Fréttir

true

Skagamaður Íslandsmeistari í boccia

Íslandsmót einstaklingskeppni í boccia var haldið á vegum Íþróttasambands fatlaðra á Húsavík um liðna helgi. Íþróttafélagið Þjótur á Akranesi sendi níu keppendur á mótið, þar af var Guðmundir Örn Björnsson sem vann sinn riðil og kom heim með gullmedalíuna.Lesa meira

true

Unnið að stefnumótun háls- og bakdeildar HVE í Stykkishólmi

Háls- og bakdeildin í Stykkishólmi var opnuð að loknu sumarleyfi 28. ágúst síðastliðinn og tekur við sjúklingum í endurhæfingu sem fyrr. Á vefsíðu Heilbrigðisstofnunar Vesturlands kemur fram að Hrefna Frímannsdóttir yfirsjúkraþjálfari og fagstjóri endurhæfingar hafi verið sett sem faglegur ábyrgðaraðili deildarinnar. Hrefna vinnur ásamt Hafdísi Bjarnadóttur samskiptafulltrúa í Stykkishólmi að endurskoðun á skipulagi og stefnumótun…Lesa meira

true

Áætlun um uppbyggingu 155 hjúkrunarrýma á landinu

Fyrir liggur ný áætlun heilbrigðisráðherra um byggingu 155 hjúkrunarrýma til ársins 2022 til viðbótar þeim 313 rýmum sem þegar eru á framkvæmdastigi samkvæmt eldri framkvæmdaáætlun. Alls munu því verða byggð eða endurgerð 468 hjúkrunarrými á tímabilinu ýmist til fjölgunar rýma eða til að bæta aðbúnað. Alþingi samþykkti í júní síðastliðnum nýja fjármálaáætlun til næstu fimm…Lesa meira

true

Framkvæmdir við sundlaugina í Borgarnesi

Vegna framkvæmda hjá Orkuveitu Reykjavíkur verður sundlauginni í Borgarnesi lokað kl. 19:30 í kvöld, þriðjudag. Einnig gætu sundlaugar og pottar orðið í kaldara lagi í fyrramálið, miðvikudag, af sömu sökum.Lesa meira

true

Viðburðaskrá Snorrastofu komin út

Skrá um fyrirlestra og viðburði komandi vetrar berst nú heimilum í Borgarfjarðarhéraði. Greinir hún frá dagskrá sem í vændum er á vegum Snorrastofu í Reykholti. Samkvæmt stofnskrá Snorrastofu stuðlar hún m.a. að rannsóknum og veitir fræðslu um norræna sögu og bókmenntir sem tengjast Snorra Sturlusyni og Reykholti og er einnig ætlað að kynna sögu Borgarfjarðarhéraðs…Lesa meira

true

Tíu ára Ugluklettur – það verður kaffi og allt!

Leikskólinn Ugluklettur í Borgarnesi er tíu ára um þessar mundir. Af því tilefni bjóða börnin í skólanum til afmælishátíðar næstkomandi föstudag frá klukkan 13 til 16. Í boðskorti frá þeim segir: „Velkomin í afmæli Leikskólans. Ugluklettur á afmæli. Maður verður að vera kurteis, það verða kökur. Við ætlum að gefa ykkur flotta mynd og það…Lesa meira

true

Briddsspilarar byrjaðir með vetrarstarfið

Félagar í Bridgefélagi Akraness hafa nú komið saman tvisvar í haust yfir spilaborðinu. Spilað er á fimmtudagskvöldum í sal VLFA við Kirkjubraut 40 og hefst spilamennskan klukkan 19:30. Að sögn Einars Guðmundssonar formanns verður næstu fimmtudaga spilaður tvímenningur, stök kvöld. „Allir sem vilja eru velkomnir og áhugasamir hvattir til að mæta. Alltaf er heitt á…Lesa meira

true

Snæfell vann stórsigur á Álftanesi

Snæfell tryggði sér þátttökurétt í 16 liða úrslitum Maltbikars karla í körfuknattleik með öruggum útivallarsigri á 3. deildar liði Álftaness, 72-105, í gær. Snemma leiks var hægt að merkja að Snæfell spilaði tveimur deildum ofar en heimamenn. Um miðjan upphafsfjórðunginn voru Hólmarar komnir með 14 stiga forskot. Álftnesingar klóruðu aðeins í bakkann og minnkuðu forskot…Lesa meira

true

Kristján Björn Íslandsmeistari í einmenning

Kristján Björn Snorrason varð um helgina Íslandsmeistari í einmenningi í bridds. Hlaut hann 57,4% skor. Fast á hæla hans var Sigurjón Harðarson með 57,1% og þriðji Akureyringurinn Frímann Stefánsson með 56,1%. Alls tóku 32 spilarar þátt í mótinu að þessu sinni. Kristján Björn er Skagfirðingur að uppruna, en er vestlenskum spilurum að góðu kunnur, bjó…Lesa meira

true

Skallagrímur vann baráttusigur á Hamri

Skallagrímsmenn gerðu góða ferð austur í Hveragerði á föstudag og sigruðu Hamar, 88-100, í 1. deild karla í körfuknattleik. Skallagrímur byrjaði betur í leiknum og leiddi með sex stigum um miðjan fjórðunginn, 8-14. Þá tóku heimamenn góða rispu, náðu forystunni og höfðu tveggja stiga forskot eftir fyrsta leikhluta, 20-18. Hamarsmenn höfðu undirtökin í öðrum fjórðungi.…Lesa meira