Fréttir

true

Veira greinist í agúrkurækt á Suðurlandi

Matvælastofnun hefur borist tilkynning um veirusmit á tveimur búum í agúrkurækt á Suðurlandi. Óljóst er hve útbreidd veiran er eða hve mikið tjón getur hlotist af sýkingu á þessum tímapunkti. Matvælastofnun skipuleggur nú sýnatökur til að kanna frekari útbreiðslu og beinir þeim tilmælum til ræktenda að gæta ítrustu smitvarna. Veiran sem um ræðir nefnist cucumber…Lesa meira

true

Útlit fyrir að gjaldtöku verði hætt síðsumars

Hætt verður að innheimta veggjald í Hvalfjarðargöngum í lok sumars, að sögn Gísla Gíslasonar stjórnarformanns Spalar, sem á og rekur göngin. Gísli sagði í samtali við Ríkisútvarpið í dag að þetta væri í takti við það sem samið var um áður en framkvæmdir hófust fyrir rúmum tuttugu árum. Endanleg dagsetning á hvenær yfirtakan fer fram…Lesa meira

true

Lést í umferðarslysi á Kjalarnesi

Karlmaðurinn sem lést í umferðarslysi á Kjalarnesi í gærmorgun hét Einar Þór Einarsson. Einar var 37 ára gamall og búsettur á Akranesi. Hann var ógiftur og barnlaus. Niðurstaða í rannsókn á tildrögum slyssins liggur ekki fyrir.Lesa meira

true

Sjálfsíkveikja í safnhaug

Milli hátíða var Slökkvilið Stykkishólms kallað út að gömlu öskuhaugunum við bæinn.  Í fyrstu var grunur um íkveikju af mannavöldum en í ljós kom að sjálfsíkveikja hafði orðið í moltuhaug sem þar er. Það var því verk fyrir gröfu að komast fyrir glóðina. Sumarliði Ásgeirsson tók meðfylgjandi mynd.Lesa meira

true

Þrettándagleði í Englendingavík í Borgarnesi

Laugardaginn 6. janúar verður Þrettándagleði haldin í Englendingavík í Borgarnesi. Dagskráin hefst klukkan 17:30. Flugeldasýning verður í boði Borgarbyggðar og björgunarsveitanna Brákar og Heiðars. Þá verður fjöldasöngur og jólasveinar mæta auk þess sem boðið verður upp á heitt súkkulaði, smákökur og gleði. Athygli er vakin á því að ekki er leyfilegt að koma með eigin…Lesa meira

true

Þrettándagleði og íþróttamaður ársins

Þrettándabrenna á Akranesi verður á þrettándanum, laugardaginn 6. janúar. Blysför hefst klukkan 17 frá Þjóðbraut 13 og gengið fylktu liði niður á Þyrlupall við Jaðarsbakka. Þar sér Björgunarfélag Akraness um brennuna og flugeldasýningu sem hefst stundvíslega klukkan 17:30. Að lokinni brennu býður Íþróttabandalag Akraness gestum í Íþróttahúsið við Jaðarsbakka þar sem lýst verður kjöri Íþróttamanns…Lesa meira

true

Horft til baka og litið til nýja ársins

Metoo byltingin, frumkvöðlar, ferðalög, barnalán og fleira kemur við sögu hjá viðmælendum Skessuhorns sem rætt var við í blaði vikunnar. Voru ellefu einstaklingar á Vesturlandi fengnir til að líta um öxl, meta liðið ár og spá fyrir um það næsta. Svörin létu ekki á sér standa og voru flestir sammála um að 2017 hafi verið…Lesa meira

true

Umhverfisstofnun varar við svartri starfsemi

Borið hefur á auglýsingum um svarta atvinnustarfsemi á vef- og samfélagsmiðlum að undanförnu. Umhverfisstofnun biður neytendur að vera á varðbergi gagnvart slíku. „Ef þjónusta er sótt til snyrtistofu, til dæmis naglaásetning, er ekki unnt að tryggja að kröfur um aðbúnað, hreinlæti og sóttvarnir séu uppfylltar ef ekki hefur verið sótt um starfsleyfi. Samkvæmt lögum nr.…Lesa meira

true

Tannlækningar barna nú gjaldfrjálsar

Öll börn með skráðan heimilistannlækni eiga nú rétt á gjaldfrjálsum tannlækningum samkvæmt samningi þar að lútandi. Gjaldfrjálsar tannlækningar barna hafa verið innleiddar í áföngum og lauk inneiðingunni 1. janúar síðastliðinn þegar börn yngri en þriggja ára öðluðust rétt samkvæmt samningnum. Samningur Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) og Tannlæknafélags Íslands um tannlækningar barna tók gildi 15. maí 2013.…Lesa meira

true

Hámarksgreiðslur í fæðingarorlofi hækka í 520.000

Hámark greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði til foreldra í fæðingarorlofi hefur verið hækkað sem nemur 20.000 kr. á mánuði. Kveðið er á um hækkanir fæðingarorlofsgreiðslna og fæðingarstyrks í reglugerð Ásmundar Einars Daðasonar félags- og jafnréttismálaráðherra sem tók gildi 1. janúar sl. Ásmundur Einar segir þetta fyrsta skrefið í áformum stjórnvalda um aukinn stuðning við barnafjölskyldur með hækkun…Lesa meira