Fréttir

true

Grátlegt tap ÍA í bikarnum

ÍA og mætti úrvaldeildarliði Hattar í Maltbikar karla í körfuknattleik að kvöldi föstudags. Leikurinn fór fram á Akranesi og var jafn og spennandi allt frá fyrstu mínútu. Það var ekki fyrr en á lokametrunum að gestirnir frá Egilstöðum náðu forystunni og stálu sigrinum, 78-85. Skagamenn byrjuðu af krafti og komust í 7-2. Þá tóku gestirnir…Lesa meira

true

Haustfagnaður er nú framundan í Dölum

Félag sauðfjárbænda í Dalasýslu stendur fyrir sínum árlega Haustfagnaði dagana 20. og 21. október næstkomandi. Verður dagskráin með nokkuð hefðbundnu sniði, að sögn Eyjólfs Ingva Bjarnasonar, formanns FSD. „Samkvæmt venju verður sviðaveisla á Laugum í Sælingsdal á föstudagskvöldið, með hagyrðingakvöldi og dansleik með hljómsveitinni Bland á eftir,“ segir Eyjólfur og bætir því við að dúettinn…Lesa meira

true

Göngin verða lokuð í þrjár nætur í þessari viku

Hvalfjarðargöng verða lokuð fyrir umferð í þrjár nætur í þessari viku vegna viðhalds og hreingerningar. Lokað verður aðfararnætur þriðjudags 17., miðvikudags 18. og fimmtudags 19. október frá miðnætti til kl. 6 að morgni. Það er árlegur viðburður í rekstri ganganna að loka þeim í nokkrar nætur að vori og hausti af þessu tilefni. „Lokun nú…Lesa meira

true

Telja brýnt að fjölga lögregluþjónum á Vesturlandi

Á haustfundi SSV sem fram fór í síðustu viku var meðal annars samþykkt ályktun um löggæslu á Vesturlandi. Í greinargerð segir að dulin búseta á Vesturlandi vegna fjölda sumarhúsa, háskólanema, mikillar fjölgunar ferðamanna og uppbyggingar á Grundartanga, kalli á aukna löggæslu á starfssvæðinu. Ástand vega og aukning ferðamanna kallar á stóraukna löggæslu á vegum úti.…Lesa meira

true

Níu framboð í Norðvesturkjördæmi

Framboðsfrestur fyrir alþingiskosningarnar 28. október nk. rann út á hádegi í dag. Að sögn Inga Tryggvasonar formanns yfirkjörstjórnar í NV kjördæmi er búið að yfirfara listana lauslega og segir hann allt líta í fljótu bragði út fyrir að vera eins og til var ætlast, nægilegur fjöldi meðmælenda og slíkt. Níu flokkar bjóða fram í Norðvesturkjördæmi.…Lesa meira

true

Miðflokkurinn kynnir framboðslista í Norðvesturkjördæmi

Miðflokkurinn, nýr flokkur undir forystu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, hefur nú kynnt framboðslista sinn í Norðvesturkjördæmi. Flokkurinn býður fram undir listabókstafnum M. Efsta sæti listans skipar Bergþór Ólason framkvæmdastjóri á Akranesi. Í öðru sæti er Sigurður Páll Jónsson, útgerðarmaður í Stykkishólmi og í þriðja sæti er Jón Þór Þorvaldsson flugstjóri, búsettur í Reykjavík en frá Reykholti…Lesa meira

true

Magnús Þór efstur á lista Flokks fólksins

Flokkur fólksins býður fram í Norðvesturkjördæmi undir listabókstafnum F. Í efsta sæti listans er Magnús Þór Hafsteinsson fv. alþingismaður, fiskifræðingur og rithöfundur á Akranesi. Í öðru sæti er Hjördís Heiða Ásmundsdóttir, húsmóðir í Borgarnesi, í þriðja sæti Júlíus Ragnar Pétursson, sjómaður Patreksfirði, í fjórða sæti Ágúst Heiðar Ólafsson kerfóðrari Akranesi og í fimmta sæti Erna…Lesa meira

true

Íbúðir Íbúðalánasjóðs verði langtímaleiguíbúðir

Þorsteinn Víglundsson, ráðherra húsnæðismála, hefur falið Íbúðalánasjóði að grípa til sérstakra aðgerða vegna erfiðrar stöðu leigjenda. Í nýrri könnun sjóðsins kemur fram að hlutfall fólks á leigumarkaði sé enn að aukast. Í aðgerðunum nú felst að greiðsla húsnæðisbóta mun færast til sjóðsins frá Vinnumálastofnun, sem annast þær nú. Mun sjóðurinn fara í sérstakt átak til…Lesa meira

true

Næturlokanir í Hvalfjarðargöngum í næstu viku

Vegagerðin vekur athygli á því að Hvalfjarðargöng verða lokuð fyrir umferð í þrjár nætur í næstu viku (42. viku) vegna viðhalds og hreingerningar. Lokað verður aðfararnætur þriðjudags 17., miðvikudags 18. og fimmtudags 19. október frá miðnætti til kl. 6 að morgni. Það er árlegur viðburður í rekstri ganganna að loka þeim í nokkrar nætur að…Lesa meira

true

Háskólamenntuðum landsmönnum heldur áfram að fjölga

Háskólamenntuðum landsmönnum á aldrinum 25–64 ára heldur áfram að fjölga en þeir voru rúm 40% landsmanna í fyrra, alls 68.300. Þeim hefur fjölgað stöðugt frá árinu 2010 eða um 7,8 prósentustig. Þeir sem eingöngu hafa grunnmenntun voru 37.200 í fyrra eða 22% í þessum sama aldurshópi. Þeim fækkaði um 3,4 prósentustig frá árinu á undan.…Lesa meira