Fréttir

true

Keyptu Laxárbakka og eru byrjuð starfsemi

Hjónin Brynjar Sigurðarson og Hekla Gunnarsdóttir festu nýverið kaup á ferðaþjónustunni að Laxárbakka í Hvalfjarðarsveit. „Samningarnir voru undirritaðir 20. júní og þá tókum við formlega við rekstri staðarins,“ sagði Brynjar þegar Skessuhorn hitti hann að máli á Laxárbakka í liðinni viku. „Ég hef verið bankastarfsmaður meira og minna síðan árið 2000. Mig langaði að breyta…Lesa meira

true

Kauptilboð komin í tvær fasteignir á Bifröst

Tveir einstaklingar hafa fyrir hönd óstofnaðs hlutafélags gert aðskilin og bindandi kauptilboð í tvær stærstu fasteignirnar á Bifröst; þrjár hótelhæðir í húsinu Hamragörðum og fasteignina Sjónarhól sem stendur fremst í háskólaþorpinu. Vilhjálmur Egilsson rektor á Bifröst staðfestir þetta í samtali við Skessuhorn. Hann segir að nú hafi þessir bjóðendur mánaðarfrest til að ljúka fjármögnun þannig…Lesa meira

true

Réttardagar í Borgarbyggð

Réttardagar í Borgarbyggð hafa nú verið ákveðnir og birtir á heimasíðu sveitarfélagsins. Sem kunnugt er var á vormánuðum ákveðið að flýta réttum víða í sveitarfélaginu um eina viku, eins og reyndar víðar á landinu. Þar með er rofin áratuga og sums staðar aldagömul hefð um réttardaga í sveitarfélaginu. Er þetta gert til að koma til…Lesa meira

true

Fræðsluskilti afhjúpuð á Hvanneyri

Síðastliðinn föstudag voru afhjúpuð átta fræðsluskilti um húsin á Hvanneyrartorfunni. Eru þau ætluð til fróðleiks og yndisauka fólks á göngu um gömlu bæjartorfuna. Texti skiltanna er á tveimur tungumálum; íslensku og ensku. Verkið unnu Bjarni Guðmundsson og Sólrún Halla Bjarnadóttir fyrir Ungmennafélagið Íslending og Landbúnaðarsafn Íslands. Nutu þau aðstoðar Jóhannesar Ellertssonar, Þórunnar Eddu Bjarnadóttur, Ísgeirs…Lesa meira

true

Þreyttur á ágangi búfjár í skógræktarlandi sínu

Allt frá árinu 1968 hefur Guðmundur B Guðmundsson læknir átt hlut í jörðinni Grjóteyri, en hún nær yfir land frá Hafnarfjalli og að Borgarfirði, í austri frá jörðinni Árdal og vestur að landi Hafnar. Upphaflega kaupir Guðmundur jörðina í félagi við tvo aðra, en henni var skipt fyrir nokkrum árum og á hefur hann nú…Lesa meira

true

“Forréttindi að fá að upplifa svona mót”

„Að spila fyrir Ísland og Íslendinga er það skemmtilegasta sem ég geri og ég tala nú ekki um þegar vel gengur, þá er það besta tilfinning í heimi,“ segir Skagakonan Hallbera Guðný Gísladóttir sem nú er á leið á sitt annað stórmót í knattspyrnu, EM 2017. Í viðtali í Skessuhorni í dag segist Hallbera vera…Lesa meira

true

Carmen Tyson-Thomas gengur til liðs við í Skallagrím

Í vikunni sem leið bárust mikil tíðindi úr herbúðum Skallagríms sem undirbýr sig nú fyrir sitt annað tímabil í Domino‘s deild kvenna í körfu. Skallagrímur tilkynnti þá að Carmen Tyson-Thomas hafi skrifað undir samning við félagið. Carmen þarf vart að kynna fyrir þeim sem fylgjast með körfubolta á Íslandi. Hún hefur leikið síðustu tvö tímabil…Lesa meira

true

Langveik stúlka skoðaði Akranesvita í draumaferðinni

Í maí setti Margrét Inga Gísladóttir stöðufærslu á Facebook þar sem hún óskaði eftir hugmyndum að ódýrum ferðum til að sýna erlendum gestum sem myndu dvelja á Íslandi 6.-9. júlí. Ástæða færslunnar var sú að langveik stúlka frá Bandaríkjunum, Emily, ásamt móður sinni var á leið til landsins. Emily er með sjaldgæfan sjúkdóm, Cystic Fibrosis,…Lesa meira

true

Tónlistarmyndband tekið upp á Akranesi

Síðasta sunnudag fóru fram upptökur á tónlistarmyndbandi fyrir lagið Keep on. Lagið er eftir Red Robertsson, en ásamt honum semur Viðar Engilbertsson textann og Stefanía Svavarsdóttir syngur. Red Robertsson er listamannsnafn Borgnesingsins Inga Björns Róbertssonar, eða Idda Bidda eins og hann er betur þekktur, og er lagið fyrsta frumsamda lagið sem hann gefur út undir…Lesa meira