
Björgunarsveitir á Vesturlandi voru kallaðar út á laugardaginn vegna konu sem hafði slasast á fæti. Hún hafði verið á göngu við Eldborg á Snæfellsnesi og hrasað í hlíðum gígsins. Talsverðan tíma tók fyrir björgunarsveitir að komast á vettvang sökum fjarlægðar frá þjóðvegi, en björgunarsveitarmenn sem voru staddir nálægt komu fyrstir á vettvang og gátu hafið…Lesa meira








