Fréttir

true

Vilja að Miðhálendisþjóðgarður fái aðsetur á Hvanneyri

Á fundi sveitarstjórnar Borgarbyggðar í síðustu viku var tekin til umræðu skýrsla nefndar Umhverfisráðuneytisins um stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu svo og ályktum Sambands íslenskra sveitarfélaga um sama efni. Sveitarstjórn bókaði vegna þessa enda snertir umræða um þjóðgarð á miðhálendinu Borgarbyggð verulega vegna tengingar sveitarfélagsins við hálendið. „Ljóst er að stofnun miðhálendisþjóðgarðs myndi hafa í för…Lesa meira

true

Snæfellskonur þurftu að lúta í gras á heimavelli

Snæfell tók á móti Breiðabliki í síðustu umferð Domino‘s deildar kvenna fyrir jólafrí. Leikið var í Stykkishólmi á laugardag. Urðu Snæfellskonur að játa sig sigraðar, 66-71, í leik þar sem gestirnir höfðu yfirhöndina lungann úr leiknum. Liðin fylgdust að í upphafi leiks og Snæfell leiddi með einu stigi, 7-6, þegar fyrsti leikhluti var hálfnaður. Þá…Lesa meira

true

Skallagrímskonur lágu gegn Haukum

Skallagrímskonur urðu að játa sig sigraðar gegn Haukum, 84-63, í síðasta leik Domino‘s deildar kvenna fyrir jólafrí. Leikið var á Ásvöllum í Hafnarfirði á laugardag. Mikið jafnræði var með liðunum í upphafi leiks og liðin skiptust á að skora. Skallagrímur leiddi með einu stigi þegar upphafsfjórðungurinn var hálfnaður en eftir það komust Haukakonur í gírinn.…Lesa meira

true

Skallagrímur á toppnum um jólin

Skallagrímur og ÍA mættust í Vesturlandsslag í 1. deild karla í körfuknattleik á fimmtudagskvöld. Leikið var í íþróttahúsinu í Borgarnesi. Eftir nokkuð jafnan fyrri hálfleik tóku heimamenn öll völd á vellinum í þeim síðari og sigruðu örugglega, 127-96. Jafnræði var með liðunum í upphafi leiks en Skallagrímur hafði þó heldur undirtökin. Eftir því sem leið…Lesa meira

true

Langþráð stund þegar fyrstu bæirnir voru tengdir ljósleiðaranum

Fimmtudagurinn 14. desember var stór dagur í fjarskiptamálum í dreifbýli í Snæfellsbæ. Í fallegu veðri voru fyrstu heimilin þá tengd í gegnum nýja ljósleiðarann. Fyrst var tengt hjá þeim Óskari og Sunnu í Vatnsholti. Þaðan var haldið til Kela í Langaholti og tengt þar. Kristinn Jónasson bæjarstjóri Snæfellsbæjar var viðstaddur þegar bæirnir voru tengdir ásamt,…Lesa meira

true

Björgunarsveitin Klakkur fær nýjan bíl í flotann

Björgunarsveitin Klakkur í Grundarfirði fjárfesti nýverið í nýjum björgunarbíl af gerðinni Nissan Patrol. Fyrir átti sveitin tvo Patrol bíla en félagsmenn voru ekki alveg nægjanlega ánægðir með bílinn sem var skipt út fyrir þennan. Þessi er af árgerð 2008 og var breytt af Arctic Trucks árið 2013. Bíllinn er á 44 tommu dekkjum og var…Lesa meira

true

Gert ráð fyrir rekstrarafgangi í fjárhagsáætlun Grundarfjarðarbæjar

Fjárhagsáætlun A- og B-hluta Grundarfjarðarbæjar fyrir árið 2018, ásamt þriggja ára áætlun, var samþykkt á fundi bæjarstjórnar 14. desember síðastliðinn. Á næsta ári eru heildartekjur sveitarfélagsins áætlaðar 1.034,4 m.kr. Laun eru áætluð 535,7 m.kr., önnur rekstrargjöld 347,1 m.kr. og afskriftir 52,8 m.kr. Rekstrarniðurstaða er því jákvæð um 98,8 m.kr., fyrir fjármagnsliði. Fjármagnsgjöld eru áætluð 70,3…Lesa meira

true

Safn lykilorða í umferð á netsíðum tölvuþrjóta

Netöryggissveitin CERT-ÍS hvetur fólk til að huga að lykilorðum sínum á netinu.  Síðustu daga hefur komið í ljós stórt safn lykilorða og notendanafna sem hefur verið í umferð á netsíðum tölvuþrjóta. Mælt er með að hver notandi fari reglulega gegnum alla sína reikninga og herði öryggi, m.a. breyti lykilorðum, a.m.k. þeim sem orðin eru meira…Lesa meira

true

Eldur kom upp í sögufrægu húsi í Borgarnesi

Undir kvöld í gær var allt tiltækt slökkvilið í Borgarnesi kallað út. Eldur logaði þá í íbúð á neðri hæð í húsinu við Skúlagötu 14. Enginn var í íbúðinni þegar eldurinn kom upp. Slökkvistarf gekk vel að sögn Bjarna Kr Þorsteinssonar slökkviliðsstjóra Borgarbyggðar. Allir gluggar í íbúðinni á neðri hæðinni voru lokaðir og því skorti…Lesa meira

true

Umhleyptingar í veðri næstu daga

Spáð er umhleypingum næstu daga. Vegagerðin býst við slyddu, krapa eða snjókomu á fjallvegum á vestanverðu landinu fram eftir degi, svo sem á Fróðárheiði, Bröttubrekku, Holtavörðuheiði og Kleifaheiði. Undir kvöld styttir upp með vestanátt og útgeislun og því gæti myndast ísing á blautum vegum. Um miðnætti í kvöld má svo búast við éljalofti vestantil á…Lesa meira