Fréttir

true

Dreyramenn vilja reisa reiðskemmu á Æðarodda á næsta ári

Hestamannafélagið Dreyri áformar að reisa reiðskemmu á Æðarodda og hefur leitað stuðnings Akraneskaupstaðar og Hvalfjarðarsveitar vegna fyrirhugaðrar framkvæmdar. Bæjarráð Akraness fjallaði um erindi hestamannafélagsins á fundi sínum 16. nóvember. Tók ráðið jákvætt í erindið og var bæjarstjóra falið að ræða við Hvalfjarðarsveit um frekari úrvinnslu málsins. Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar fjallaði svo um málið á fundi sínum…Lesa meira

true

Hús með gömlu byggingarlagi en þó nýtt flutt á Gilsbakka

Síðastliðinn föstudag var komið að því að flytja húsið sem standa á við Gilsbakka á Hellissandi og koma því fyrir á grunni sínum. Húsið eiga þau Lúðvík Ver Smárason og Anna Þóra Böðvarsdóttir. Smíði hússins hófst árið 2012 og var faðir Lúðvíks, Smári Lúðvíksson byggingarstjóri. Á föstudaginn var húsinu svo lyft upp á trailer flutningabíl…Lesa meira

true

Kalt í veðri framyfir helgi

Veðurstofan spáir köld veðri á landinu framyfir helgi. Nú er spáð norðvestan 8-15 m/s austantil á landinu, en heldur hvassara í fyrstu. Mun hægari vindur um landið vestanvert. Skýjað, en úrkomulítið um landið norðaustanvert, en annars yfirleitt léttskýjað. Þykknar heldur upp með stöku éljum vestanlands þegar líður á kvöldið. Norðlæg átt á morgun 8-15 m/s,…Lesa meira

true

Mikill meirihluti þjóðarinnar les eingöngu eða oftast á íslensku

Miðstöð íslenskra bókmennta lét nýlega gera könnun á viðhorfi þjóðarinnar til bóklesturs, þýðinga og opinbers stuðnings við bókmenntir. „Niðurstöðurnar gefa fullt tilefni til bjartsýni um framtíð bókmenntanna og tungunnar,“ segir í tilkynningu. Fram kemur að samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar les mikill meirihluti þjóðarinnar einungis eða oftar á íslensku en öðrum tungumálum. Meirihluti Íslendinga er sammála þeirri…Lesa meira

true

Haukar lögðu heimamenn í Grundarfirði

Grundarfjörður tók á móti C liði Hauka í íþróttahúsi Grundarfjarðar á miðvikudagskvöldið. Jafnræði var með liðunum til að byrja með og munaði einungis einu stigi eftir fyrsta leikhluta en þá var staðan 19-20 Haukum í vil. Gestirnir mættu grimmir í annan leikhluta og unnu hann með tíu stigum og staðan því 34-45 í hálfleik. Haukarnir…Lesa meira

true

Fótur af klaufdýri fannst í innfluttum spæni

Lífland hefur innkallað spæni frá Staben í Svíþjóð eftir að fótur af klaufdýri fannst í einum bagga síðdegis á mánudag á alifuglabúi hér á landi. Líklega er um fót af dádýri að ræða. „Dýrahræ geta borið með sér smitefni og sem varúðarráðstöfun hefur fyrirtækið innkallað alla sendinguna af spæninum og stöðvað dreifingu,“ segir í tilkynningu…Lesa meira

true

Framkvæmdir hafnar við nýtt fiskvinnsluhús GRun

Það voru skemmtileg tímamót í atvinnulífi Grundfirðinga í gær þegar framkvæmdir hófust við nýtt fiskvinnsluhús Guðmundar Runólfssonar hf. Það var Runólfur Guðmundsson stjórnarformaður fyrirtækisins sem hóf framkvæmdirnar. Fyrsta skóflustungan var reyndar tekin um sjómannadagshelgina síðustu þegar öll börn bæjarins tóku fyrstu skóflustungurnar. Nú var hinsvegar hafist handa við að moka grunninn og eftir að hafa…Lesa meira

true

Hreinsibúnaði ábótavant við fiskþurrkun í Borgarnesi

Fyrirtækið Arctic Protein rekur litla fiskþurrkun sem nú er til húsa í iðnaðarhúsi við Sólbakka 4 í Borgarnesi. Fyrst eftir að verksmiðjan var tekin í notkun var hún við Vallarás. Í verksmiðjunni er einkum unnið próteinduft úr fiskslógi sem fellur til við slátrun á eldislaxi Arnarlax á Vestfjörðum. Fyrirtækið hefur tilskilin starfsleyfi til vinnslunnar en…Lesa meira

true

Umhverfisnefnd samþykkir breytt skipulag vegna skotæfingasvæðis

Meirihluti umhverfis-, skipulags- og landbúnaðarnefndar Borgarbyggðar samþykkti á fundi sínum í gær fyrir sitt leyti breytingu á aðalskipulagi sem heimilar skotæfingasvæði í landi Hamars, ofan við Borgarnes. Tillagan er sett fram á uppdrætti og með greinargerð sem dagsett er 5. desember síðastliðinn. Tillagan tekur til breytingar á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022 þ.e. breyta landnotkun svæðis í…Lesa meira

true

Haldið upp á 100 ára afmæli Umf. Stjörnunnar

Þann 1. desember síðastliðinn voru liðin 100 ár frá stofnun Ungmennafélagsins Stjörnunnar eins og greint var frá í síðasta Skessuhorni. Af því tilefni var boðað til kaffisamsætis í félagsheimilinu Tjarnarlundi um liðna helgi þar sem félagar komu saman og rifjuðu upp skemmtilegar minningar úr starfinu í gegnum tíðina. Þar má nefna sögur af héraðsmótum og…Lesa meira