Fréttir

true

Breytingar í yfirstjórn Norðanfisks á Akranesi

Pétur Þorleifsson framkvæmdastjóri Norðanfisks ehf. á Akranesi síðastliðin 12 ár hefur sagt upp störfum og hyggst finna sér nýjan starfsvettvang. Norðanfiskur sérhæfir sig í fullvinnslu sjávarafurða til stóreldhúsa og í neytendapakkningar. Í tilkynningu frá HB Granda, sem á Norðanfisk, kemur fram að Sigurjón Gísli Jónsson taki við starfi framkvæmdastjóra í byrjun ágúst. Hann er sjávarútvegsfræðingur…Lesa meira

true

Bryndís mun ekki spila með Snæfelli í vetur

Landsliðskonan Bryndís Guðmundsdóttir, sem undanfarin ár hefur leikið með Snæfelli í meistaraflokki kvenna í körfu, mun ekki spila með liðinu í vetur þar sem hún á von á barni í janúar. Karfan.is greinir frá. „Ég kem ekki til með að spila í það minnsta á komandi tímabili þar sem ég er ólétt,“ segir Bryndís í…Lesa meira

true

Naumur meirihluti hlynntur sameiningu

Dagana 22. júní til 6. júlí síðastliðinn var opið fyrir vefkönnun um hvort íbúar Stykkishólms, Grundarfjarðar og Helgafellssveitar væru hlynntir því að sveitarfélögin sameinist. Í sveitarfélögunum þremur er samanlagður íbúafjöldi 2.089 manns og var könnuninni svarað af 381. Því ber að hafa í huga að skekkjumörk eru talsvert mikil. Á vef ruv.is kemur fram í…Lesa meira

true

Víkingar unnu frækinn sigur á FH

Víkingur Ó. vann frækinn sigur á Íslandsmeisturum FH þegar liðin mættust í Kaplakrika í Hafnarfirði á föstudagskvöld. Nokkuð jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en leikurinn nokkuð bragðdaufur. Hvorugu liðinu tókst að skapa sér ákjósanleg marktækifæri og fyrir vikið var markalaust þegar flautað var til hálfleiks. En það átti eftir að breytast. Síðari hálfleikur…Lesa meira

true

Jarðareigandi sýknaður af kröfu um greiðslu fjallskila

Héraðsdómur Vesturlands hefur sýknað eiganda jarðarinnar Sólheimatungu í Stafholtstungum í Borgarfirði af kröfu sem sveitarfélagið Borgarbyggð höfðaði til greiðslu ógreidds fjallskilagjalds. Í málinu var þess krafist að stefnda verði gert að greiða fjallskilagjald vegna jarðarinnar fyrir árin 2012 til 2014, sem lagt hafi verið á hann samkvæmt heimild í lögum um afréttarmálefni, fjallskil og fleira.…Lesa meira

true

Grundfirskar kvenfélagskonur gáfu stórgjöf á Landspítalann

Föstudaginn 7. júlí síðastliðinn afhentu kvenfélagskonurnar Sólrún Guðjónsdóttir og Mjöll Guðjónsdóttir, formaður Gleym mér ei í Grundarfirði, krabbameinsdeild Landspítala háskólasjúkrahúss veglega gjöf. Gjöfin samanstendur af fjórum 32 tommu sjónvarpstækjum sem sett verða á tveggja manna stofur á deildinni og tveimur 50 tommu tækjum sem fara á eins manns stofur. Kvenfélagið færði deildinni auk þess veggfestingar…Lesa meira

true

Uppfærð frétt – Grindhvalir í sjálfheldu við Rif

Grindhvalavaða með um 100 hvölum, sem fyrr í dag var stuggað frá fjörunni við Ólafsvík, er nú komin að landi rétt austan við Rif, nánast við hafnargarðinn. Hvalirnir eru ráðvilltir og sækja fast í land. Einhverjir þeirra eru samkvæmt lýsingu sjónarvotta særðir. Verið er að reyna að stugga hölunum til hafs á ný á björgunarbát…Lesa meira

true

Grindhvölum stuggað frá landi

Um hundrað grindhvalir gerðu sig líklega til að synda á land við Bug, austan við Ólafsvík um nónbil í dag. Þá höfðu þeir verið á svæðinu frá því í morgun. Gúmmíbátur frá björgunarsveitinni Lífsbjörgu var fenginn á svæðið og náðu skipverjar á honum að stugga við hvölunum þannig að þeir syntu til hafs, áleiðis út…Lesa meira

true

Hvalavaða við Bug á Snæfellsnesi

Áætlað er að um hundrað hvalir séu í einhvers konar sjálfheldu við Bug, austan við Ólafsvík á Snæfellsnesi. Fólk á vettvangi telur líklegt að hér séu grindhvalir á ferð. Von er á slöngubáti frá björgunarsveitinni Lífsbjörgu og á að freista þess að stugga hvölunum frá landi. Fjöldi fólks fylgist með vöðunni úr landi.Lesa meira

true

Nafn konunnar sem lést í hlíðum Kirkjufells

Fréttavefurinn mbl.is hefur greint frá nafni konunnar sem hrapaði til bana í fjallgöngu í Kirkjufelli við Grundarfjörð síðastliðinn föstudag. Konan hét Agata Bornikowski, fædd árið 1974 í Póllandi. Hún var á ferðalagi hér á landi ásamt eiginmanni og öðru pari. Slysstaðurinn er í sunnanverðum hlíðum Kirkjufells en áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar náði að hífa konuna upp…Lesa meira