Fréttir

true

Róstur innan Neytendasamtakanna leiðir til afsagnar formanns

Ólafur Arnarson formaður Neytendasamtakanna hefur sagt af sér. Það gerir hann í kjölfar harðra ásakana sem á hann hafa verið bornar af öðru stjórnarfólki. „Engum sem fylgst hefur með ágreiningi innan stjórnar Neytendasamkanna getur dulist að hann hefur laskað ímynd þeirra. Engum sem til samtakanna þekkir getur heldur dulist að um margra ára skeið hafa…Lesa meira

true

ÍA mætir Víkingi R. – Frítt á völlinn

ÍA mætir Víkingi R. í Pepsi deild karla í knattspyrnu í kvöld. ÍA vermir í augnablikinu botnsæti deildarinnar með átta stig en getur með sigri í kvöld lyft sér upp í 8. sætið og þar með úr fallsæti. Gestirnir eru í 5. sæti og hafa verið á góðum skriði undanfarnar vikur. Leikurinn hefst kl. 20…Lesa meira

true

Björn Bergmann að gera góða hluti í Noregi

Skagamaðurinn Björn Bergmann Sigurðarson hefur leikið frábærlega það sem af er tímabili með liði sínu Molde í Noregi. Nú er fyrri umferð mótsins lokið ytra og er Molde sem stendur í þriðja sæti með 27 stig en Rosenborg er í efsta sæti með 32 stig. Björn Bergmann hefur verið duglegur að skora og er næstmarkahæsti…Lesa meira

true

Breytingar í yfirstjórn Norðanfisks á Akranesi

Pétur Þorleifsson framkvæmdastjóri Norðanfisks ehf. á Akranesi síðastliðin 12 ár hefur sagt upp störfum og hyggst finna sér nýjan starfsvettvang. Norðanfiskur sérhæfir sig í fullvinnslu sjávarafurða til stóreldhúsa og í neytendapakkningar. Í tilkynningu frá HB Granda, sem á Norðanfisk, kemur fram að Sigurjón Gísli Jónsson taki við starfi framkvæmdastjóra í byrjun ágúst. Hann er sjávarútvegsfræðingur…Lesa meira

true

Bryndís mun ekki spila með Snæfelli í vetur

Landsliðskonan Bryndís Guðmundsdóttir, sem undanfarin ár hefur leikið með Snæfelli í meistaraflokki kvenna í körfu, mun ekki spila með liðinu í vetur þar sem hún á von á barni í janúar. Karfan.is greinir frá. „Ég kem ekki til með að spila í það minnsta á komandi tímabili þar sem ég er ólétt,“ segir Bryndís í…Lesa meira

true

Naumur meirihluti hlynntur sameiningu

Dagana 22. júní til 6. júlí síðastliðinn var opið fyrir vefkönnun um hvort íbúar Stykkishólms, Grundarfjarðar og Helgafellssveitar væru hlynntir því að sveitarfélögin sameinist. Í sveitarfélögunum þremur er samanlagður íbúafjöldi 2.089 manns og var könnuninni svarað af 381. Því ber að hafa í huga að skekkjumörk eru talsvert mikil. Á vef ruv.is kemur fram í…Lesa meira

true

Víkingar unnu frækinn sigur á FH

Víkingur Ó. vann frækinn sigur á Íslandsmeisturum FH þegar liðin mættust í Kaplakrika í Hafnarfirði á föstudagskvöld. Nokkuð jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en leikurinn nokkuð bragðdaufur. Hvorugu liðinu tókst að skapa sér ákjósanleg marktækifæri og fyrir vikið var markalaust þegar flautað var til hálfleiks. En það átti eftir að breytast. Síðari hálfleikur…Lesa meira

true

Jarðareigandi sýknaður af kröfu um greiðslu fjallskila

Héraðsdómur Vesturlands hefur sýknað eiganda jarðarinnar Sólheimatungu í Stafholtstungum í Borgarfirði af kröfu sem sveitarfélagið Borgarbyggð höfðaði til greiðslu ógreidds fjallskilagjalds. Í málinu var þess krafist að stefnda verði gert að greiða fjallskilagjald vegna jarðarinnar fyrir árin 2012 til 2014, sem lagt hafi verið á hann samkvæmt heimild í lögum um afréttarmálefni, fjallskil og fleira.…Lesa meira

true

Grundfirskar kvenfélagskonur gáfu stórgjöf á Landspítalann

Föstudaginn 7. júlí síðastliðinn afhentu kvenfélagskonurnar Sólrún Guðjónsdóttir og Mjöll Guðjónsdóttir, formaður Gleym mér ei í Grundarfirði, krabbameinsdeild Landspítala háskólasjúkrahúss veglega gjöf. Gjöfin samanstendur af fjórum 32 tommu sjónvarpstækjum sem sett verða á tveggja manna stofur á deildinni og tveimur 50 tommu tækjum sem fara á eins manns stofur. Kvenfélagið færði deildinni auk þess veggfestingar…Lesa meira

true

Uppfærð frétt – Grindhvalir í sjálfheldu við Rif

Grindhvalavaða með um 100 hvölum, sem fyrr í dag var stuggað frá fjörunni við Ólafsvík, er nú komin að landi rétt austan við Rif, nánast við hafnargarðinn. Hvalirnir eru ráðvilltir og sækja fast í land. Einhverjir þeirra eru samkvæmt lýsingu sjónarvotta særðir. Verið er að reyna að stugga hölunum til hafs á ný á björgunarbát…Lesa meira