
Alla jafnan er vorið tími sauðburðar til sveita, þegar grundirnar gróa og lömbin sér una um blómgaða bala. Haustið, aftur á móti, er sá tími þegar kindur og lömb eru sótt af fjalli eftir sumardvöl fram til heiða og upp til dala. Stöku sinnum kemur þó fyrir að einstaka ær fresti sauðburðinum fram á haustið.…Lesa meira








