Fréttir

true

Unglingalandsmót á Egilsstöðum um verslunarmannahelgi

Unglingalandsmót Ungmennafélags Íslands er árviss viðburður á verslunarmannahelgi, ætlað ungmennum á aldrinum 11 til 18 ára. Mótið var fyrst haldið á Dalvík árið 1992 og því verður mótið í ár 25 ára afmælismót. Jafnframt verður það tuttugasta árlega mótið, en fyrst um sinn var unglingalandsmót haldið á tveggja ára fresti. Mótshaldari Unglingalandsmóts UMFÍ 2017 er…Lesa meira

true

Fjögurhundruð skátar mættir á Akranes

Um miðjan dag komu um fjögurhundruð skátar til Akraness og munu þeir dvelja á efri hluta tjaldsvæðisins í Kalmansvík fram á laugardag. Ástæða komu skátanna er sú að eitt stærsta skátamót heims, World Scout Moot, fer fram á Íslandi í þessari viku en það sækja 5.500 skátar frá öllum heimshornum á aldrinum 18-25 ára. Skagamenn…Lesa meira

true

Gestasýning í Frystiklefanum í kvöld

Í kvöld klukkan 20:00 verður í Frystiklefanum í Rifi boðið upp á gestasýningu sem ber heitið Kvöldvaka. Sýningin er blanda af íslenskum þjóðlögum og sögum sem blandast saman í klukkustundarlöngu prógrammi af tónlist, leiklist og fjöri. Sýningin er að mestu á ensku og hentar því ferðamönnum vel. Sýningin hefst klukkan 20:00 og er miðaverð 2500…Lesa meira

true

Víkingur mætir Val í kvöld

Víkingur Ólafsvík hefur verið á góðu skriði í Pepsideildinni að undanförnu. Liðið hefur sigrað þrjá af síðustu fjórum leikjum, gegn Stjörnunni, FH og ÍA. Víkingur á heimaleik gegn Val í kvöld og getur með sigri í þeim leik getur Víkingur komist í fimmta sæti deildarinnar og þar með í baráttuna um sæti í Evrópudeildinni að…Lesa meira

true

Hafna því að slökkt verði á Kirkjuhólsvita

Hafnasamband Íslands og Vegagerðin hefur sent hlutaðeigandi sveitarfélögum beiðni um umsagnir þar sem lagt er til að lagðir verði niður sjö vitar við strendur landsins. Hér á Vesturlandi er lagt til að Kirkjuhólsviti á sunnanverðu Snæfellsnesi verði aflagður. Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar nýverið var erindinu svarað á þá lund að Borgarbyggð teldi ekki tímabært að…Lesa meira

true

Ítrekuð skemmdarverk við sturtur

Á vef Akraneskaupstaðar kemur fram að ítrekuð skemmdarverk hafi verið unnin við sturturnar á Langasandi að undanförnu. Starfsmenn Akraneskaupstaðar líta málið mjög alvarlegum augum þar sem hefur skapast slysahætta á svæðinu. Skemmdarvargarnir hafa rifið upp og fjarlægt mottur og verður svæðið því mjög hált auk þess sem boltar sem nýttir eru sem festingar fyrir motturnar…Lesa meira

true

Litháískir bræður til liðs við Víking Ólafsvík

Íslenski félagaskiptaglugginn er opinn um þessar mundir í fótboltanum. Vesturlandsliðin hafa verið róleg á markaðnum síðan hann opnaðist en nú hefur Víkingur Ólafsvík bætt við sig tveimur leikmönnum frá Litháen, réttara sagt tveimur bræðrum. Eivinas og Gabrielius Zagurskas munu leika með liðinu út tímabilið. Eivinas er 27 ára miðjumaður sem lék síðast hjá norska C-deildar…Lesa meira

true

Landsleikur á Akranesi á laugardaginn

Íslenska karlalandsliðið í körfuknattleik undirbýr sig þessa dagana fyrir Evrópumótið í körfuknattleik sem hefst í Finnlandi 31. ágúst næstkomandi. Liður í undirbúningi liðsins eru tveir vináttulandsleikir gegn Belgum hér heima. Sá fyrri fer fram í Kópavogi á fimmtudag en Seinni leikurinn verður spilaður í á Akranesi laugardaginn 29. júlí næstkomandi. Leikið verður í íþróttahúsinu við…Lesa meira

true

Gufuá er lítil en kná

„Við fjölskyldan áttum stöng í Gufuá í Borgafirði fyrir skömmu og það var sannarlega gaman,“ sagði Gunnar Örn Pétursson er við heyrðum í honum um veiðina í þessari litlu en fallegu á sem oft gefur þokkalega bæði af silungi og laxi. „Fyrri vaktina áttum við svæði fjögur og niður að ós,“ segir Gunnar. „Við veiddum…Lesa meira

true

Aldrei of seint að hreyfa sig!

Félag áhugafólks um íþróttir aldraðra – FÁÍA – hefur unnið að íþróttum og leikjum fyrir eldri borgara í áratugi. Haldin hafa verið fjölmörg námskeið fyrir leiðbeinendur í Reykjavík og á Laugarvatni og kynningar hafa verið á léttum æfingum og leikjum á 50 stöðum á landinu. Nú stendur til að halda leiðbeinendanámskeið 14. ágúst nk. Að…Lesa meira