Fréttir

true

Einar Margeir bætti Akranesmetið á EM í París

Sundmaðurinn Einar Margeir Ágústsson frá Akranesi náði bestum árangri íslenska keppnishópsins á fyrsta degi Evrópumeistaramótsins í sundi í 50 metra laug, sem fram fer í París. Einar Margeir keppti í 100 metra bringusundi og synti á 1:00,87 mínútu. Þar með bætti hann sinn besta tíma um 36 hundraðshluta úr sekúndu, en fyrra persónulega met hans…Lesa meira

true

Kári sótti stig norður til Dalvíkur

Kári og Dalvík/Reynir skildu jöfn, 1-1, þegar liðin mættust í 16. umferð 2. deildar karla á Dalvíkurvelli síðastliðinn laugardag. Eftir markalausan fyrri hálfleik voru það Káramenn sem brutu ísinn á 52. mínútu þegar Finnbogi Laxdal Aðalgeirsson kom gestunum yfir. Heimamenn neituðu hins vegar að gefast upp og Aires Rodrigo Da Encarnacao Sousa jafnaði metin á…Lesa meira

true

Glæsilegt sumar hjá Eyju Rún á frjálsíþróttavellinum

Frjálsíþróttakonan Eyja Rún Gautadóttir úr Borgarfirði hefur átt afar gott keppnissumar og náð eftirtektarverðum árangri bæði á alþjóðlegum mótum og í Svíþjóð, þar sem hún býr og æfir. Fyrr í sumar tryggði Eyja Rún sér þátttökurétt á EM U18 í Rieti á Ítalíu þegar hún náði lágmarki í sjöþraut. Lágmarkið var 5.200 stig en Eyja…Lesa meira

true

Guðrún Karítas tryggði sér sæti í úrslitum EM

Guðrún Karítas Hallgrímsdóttir, frá Vatnshömrum í Andakíl, tryggði sér í gær sæti í úrslitum sleggjukasts á Evrópumótinu í frjálsíþróttum í Birmingham. Þetta er í fyrsta sinn sem hún kemst í úrslit á stórmóti. Guðrún Karítas kastaði 70,31 metra strax í fyrstu tilraun og reyndist það sjötta lengsta kast forkeppninnar. Tólf keppendur komust áfram í úrslitin.…Lesa meira

true

Umferðin á morgun – gott að hafa varann á

Ekki er vitað hvernig umferðinum Vesturland þróast á morgun. Þegar þetta er skrifað hefst umferðarstýring vegna sólmyrkvans snemma og stendur fram yfir atburðinn. Þetta kemur fram á vef Vegargerðarinnar. Á flestum vegum verður um einstefnu að ræða sem verður aflétt að almyrkva loknum, nema á Örlygshafnarvegi í Patreksfirði, þar verður einstefnu snúið við kl. 18:00. Gera má ráð fyrir…Lesa meira

true

Fjöldi manns mættur á Hellissand

Hátíðin Iceland Eclipse Festival 2026 er að hefjast á Hellissandi og þessi mynd var tekin kl. 6 í morgun af fréttaritara Skessuhorns. Þá var kominn fjöldi manns á svæðið, en alls verða seldir 3333 miðar auk þess sem íbúar á nærsvæði fengu frímiða.Lesa meira

true

Hvalfjarðardagar fram undan með fjölbreyttri dagskrá

Dagskrá Hvalfjarðardaga, sem fram fara dagana 13.–16. ágúst, hefur verið kynnt. Fram undan er fjölbreytt hátíðarhelgi þar sem íbúum og gestum býðst að taka þátt í fjölda viðburða víðs vegar um Hvalfjarðarsveit. Á dagskránni er meðal annars litahlaup á vegum Ungmenna- og íþróttafélags Hvalfjarðarsveitar, heimatónleikar í Skipanesi, útitónleikar með Hreimi og Vigni Snæ í Álfholtsskógi,…Lesa meira

true

Sterkur heimasigur Víkings á Selfossi

Víkingur Ólafsvík vann góðan 2-0 sigur á Selfossi þegar liðin mættust á Ólafsvíkurvelli í 16. umferð 2. deildar karla mánudaginn 10. ágúst. Víkingar voru sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og uppskáru mark á 32. mínútu þegar Ingvar Freyr Þorsteinsson kom boltanum í netið og heimamönnum í 1-0 forystu. Víkingur hafði skapað sér nokkur góð færi…Lesa meira

true

Mikið líf á Hellissandi

Undirbúningur fyrir sólmyrkvann næstkomandi miðvikudag er þessa daganna á fullu. Margir horfa til Hellissands þar sem gestir mæta til þess að njóta væntanlegrar upplifunar, en þar er líka tónlistarhátíðin Iceland Eclipse Festival 2026 að hefjast og stendur hún frá og með morgundeginum og fram til laugardags. Þar mun fjöldi tónlistarmanna koma fram auk annara viðburða.…Lesa meira

true

Danskir dagar í Stykkishólmi

Fjölskyldu- og bæjarhátíðin Danskir dagar hefst í Stykkishólmi hefst næstkomandi miðvikudag og fjallað verður sérstaklega um hana á síðum blaðsins þann dag. Mikil og fjölbreytt dagskrá verður á hátíðinni, sem verður í gangi allt fram til sunnudagsins 16. ágúst. Dönsku dagarnir eru rótgróðinn viðburður og ein elsta bæjarhátíð landsins, enda hefur hún verið haldin í…Lesa meira