Fréttir

true

Strandveiðisjómenn tóku sig saman og fluttu sjálfir út gám af fiski

Strandveiðimenn landsins eru orðnir þreyttir á lágu fiskverði sem verið hefur allt þetta veiðitímabil. Þeir voru því nokkrir strandveiðimennirnir í Grundarfirði sem tóku sig saman í síðustu viku og prófuðu að flytja aflann sjálfir út til sölu. Alls voru þetta níu bátar sem fluttu út 50 kör eða 15 tonn af fiski í gámi til…Lesa meira

true

Máni efstur ungmenna í fimmganginum

Heimsmeistaramótið íslenska hestsins er nú hafið í Hollandi. Máni Hilmarsson og Prestur úr Borgarnesi áttu góða sýningu í ungmennaflokknum í forkeppni í fimmgangi fyrr í dag. Máni og Prestur fengu 6,43 í meðaleinkunn og eru efstir inn í A úrslit í ungmennaflokki. Máni er eini íslenski keppandinn í ungmennaflokknum í þessari grein. Það er RUV.is…Lesa meira

true

Bændur geta vænst sömu krónutölu og fyrir áratug

„Stjórn Bændasamtaka Íslands lýsir yfir þungum áhyggjum af stöðu sauðfjárræktar í landinu. Þær miklu afurðaverðslækkanir sem boðaðar hafa verið í haust auk seinkana á greiðslum munu valda bændum verulegum vanda á næstu mánuðum. Ljóst er að sauðfjárbændur munu eiga í erfiðleikum með að standa við skuldbindingar sínar,“ segir í ályktun frá stjórn BÍ. Þá segir…Lesa meira

true

Robert Menzel leikur ekki meira með ÍA

Í vetur gekk pólski varnarmaðurinn Robert Menzel til liðs við ÍA. Menzel átti að fylla skarð Ármanns Smára Björnssonar sem lagði skóna á hilluna eftir að hafa meiðst illa undir lok síðasta tímabils. Töluverðar væntingar voru gerðar til Menzels enda hafði hann leikið í pólsku úrvalsdeildinni áður en hann kom til Íslands. Hann náði sér…Lesa meira

true

Vill fund í atvinnuveganefnd vegna bágrar stöðu sauðfjárbænda

Lilja Rafney Magnúsdóttir, alþingismaður Vinstri hreyfingarinnar í Norðvesturkjördæmi, hefur farið þess á leit við formann atvinnuveganefndar Alþingis að boðað verði til fundar í nefndinni við fyrsta tækifæri til að ræða erfiða stöðu sauðfjárbænda sem til er komin vegna yfirlýsinga um lækkun afurðaverðs til þeirra nú í haust. Óskað er eftir því að á dagskrá fundarins…Lesa meira

true

Veðurguðirnir áhrifamiklir í jafntefli Skagamanna

  Það var rok og rigning á Akranesi í gærkvöldi þegar ÍA og KR mættust í 14. umferð Pepsi deildar karla í knattspyrnu. Árni Snær Ólafsson sneri aftur í mark Skagamanna, en hann hefur ekki leikið með liðinu níu mánuði, eða síðan hann sleit krossband í æfingaleik vetur. Garðar Gunnlaugsson var sömuleiðis í byrjunarliðinu, en…Lesa meira

true

Handverkshátíð í kvartöld í Eyjafjarðarsveit

Handverkshátíð á Hrafnagili í Eyjafirði hefur fyrir margt löngu skapað sér sess í hugum landsmanna sem vettvangur þar sem handverksfólk víðs vegar að af landinu kemur saman. Hátíðin fer fram um næstu helgi og er þema hennar að þessu sinni tré. „Við munum gera okkar ástkæra tré hátt undir höfði og höldum hátíð trésins. Sænski…Lesa meira

true

Heldur námskeiðið “Á dauðastundu”

Fullorðinsfræðsla sr. Þórhalls Heimissonar hefst á þessu hausti með námskeiði sem ber heitið „Á dauðastundu.“  Þar verður velt upp spurningunni sem fylgt hefur mannkyni frá örófi alda um hvað það er sem gerist þegar við deyjum. Er þá tilvistin á enda, eða heldur tilvistin áfram í einhverri mynd, og þá hverri? „Á námskeiðinu verður farið…Lesa meira

true

Æfðu notkun þyrlu við slökkvistarf í Skorradal

Áhöfnin á TF-LÍF, þyrlu Landhelgisgæslunnar, æfði í síðustu viku slökkvistörf við Skorradalsvatn með svokallaðri slökkviskjólu (bambi bucket). Á æfingunni var líkt eftir hlutverki þyrlunnar samkvæmt áætlun Almannavarna vegna skógarelda í Skorradal. Alls var skjólan fyllt sex sinnum og vatninu úr henni sturtað úr á fyrirfram skilgreindum stað.Lesa meira

true

Höfði festir kaup á sérbúnum bíl

Dvalar- og hjúkrunarheimilið Höfði á Akranesi festi nýverið kaup á nýjum bíl til farþegaflutninga. Bíllinn er af gerðinni Iveco Daily. Hann getur tekið níu farþega og verður notaður til fólksflutninga í bæjarfélaginu, en Höfði er m.a. með samning við sveitarfélagið um akstur fatlaðra. Að undangengnu útboði í febrúar var gengið frá kaupum á bílnum frá…Lesa meira