Fréttir

true

Boðað til blaðamannafundar vegna nýrra vísbendinga

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur boðað til blaðamannafundar klukkan 17 í dag vegna nýrra vísbendinga í rannsókninni vegna hvarfs Birnu Brjánsdóttur. Sýnt verður beint frá fundinum á landsfjölmiðlum, m.a. á ruv.is. Fyrir skömmu upplýsti Þorsteinn G Gunnarsson upplýsingafulltrúi Landsbjargar að vegna nýrra vísbendinga hefðu leitarhópar verið kallaðir til bækistöðva í Hafnarfirði og í Grindavík og til…Lesa meira

true

Dýrfinna Torfadóttir er Skagamaður ársins 2016

Hefð er fyrir því að á þorrablóti Skagamanna er verðlaunaður Skagamaður ársins. Á gríðarlega fjölmennu og vel heppnuðu þorrablóti sem fram fór í gær var Dýrfinna Torfadóttir gullsmiður útnefnd Skagamaður ársins 2016. Í umsögn um tilnefninguna segir: „Dýrfinna hefur um árabil verið einn dyggasti stuðningsmaður kvennaknattspyrnunnar á Akranesi og stutt stelpurnar í ÍA með margvíslegum…Lesa meira

true

Leit haldið áfram í dag

Um fimm hundruð manns frá björgunarsveitum Landsbjargar víðsvegar af landinu taka í dag þátt í umfangsmikilli leit að Birnu Brjánsdóttur sem saknað hefur verið frá því 14. janúar síðastliðinn. Um sexhundruð manns leituðu í gær meðan bjart var. Gengu aðgerðir vel en ekkert sem tengst getur hvarfi Birnu fannst við leitina. Leitarsvæðið í dag er…Lesa meira

true

Stofna Byggðasamlag Snæfellinga

Sveitarfélögin á Snæfellsnesi hafa ákveðið að stofna Byggðasamlag Snæfellinga. Mun það ná yfir lögbundinn sameiginlegan rekstur sveitarfélaga á Snæfellsnesi, til dæmis Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga en einnig önnur sameiginleg verkefni eins og Byggðasafn Snæfellinga og Hnappdæla, EarthCheck, Jeratún ehf. sem ber ábyrgð á rekstri Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Þá er einnig gert ráð fyrir því að Svæðisgarður…Lesa meira

true

Lögregla kallar eftir myndefni frá sl. laugardagsmorgni

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu beinir þeim vinsamlegu tilmælum til ökumanna bifreiða, sem búa yfir myndavélabúnaði að þeir yfirfari myndefnið í þeirri von að það geti gagnast lögreglu við leit hennar að Birnu Brjánsdóttur. Hér er einvörðungu og aðeins átt við myndefni sem tekið var upp laugardagsmorguninn 14. janúar frá kl. 07 – 11.30. Jafnframt er tekið…Lesa meira

true

Besta ár frá hruni í lambakjötssölu

Innanlandssala á lambakjöti var 5,2% meiri 2016 en árið á undan samkvæmt nýjum tölum Matvælastofnunnar. Alls seldust um 6.800 tonn innanlands í fyrra en salan hefur ekki verið meiri síðan hrunárið 2008. Samdráttur var í sölunni í þrjú ár þar á undan. Þórarinn Ingi Pétursson, formaður Landssamtaka sauðfjárbænda fagnar þessum viðsnúningi en bendir á að…Lesa meira

true

Björgunarsveitir af landsbyggðinni taka þátt í allsherjar leit

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur óskað eftir því við björgunarsveitir Landsbjargar á landsbyggðinni að þær taki þátt í viðtækri leit að Birnu Brjánsdóttur um helgina. Hennar hefur nú verið saknað í tæpa viku. Leitarsvæðið verður allt suðvesturhorn landsins. Leitin mun hefjast í birtingu í fyrramálið en í kvöld er von á björgunarsveitum af landsbyggðinni á höfuðborgarsvæðið…Lesa meira

true

Staða flóttafólks jöfnuð í nýjum samningi ríkis og RKÍ

Stigið hefur verið skref í átt að jöfnun þjónustu við flóttafólk, hvort sem það kemur í boði stjórnvalda eða á eigin vegum. Skrifað hefur verið undir samning milli Rauða kross Íslands og félagsmálaráðuneytisins þar að lútandi. Samningurinn er til þriggja ára og kveður á um hlutverk RKÍ varðandi móttöku, aðstoð og stuðning við flóttafólk sem…Lesa meira

true

Message to America from the home of Leifur Eiríksson

In the year 1000 the Icelandic explorer Leifur Eiríksson set sail from Dalabyggð west across the ocean. After landing in Greenland he sailed on and discoverd America. He realised that the continent was huge, and one of the many landmasses sharing this planet. What Leifur didn‘t know was that 1017 years later the world would…Lesa meira