Fréttir

true

Flestir búnir að manna kennarastöður

Flestir grunnskólar landsins hófu nú í ágúst skólaárið fullmannaðir. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunar sem Samband íslenskra sveitarfélaga lét framkvæma. Kennarar skipa 92,5% stöðugilda. Könnunin var gerð eftir miðjan ágúst og bárust svör frá 134 af 155 grunnskólum landsins.Lesa meira

true

Héldu landsfund UVG í Grundarfirði

Landsfundur Ungra vinstri grænna fór fram í Grundarfirði um helgina og lauk á sunnudag. „Á fundinum urðu talsverðar breytingar á stjórn og skipulagi UVG, ýmsir sem hafa verið virkir í starfinu undanfarin ár sóttust ekki eftir endurkjöri og margir nýir setjast því í stjórnir hreyfingarinnar,“ segir í tilkynningu. Tvær stjórnir eru í UVG; framkvæmdastjórn sem…Lesa meira

true

Birgir Leifur sigraði á áskorendamótaröðinni í golfi

Golfarinn Birgir Leifur Hafþórsson fagnaði sínum fyrsta sigri á áskorendamótaröðinni í golfi en mótinu lauk í dag í Frakklandi. Birgir var með sjö högga forskot fyrir lokahringinn og stóð því uppi sem sigurvegari, en fella þurfti niður lokaumferðina sökum úrkomu. Þetta er í fyrsta sinn á löngum ferli Birgis Leifs sem hann nær að sigra…Lesa meira

true

Klippt í þágu krabbameinssjúkra barna á afmæli stofunnar

Það var stuð og stemning á Rakarastofu Gísla við Stekkjarholt á Akranesi í dag, en fagnað er tíu ára afmæli stofunnar. Gísli Guðmundsson hárskeri hefur haldið á skærunum í 27 ár, en tíu ár eru liðin frá því hann hóf starfsemi á Akranesi. Í tilefni dagsins ákvað Gísli að öll innkoma á afmælisdaginn rynni óskipt…Lesa meira

true

Vatnamýs finnast í Blundsvatni í Bæjarsveit

Í fjöruborðinu við Blundsvatn í Bæjarsveit fannst í sumar töluvert af svokölluðum vatnamúsum. Það voru feðginin Björn Björnsson og Gunnhildur dóttir hans í Ásbrún í Bæjarsveit sem fundu þetta fremur óvenjulega fyrirbrigði. Vatnamýs (e. false lake balls) eru nokkuð sérkennilegar kúlur sem myndast þegar mosi eða gróðurleyfar velkjast í ferskvatni vegna ölduhreyfinga eða strauma í…Lesa meira

true

Borgfirðingar sigruðu Skagamenn í pútti sumarsins

Þriðja og síðasta viðuregn eldri borgara úr Borgarbyggð og Akranesi í pútti fór fram á Hamarsvellli við Borgarnes 24. ágúst í blíðskaparveðri. Aldrei hafa fleiri mætt til leiks í þessari keppni eða 49 spilarar. Alls tóku sextíu einstaklingar þátt í mótinu í heild í sumar. Sem fyrr taldi skor sjö bestu hjá hvorum aðila. Keppnin…Lesa meira

true

Óvenjulegur tónlistarflutningur í síðustu messu sumarsins

Næstkomandi sunnudag klukkan 14:00 verður síðasta messa sumarsins í Reykholtskirkju, Höfuðdagsmessa. Við messugjörðina mun Umbra Ensemble, sem fæst við ævaforna og nýja tónlist, sjá um tónlistarflutning. Flutt verða verk eftir Hildigerði af Bingen (1098 – 1179) ásamt öðru. Að sögn séra Geirs Waage sóknarprests var Hildigerður von Bingen abbadís af Benediktsreglu, dulpekingur og tónskáld, ráðgjafi…Lesa meira

true

Hótelviðbygging í Reykholti tekur á sig mynd

Unnið er að stækkun Fosshótels Reykholti og verið að reisa nýbyggingu með 28 hótelherbergjum. Sjálft hótelið var enduropnað í vor eftir gagngerar breytingar innandyra. Nú er unnið að reisingu húseininga sem koma frá Smellinn á Akranesi. Lokið var í síðustu viku að reisa framhlið byggingarinnar, eins og sést á meðfylgjandi mynd sem Björn H Sveinsson…Lesa meira

true

Árgangur ’59 færðu Leyni útibekk að gjöf

Félagar úr 1959 árgangnum á Akranesi gerðu sér glaðan dag síðastliðinn laugardag. Þeir hittust á Garðavelli eftir hádegi, skiptu sér í holl og spiluðu golf, en það er árviss viðburður þessa hóps. Fleira gerir hópurinn sér til skemmtunar og til að slíkt sé mögulegt greiða skólafélagarnir í sjóð til að standa straum af kostnaði við…Lesa meira

true

Allt að fjörutíu prósent íbúða í eigu fólks utan sveitarfélags

Í síðustu viku kom út hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi skýrslan: „Fjarbúar og fasteignamarkaður á landsbyggðunum.“ Fyrirbrigði sem nefnist „fjarbúaspenna“ var í brennidepli í þessarar skýrslu, en til að finna út spennustigið er fjölda annarra heimila deilt með heildarfjölda íbúða í viðkomandi sveitarfélagi. „Önnur heimili eru íbúðir í tilteknu sveitarfélagi sem eru í eigu fjarbúa…Lesa meira