
Snorrastofa býður til afmælishátíðar næstkomandi laugardag 15. júlí í Reykholti. Tilefnið er 70 ára afmæli Snorrastyttunnar sem Norðmenn gáfu Íslendingum. „Fullyrða má að einhver merkasti viðburður í sögu héraðsins á seinni tímum hafi verið afhending Snorrastyttunnar í júlímánuði 1947, en þá var haldin fjölmennasta þjóðhátíð í sögu héraðsins. Hátíðarhöldin 1947 voru í undirbúningi í áratugi…Lesa meira








