið. Matreiðslumenn frá tuttugu og fjórum löndum taka þátt í keppninni, sem að þessu sinni var haldin í þrítugasta skiptið. Ísland hefur keppt síðan 1999 og alltaf komist í eitt af tíu…Lesa meira

true

Loftorka styrkir Skallagrím

Fulltrúar Loftorku Borgarnesi og Körfuknattleiksdeildar Skallagríms skrifuðu á fimmtudag undir styrktarsamning þess efnis að Loftorka leggur körfuknattleiksdeildinni lið. Fór undirritun samningsins fram fyrir leik Skallagríms og Njarðvíkur í Domino‘s deild karla. „Það er einkar ánægjulegt þegar fyrirtæki eins og Loftorka og fleiri fyrirtæki hér í heimabyggð sjá sér fært að veita slíkan stuðning enda hefur…Lesa meira

true

Víkingur semur við Liberato

Knattspyrnudeild Víkings Ólafsvík og Cristian Martinez Liberato markvörður hafa framlengt samning hans út keppnistímabilið 2017. Á meðfylgjandi mynd er Cristian og Hilmari Hauksson stjórnarmaður að handsala samninginn. „Það er stjórn Víkings mikið ánægjuefni að skrifa undir framlengingu á samningi við Cristian en hann var valinn besti leikmaður félagsins árið 2016. Cristian hefur leikið með Víking…Lesa meira

true

Segja áhrif verkfallsins grafalvarleg

„Stjórn Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga lýsir yfir miklum áhyggjum af þeirri stöðu sem komin er upp í sveitarfélögum allt í kringum landið í tengslum við verkfall sjómanna. Verkfallið hefur nú staðið í u.þ.b. tvo mánuði og er farið að hafa mikil áhrif sem ekki einungis ná til samningsaðila, heldur einnig stöðu landverkafólks og þeirra sem vinna óbein…Lesa meira

true

Jóhanna Fjóla sett forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vesturlands

Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra hefur sett Jóhönnu Fjólu Jóhannesdóttur í starf forstjóra Heilbrigðisstofnunar Vesturlands til eins árs, frá 1. febrúar síðastliðnum. Jóhanna var önnur tveggja umsækjenda sem lögskipuð hæfnisnefnd mat vel hæfa til að gegna starfinu. Jóhanna Fjóla er sett í embættið í fjarveru skipaðs forstjóra, Guðjóns S. Brjánssonar, sem tók sæti á Alþingi að loknum…Lesa meira

true

Eyða í vegaframkvæmdum á Vesturlandi árið 2017

Samkvæmt heimildum Skessuhorns er sú staða nú komin upp að nánast er eyða í nýframkvæmdum við vegagerð á Vesturlandi árið 2017 þrátt fyrir fögur fyrirheit stjórnmálamanna í aðdraganda síðustu kosninga. Fallið hefur verið frá fyrirhuguðum verkefnum sem ráðgerð voru í vegaáætlun ársins þar sem ekki var búið að skrifa undir verksamninga. Meðal þeirra framkvæmda er…Lesa meira

true

Undir aldri og með fölsuð skilríki

Lögreglan á Vesturlandi hafði afskipti af fimm ungmennum sem stödd voru á skemmtistað á Akranesi í vikunni sem leið. Þau höfðu ekki aldur til veru inni á staðnum. Öll reyndust ungmennin vera með röng skilríki í sínum fórum, þ.e. skilríki eldri einstaklinga. Skilríkin voru tekin í vörslu lögreglu og fólkinu ekið heim og rætt við…Lesa meira

true

Lið FVA féll úr keppni

Fjölbrautaskóli Vesturlands sigraði Framhaldsskólann í Austur Skaftafellssýslu með þriggja stiga mun, 23-20, í fyrstu umferð Gettu betur, spurningakeppni framhaldsskólanna og komst því áfram í aðra umferð keppninnar. FVA dróst á móti Menntaskólanum við Hamrahlíð í annarri umferð. Mættust lið FVA og MH í beinni útsendingu á Rás 2 í gær og fór svo að lokum…Lesa meira