Fréttir

true

Framkvæmdir við Grundarfjarðarvöll

Grundarfjarðarbær hefur ákveðið að nýta tækifærið á meðan malbikunarframkvæmdir standa yfir á Snæfellsnesi og malbika hluta af hringnum í kringum íþróttavöll bæjarins. Verktakar voru að undirbúa malbikunina þegar ljósmyndara bar að garði en það á að gera hlaupabraut og tilhlaupsbrautir fyrir stökkgryfjur í þessari atrennu. Þetta mun bæta aðstöðuna fyrir frjálsíþróttir til muna en fyrir…Lesa meira

true

Tónlistarhátíðin Tene-Rif endapunktur sumardagskrár í Frystiklefanum

Um liðna helgi fór tónlistarhátíðin Tene-Rif fram í Frystiklefanum í Rifi. Heppnaðist hún mjög vel og fór framúr væntingum skipuleggjenda. 110 miðar seldust á hátíðina og voru um 90 manns á hvoru kvöldi. Á föstudagskvöldið komu fram Rómantíski ástardúettinn, Karlakórinn Heiðbjört, Þrír, Dísa Jakobs og Emmsjé Gauti sem lokaði kvöldinu. Á laugardagskvöldið voru það Gunna…Lesa meira

true

Ráðherra leggur til aðgerðir vegna erfiðleika í sauðfjárbúskap

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir landbúnaðarráðherra kynnti í dag á vef Stjórnarráðsins tillögur sínar til að bregðast við vanda sauðfjárbænda. Meginmarkið þeirra er að draga úr framleiðslu dilkakjöts um 20%, mæta kjaraskerðingu bænda, styðja við sauðfjárbúskap á jaðarsvæðum og gera úttekt á birgðum sauðfjárafurða og afurðastöðvakerfinu. Jafnframt boðar ráðherra að tillögur um aðgerðir og áherslur fara nú…Lesa meira

true

Skagakonur höfðu sigur í Ólafsvík – Víkingskonur fallnar

Víkingur Ó. og ÍA mættust í Vesturlandsslag 1. deildar kvenna í knattspyrnu síðastliðinn laugardag. Leikið var í Ólafsvík þar sem aðstæður til knattspyrnuiðkunar voru ekki þær bestu. Rigning og ekki síst rokið átti eftir að setja verulega mark sitt á leikinn sem Skagakonur sigruðu með tveimur mörkum gegn einu. Heimakonur voru betri í upphafi leiks…Lesa meira

true

Vatnavextir og vegaskemmdir á Jökulhálsi

Stórt skarð kom í veginn upp að Jökulhálsi á Snæfellsnesi síðastliðinn föstudag. Starfsmaður Vegagerðarinnar fór strax til að meta aðstæður og merkti svæðið til að koma í veg fyrir óhöpp. Í ljós kom að vegurinn hafði farið illa á kafla þar sem rör hafði stíflast, flætt yfir og myndast hafði stórt skarð í veginn og…Lesa meira

true

Kári leikur í 2. deild að ári

Lið Kára frá Akranesi tryggði sér sigur í 3. deild karla í knattspyrnu með 2-0 sigri á Einherja á sunnudag. Leikurinn fór fram fyrir troðfullri Akraneshöll, en tæplega 400 manns fylgdust með þegar Káramenn innsigluðu toppsæti deildarinnar og þar með sæti í 2. deild að ári. Það voru þeir Alexander Már Þorláksson og Jón Vilhelm…Lesa meira

true

Lýsa áhyggjum vegna stöðu sauðfjárbænda

“Hreppsnefnd Skorradalshrepps lýsir yfir áhyggjum sínum á stöðu mála er varðar sauðfjárbændur. Hvetur hreppsnefndin því til þess að allir viðkomandi leiti allra leiða til að draga úr þeim skaða sem fyrirséður er,“ segir í ályktun sem hreppsnefnd Skorradalshrepps samþykkti nýverið á fundi sínum.Lesa meira

true

Ferðamenn afvegaleiddir af Google maps

Undanfarna mánuði hafa sumarhúsaeigendur í Kvistáshverfinu í landi Beigalda í Borgarhreppi orðið varir við óeðlilega marga erlenda ferðamenn sem hafa ekið inn í hverfið, skimað í allar áttir, áður en þeir svo stansa og spyrja heimamenn; Hvar er Svignaskarð? Var fólki farið að þykja þetta furðu sæta. Fréttaritari Skessuhorns rannsakaði málið og komst að því…Lesa meira

true

Borgarfjarðarbrú orðin lengsta brú landsins

Í síðustu viku var umferð hleypt á Morsárbrú á Skeiðarársandi og þar með ekki lengur ekið yfir hin 880 metra löngu Skeiðarárbrú. Á vef Vegagerðarinnar er sagt frá því að þegar vatn tók að renna í vestur þegar Vatnajökull tók að hopa. Þar með rann ekki lengur vatn í farveg Skeiðarár og ljóst að ekki…Lesa meira

true

Hægt að sækja um í Íþróttasjóð

Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur auglýst eftir umsóknum um styrki í Íþróttasjóð. Umsóknafrestur er til 2. október næstkomandi. Sjóðurinn er fyrir öll íþrótta- og ungmennafélög, alla þá sem starfa að íþróttamálum og útbreiðslu- og fræðsluverkefni á sviði íþrótta. Á meðal þeirra verkefna sem hlotið hafa styrki úr Íþróttasjóði í gegnum tíðina eru nýtt dómarakerfi fyrir Dansíþróttasamband…Lesa meira