Fréttir

true

Flæðir yfir stíginn á stórstreymi

Kirkjufell og Kirkjufellsfoss eru ansi vinsælir viðkomustaðir ferðamanna sem fara um Snæfellsnes og það líður ekki sú stund að ekki sé bíll eða ferðamenn við fossinn fagra. Búið er að bæta aðstöðuna töluvert frá því sem áður var og eru fyrirmyndar göngustígar um svæðið. Einn galli er þó á gjöf Njarðar, því þegar stórstreymt er…Lesa meira

true

Malbikað í Grundarfirði

Íbúar á Sæbóli í Grundarfirði voru orðnir langþreyttir á holóttu malbikinu á götunni en ástandið var orðið frekar slæmt. Það var því kærkominn malbiksilmur sem angaði um Sæbólið mánudaginn 31. júlí síðastliðinn þegar að framkvæmdir voru í fullum gangi. Það er fyrirtækið Kraftfag ehf. sem sér um framkvæmdirnar en þeir eru að malbika í Snæfellsbæ…Lesa meira

true

Ók frá Þýskalandi á dráttarvélinni

Óvæntur gestur heimsótti Reykhóladaga á laugardaginn þegar Heinz Prien 61 árs gamall Þjóðverji, ók inn á hátíðarsvæðið á Hanomag R460 dráttarvél með hjólhýsi í eftirdragi og lagði við hlið hinna fornu traktoranna. Hann lagði af stað frá Muggensturm, skammt frá Stuttgart í suðvestur Þýskalandi, hinn 10. júní síðastliðinn, ók sem leið lá norður til Danmerkur…Lesa meira

true

Slasaður ferðamaður á gönguleið við Eldborg

Björgunarsveitir á Vesturlandi voru boðaðar út um klukkan eitt í dag vegna konu sem hafði slasast á fæti og gat ekki gengið. Konan var á göngu við Eldborg á Snæfellsnesi og hrasaði í hlíðum gígsins. Samkvæmt tilkynningu frá björgunarsveitinni tók þó nokkurn tíma að komast á vettvang sökum fjarlægðar frá þjóðvegi. Björgunarsveitarmenn sem voru staddir…Lesa meira

true

Fjögurhundruð skátar sælir og glaðir með dvölina á Akranesi

Frá þriðjudegi til laugardags í síðustu viku voru staddir á Akranesi fjögur hundruð skátar. Ástæðan var sú að hér á landi fór fram eitt stærsta skátamót heims, World Scout Moot, en alls komu til landsins um 5.500 skátar á aldrinum 18-25 ára frá öllum heimshornum. Á Akranesi var komið upp tjaldbúðum á efri hluta tjaldsvæðisins…Lesa meira

true

Þrjú skemmtiferðaskip í Grundarfjarðarhöfn

Fimmtudaginn 27. júlí voru þrjú skemmtiferðaskip staðsett í Grundarfjarðrahöfn. Mikill fjöldi ferðamanna fór upp í rútur og tók hring um Snæfellsnes en einnig var töluverður fjöldi af fólki sem rölti um bæinn og út að Kirkjufellsfossi. Bærinn var þétt setinn af ferðamönnum sem og gestum sem streymdu að vegna bæjarhátíðarinnar „Á Góðri Stund“ sem haldin…Lesa meira

true

Tónleikar á Laugum á sunnudag

„Lífsmyndir í vöku og draumi“ er yfirskrift síðustu tónleikanna á Laugum í Sælingsdal þetta sumarið. Þar munu Björg Þórhallsdóttir og Hilmar Örn Agnarsson leika uppáhalds lögin sín í eigin útsetningum og útfærslum. Á dagskrá eru íslensk sönglög og þjóðlög í bland við þekktar klassískar perlur. Tónleikarnir eru á Hótel Eddu á Laugum og hefjast kl.…Lesa meira

true

Upplýsingamiðstöð opnuð á Breiðabliki

Laugardaginn 22. júlí síðastliðinn var opnuð upplýsingamiðstöð um Snæfellsnes í félagsheimilinu á Breiðabliki á sunnanverðu Snæfellsnesi. „Að opna upplýsingamiðstöð við þennan aðal inngang inn á Snæfellsnes er gömul hugmynd. Það eru þrjár leiðir inn á Snæfellsnes og flestir okkar gesta koma þessa leið,“ segir Ragnhildur Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Svæðisgarðsins í samtali við Skessuhorn. Hún bætir því…Lesa meira

true

Vesturlandsvegur lokaður vegna umferðaslyss

Vesturlandsvegur, norðan við Hvalfjarðargöng er lokaður vegna umferðaslyss. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Vesturlandi. Ekki er vitað hve lengi vegurinn verður lokaður, lögreglan bendir á hjáleið um Akrafjallsveg.   Uppfært: Vesturlandsvegur hefur verið opnaður á ný.Lesa meira

true

Bikarmót Vesturlands fór fram á laugardag

Bikarmót Vesturlands var haldið í Stykkishólmi síðastliðinn laugardag. hér að neðan fara helstu úrslit mótsins ásamt myndum. Ekki hafði enn verið verið reiknað út og tilkynnt um hvaða hestamannafélag sigraði í keppni félaga í bikarmótinu þegar Skessuhorn fór í prentun.   TÖLT T3 Opinn flokkur – 1. flokkur Siguroddur Pétursson og Eldborg frá Haukatungu Syðri…Lesa meira