Fréttir

true

Bygging Guðlaugar hefst við Langasand í september

Gengið hefur verið frá samningi milli Akraneskaupstaðar og Ístaks um byggingu Guðlaugar við Langasand. Guðlaug verður heit laug sem verður á þremur hæðum í grjótgarðinum við Langasand. Á fyrstu hæðinni verður grunn vaðlaug, á þeirri næstu heit setlaug og sturtur og á efstu hæðinni útsýnispallur. Samningurinn við Ístak hljóðar upp á 74 milljónir auk þess…Lesa meira

true

Hvalfjarðardagar verða haldnir um helgina

Dagana 25.-27. ágúst fer fram hátíðin Hvalfjarðardagar með veglegri dagskrá. Hátíðin hefur verið haldin frá 2008 en frá 2012 í þeirri mynd sem hún er í dag. „Hátíðin hefur vaxið og dafnað í gegnum árin. Fyrst var um að ræða einn dag en nú er þétt dagskrá alla helgina. Í ár verður hátíðin blanda af…Lesa meira

true

Minnsta atvinnuleysi frá því mælingar hófust

Samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru að jafnaði 201.900 manns á aldrinum 16–74 ára á vinnumarkaði í júlí 2017, sem jafngildir 83,3% atvinnuþátttöku. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 82,5% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 1%. Er þetta lægsta mæling atvinnuleysis frá því að samfelldar mælingar Hagstofunnar hófust árið 2003.Lesa meira

true

Rifjuðu upp gamla daga sextíu árum eftir Íslandsmeistaratitil

Í ágúst árið 1957 urðu Skagamenn Íslandsmeistarar 3. flokks karla í knattspyrnu og varð sami hópur Íslandsmeistari 2. flokks þremur árum síðar ásamt því að kjarni liðsins spilaði með meistaraflokki sama ár þegar félagið var einnig Íslandsmeistari. Á sunnudaginn síðasta voru þessir knattspyrnudrengir saman komnir á Garðakaffi á Akranesi til þess að halda upp á…Lesa meira

true

Aldrei fleiri nýnemar – Háskólinn á Akureyri fullsetinn

Í þessari viku hefja 1.022 nýnemar nám við Háskólann á Akureyri sem er 114 nemendum fleira en árið áður. Langflestir, eða 322, hefja nám í félagsvísindadeild en til hennar telst m.a. nám í fjölmiðlafræði, félagsvísindum, sálfræði og lögreglufræði. Þetta er í annað skipti sem Háskólinn á Akureyri tekur við nemendum í lögreglufræði eftir að mennta-…Lesa meira

true

Útkall vegna elds í lyftara

Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar var kallað út að Grundartanga á þriðja tímanum í dag. Eldur var í lyftara í húsakynnum fyrirtækisins Kratus. Þráinn Ólafsson, slökkviliðsstjóri á Akranesi, segir að engin slys hafi orðið á fólki og var að mestu búið að slökkva eldinn í lyftaranum þegar slökkviliðið bar að garði. Lyftarinn var dreginn út og…Lesa meira

true

Jónas Heiðarr keppir í stærstu barþjónakeppni í heimi

Skagamaðurinn Jónas Heiðarr hóf keppni á World Class barþjónakeppninni í Mexíkóborg síðastliðinn mánudag. Jónas keppir fyrir hönd Íslands en hann vann sér inn þátttökuréttindi á mótið með sigri í undankeppni hér á landi um miðjan júnímánuð. Jónas hefur einbeitt sér að keppninni í nær allt sumar og fór meðal annars í æfingabúðir til Prag fyrr…Lesa meira

true

Stefán Gísli bikarmeistari í skotfimi og á leið á Heimsmeistaramót

Síðastliðinn sunnudag varð Stefán Gísli Örlygsson, Skagamaður og meðlimur í Skotfélagi Akraness, bikarmeistari í leirdúfuskotfimi (skeet). Um er að ræða mótaröð á vegum Skotsambands Íslands og stóð Stefán uppi sem stigahæsti skotmaðurinn með 64 stig af 65 mögulegum. „Sumarið hefur gengið mjög vel hjá mér og ég er sáttur með það í heild. Ég hef…Lesa meira

true

Enn vantar að ráða í stöðu umsjónar- og íþróttakennara

Laugargerðisskóli á Snæfellsnesi er með fámennari skólum landsins. Þrátt fyrir að þar sé bæði leikskóla- og grunnskóladeild er nemendafjöldinn 25. Íbúar í Eyja- og Miklaholtshreppi standa vörð um skólann sinn sem þeir telja sérstöðu þessa öfluga sveitasamfélags. Nú í sumar tók nýr skólastjóri til starfa, Ingveldur Eiríksdóttir. Í Skólablaði Skessuhorns sem kom út í dag…Lesa meira

true

Góð reynsla af Alþjóðlega sumarskólanum á Bifröst

Alþjóðlegi sumarskólinn var haldinn í annað sinn við Háskólann á Bifröst núna í júlímánuði. Í boði voru fjölbreyttar námsgreinar sem lutu að því að þjálfa og styrkja nútíma stjórnunarhætti og leiðtogafærni. Í því fólst m.a. þróun á leiðtogahæfni með áherslu á persónulega færni nemenda og hvernig þeir geti nýtt styrkleika sína til að bæta leiðtogahæfni…Lesa meira