Fréttir

true

Norðurál fjölgar umhverfisvænum bílum

Norðurál á Grundartanga hefur á þriðja tug rafknúinna farartækja í sinni þjónustu sem flytja starfsmenn og vörur á athafnasvæði álversins. Nú býr fyrirtækið einnig í haginn fyrir vaxandi fjölda starfsmanna sem aka til og frá vinnu á eigin rafknúnum ökutækjum. Í þessu skyni hafa verið sett upp sérstök græn bílastæði með raftenglum á álverslóðinni þar…Lesa meira

true

Julefrokost í nýja heita pottinum

Fastagestir í heita pottinum í Jaðarsbakkalaug á Akranesi tóku daginn snemma í morgun. Mættu með snaps og veitingar í pottinn um sexleytið. Valdimar Hallrímsson, einn pottverja, sagði þetta hafa verið skemmtilega stund, en alls hafi átta manns mætt. Tryggvi Björnsson aldursforsetinn í hópnum komst óvænt, en hann er nýfluttur á Höfða. Fékk hann lykil að…Lesa meira

true

Framkvæmdaár fer í hönd hjá Leynisfélögum á Akranesi

Aðalfundur Golfklúbbsins Leynis var haldinn þriðjudaginn 12. desember síðastliðinn. Á fundinum fór Guðmundur Sigvaldason framkvæmdastjóri yfir skýrslu um starf klúbbsins og þær stórframkvæmdir sem framundan eru á svæðinu, gjaldkeri fór yfir reikninga og framkvæmdastjóri kynnti fjárhags- og rekstraráætlun næsta árs. Fram kom hjá Guðmundi að rekstur Leynis var erfiður rekstrarárið 2017 og lækkuðu rekstrartekjur um…Lesa meira

true

Samstaða í sveitarstjórn um afgreiðslu fjárhagsáætlunar

Fjárhagsáætlun Borgarbyggðar fyrir 2018 og þriggja ára áætlun til 2021 var tekin til síðari umræðu og afgreiðslu á fundi sveitarstjórnar í gær. Fjárhagsáætlunin var samþykkt með níu samhljóða atkvæðum. Gert er ráð fyrir að rekstrarafgangur á næsta ári verði 113 m.kr. hjá A og B hluta sveitarsjóðs. Veltufé frá rekstri er áætlað 379 m.kr. eða…Lesa meira

true

Sigríður Júlía tekur sæti í sveitarstjórn

Eins og nýlega var greint frá í frétt Skessuhorns hefur Ragnar Frank Kristjánsson verið ráðinn sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs Borgarbyggðar. Hann mun samtímis hverfa úr sveitarstjórn þar sem hann hefur verið fulltrúi VG. Á fundi í flokksfélagi VG nýverið var ákveðið að Sigríður Júlía Brynleifsdóttir tekur sæti Ragnars Franks í sveitarstjórn. Varafulltrúi hennar verður Halldóra…Lesa meira

true

Auglýsingafrestur í Jólablað Skessuhorns rennur út í dag

Jólablað Skessuhorns kemur út í næstu viku, miðvikudaginn 20. desember. Það verður að vanda fullt af mannlífstengdu efni; viðtöl, annálar, kveðjur úr héraði, getraunir og m.fl. Auglýsendum er bent á að skilafrestur í Jólablaðið rennur út í dag, föstudaginn 15. desember. Bent er á auglýsingasímann 433-5500 og tölvupóst; auglysingar@skessuhorn.is Ekki kemur út blað milli jóla…Lesa meira

true

Sjúkraflug á Snæfellsnes

Þyrlu Landhelgisgæslunnar var seint í gærkvöldi flogið til móts við sjúkrabíl af Snæfellsnesi og sótti mikið veikan mann sem ekið var til móts við þyrluna. Lenti þyrlan við Vegamót og flutti manninn á Landspítalann þar sem lent var um klukkan 1:30 í nótt. Mbl.is greindi frá.Lesa meira

true

Forsetabíllinn fékk hluta Dalaveganna í nesti

Í opinberri heimsókn forseta Íslands um Dalasýslu í liðinni viku var meðal annars farið fyrir strandir eins og það er kallað, þegar ekið var um Skarðsströnd og Fellsströnd. Vegirnir á þessari leið eru malar- og leirbornir. Í næsta stoppi, sem var í Búðardal, fékk ökumaður forsetans aðstöðu hjá Valdísi Gunnarsdóttur til að skola af bílnum.…Lesa meira

true

Vínlandssetur og Kaja Organic hlutu öndvegisstyrki

Í síðustu viku voru veittir tveir öndvegisstyrkir úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands. Komu þeir í hlut Vínlandsseturs í Búðardal og Kaju Organic á Akranesi. Á haustmánuðum var auglýst eftir hugmyndum að verkefnum sem hlotið gætu öndvegisstyrk úr sjóðnum. Alls bárust tíu tillögur. Var það niðurstaða stjórnar Uppbyggingarsjóðs Vesturlands að velja þrjú verkefni sem fengju stuðning til að…Lesa meira

true

Bræður munu lesa og árita á Landnámssetrinu

Bræðurnir Guðni Líndal og Ævar Þór Benediktssynir munu mæta í Landnámssetrið í Borgarnesi næstkomandi mánudag milli klukkan 18 og 19 og lesa upp úr bókum sínum fyrir börnin. Þeir munu síðan árita bækur og plaköt að lestri loknum. „Upplagt er að mæta aðeins fyrr og ná sér í kakó með rjóma á kaffihúsinu,“ segir í…Lesa meira