Fréttir

true

Mikill meirihluti þjóðarinnar les eingöngu eða oftast á íslensku

Miðstöð íslenskra bókmennta lét nýlega gera könnun á viðhorfi þjóðarinnar til bóklesturs, þýðinga og opinbers stuðnings við bókmenntir. „Niðurstöðurnar gefa fullt tilefni til bjartsýni um framtíð bókmenntanna og tungunnar,“ segir í tilkynningu. Fram kemur að samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar les mikill meirihluti þjóðarinnar einungis eða oftar á íslensku en öðrum tungumálum. Meirihluti Íslendinga er sammála þeirri…Lesa meira

true

Haukar lögðu heimamenn í Grundarfirði

Grundarfjörður tók á móti C liði Hauka í íþróttahúsi Grundarfjarðar á miðvikudagskvöldið. Jafnræði var með liðunum til að byrja með og munaði einungis einu stigi eftir fyrsta leikhluta en þá var staðan 19-20 Haukum í vil. Gestirnir mættu grimmir í annan leikhluta og unnu hann með tíu stigum og staðan því 34-45 í hálfleik. Haukarnir…Lesa meira

true

Fótur af klaufdýri fannst í innfluttum spæni

Lífland hefur innkallað spæni frá Staben í Svíþjóð eftir að fótur af klaufdýri fannst í einum bagga síðdegis á mánudag á alifuglabúi hér á landi. Líklega er um fót af dádýri að ræða. „Dýrahræ geta borið með sér smitefni og sem varúðarráðstöfun hefur fyrirtækið innkallað alla sendinguna af spæninum og stöðvað dreifingu,“ segir í tilkynningu…Lesa meira

true

Framkvæmdir hafnar við nýtt fiskvinnsluhús GRun

Það voru skemmtileg tímamót í atvinnulífi Grundfirðinga í gær þegar framkvæmdir hófust við nýtt fiskvinnsluhús Guðmundar Runólfssonar hf. Það var Runólfur Guðmundsson stjórnarformaður fyrirtækisins sem hóf framkvæmdirnar. Fyrsta skóflustungan var reyndar tekin um sjómannadagshelgina síðustu þegar öll börn bæjarins tóku fyrstu skóflustungurnar. Nú var hinsvegar hafist handa við að moka grunninn og eftir að hafa…Lesa meira

true

Hreinsibúnaði ábótavant við fiskþurrkun í Borgarnesi

Fyrirtækið Arctic Protein rekur litla fiskþurrkun sem nú er til húsa í iðnaðarhúsi við Sólbakka 4 í Borgarnesi. Fyrst eftir að verksmiðjan var tekin í notkun var hún við Vallarás. Í verksmiðjunni er einkum unnið próteinduft úr fiskslógi sem fellur til við slátrun á eldislaxi Arnarlax á Vestfjörðum. Fyrirtækið hefur tilskilin starfsleyfi til vinnslunnar en…Lesa meira

true

Umhverfisnefnd samþykkir breytt skipulag vegna skotæfingasvæðis

Meirihluti umhverfis-, skipulags- og landbúnaðarnefndar Borgarbyggðar samþykkti á fundi sínum í gær fyrir sitt leyti breytingu á aðalskipulagi sem heimilar skotæfingasvæði í landi Hamars, ofan við Borgarnes. Tillagan er sett fram á uppdrætti og með greinargerð sem dagsett er 5. desember síðastliðinn. Tillagan tekur til breytingar á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022 þ.e. breyta landnotkun svæðis í…Lesa meira

true

Haldið upp á 100 ára afmæli Umf. Stjörnunnar

Þann 1. desember síðastliðinn voru liðin 100 ár frá stofnun Ungmennafélagsins Stjörnunnar eins og greint var frá í síðasta Skessuhorni. Af því tilefni var boðað til kaffisamsætis í félagsheimilinu Tjarnarlundi um liðna helgi þar sem félagar komu saman og rifjuðu upp skemmtilegar minningar úr starfinu í gegnum tíðina. Þar má nefna sögur af héraðsmótum og…Lesa meira

true

Hlutu umhverfisviðurkenningar Akraneskaupstaðar

Umhverfisviðurkenningar Akraneskaupstaðar 2017 voru veittar síðdegis í gær. Viðurkenningarnar eru veittar einstaklingum og hópum í fjórum flokkum; falleg einbýlishúsalóð, snyrtileg fyrirtækjalóð, hvatningarverðlaun og fyrir tré ársins. Valið fór þannig fram að óskað var eftir tilnefningum frá íbúum og valnefnd fengin til starfa. Hana skipuðu Helena Guttormsdóttir, lektor og brautarstjóri umhverfisskipulags hjá Landbúnaðarháskóla Íslands, Jón Guðmundsson…Lesa meira

true

Sprotafyrirtæki í ferðaþjónustu geta sótt um Startup Tourism

Næstkomandi mánudag rennur út frestur til að sækja um þátttöku í Startup Tourism. Um er að ræða tíu vikna viðskiptahraðal sem sniðinn er að þörfum nýrra fyrirtækja í ferðaþjónustu. Ár hvert eru allt að tíu sérvalin sprotafyrirtæki valin til þátttöku og fá þau tækifæri til að þróa áfram viðskiptahugmyndir sínar undir leiðsögn reyndra frumkvöðla, fjárfesta…Lesa meira

true

Opið í vetur í Samkomuhúsinu á Arnarstapa

Í Samkomuhúsinu á Arnarstapa á Snæfellsnesi er nú í fyrsta skipti reglulegur opnunartími yfir vetrartímann. Opið er mánudaga til laugardaga frá klukkan 12-19, en lokað á sunnudögum. Blaðamaður heyrði í Ólínu Gunnlaugsdóttur framkvæmdastjóra í Samkomuhúsinu. „Við höfum alltaf verið meira og minna með opið yfir vetrartímann en við höfum aldrei verið með svona fastan opnunartíma…Lesa meira