Fréttir

true

Aldrei meiri umferð í júní

Umferð um Hvalfjarðargöng í júní jókst um rúmlega 11% frá sama mánuði í fyrra. Er það langmesta umferð í júnímánuði frá opnun ganganna árið 1998, en tæplega 8.900 ökutæki óku að jafnaði um göngin á sólarhring. Á heimasíðu Spalar er greint frá því að umferðarmet hafi verið slegið í öllum mánuðum það sem af er…Lesa meira

true

Valdís Þóra fyrst íslenskra kylfinga á Opna bandaríska

Valdís Þóra Jónsdóttir kylfingur Golfklúbbsins Leynis er kominn inn á Opna bandaríska mótið sem er eitt fimm risamóta í kvennagolfinu og það golfmót kvenna þar sem verðlaunafé er hæst, eða hálfur milljarður króna alls. Valdís Þóra er sem stendur á Tælandi þar sem hún var að keppa en heldur nú til Bandaríkjanna til að taka…Lesa meira

true

Makrílveiðar hafnar austan við land

Makrílveiðar nokkurra uppsjávarveiðiskipa eru nú hafnar og fara vel af stað. Í veiðunum taka meðal annarra þátt Venus NS og Víkingur AK, nýju skip HB Granda, en auk þess Huginn VE. Stóru skipin eru flest enn á kolmunnaveiðum. Makríllinn heldur sig austan við landið. Venus var í gær á Papagrunni en Víkingur var þá að…Lesa meira

true

Áætla að ljúka malbikun í kvöld í Melasveit

Í kvöld er stefnt á að ljúka malbiksvinnu í Melasveit í Borgarfirði. Unnið er við malbikun vegarins frá Fiskilæk og langleiðina að Hafnará. Meðan framkvæmdir standa yfir er annarri akrein lokað og umferð stýrt með ljósum. Fólk þarf að bíða í nokkrar mínútur meðan umferð er til skiptis hleypt í sitthvora áttina. Vegagerðin áætlar að…Lesa meira

true

Gera tillögu um að aðalskipulagi verði breytt vegna skotæfingasvæðis

Umhverfis-, skipulags- og landbúnaðarnefnd Borgarbyggðar samþykkti á fundi sínum í gær fyrir sitt leyti tillögu að breytingu á aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022 sem snýr að skotæfingasvæði í landi Hamars. Breytingin á aðalskipulaginu felst í því að breyta landnotkun 16,7 hektara úr landbúnaði í íþróttasvæði þar sem skotæfingasvæðið er hugsað. Einnig þarf að skilgreina nýja reið- og…Lesa meira

true

Ítarleg athugun verður gerð á stöðu framhaldsskóla um land allt

Kristján Þór Júlíusson menntamálaráðherra hefur ákveðið að ekki verði af sameiningu á rekstri Fjölbrautaskólans við Ármúla og Tækniskólans að svo stöddu. Jafnframt hefur hann ákveðið að ráðist verði á greiningu á einstökum landsvæðum eða klösum skóla, sem og greining á einstökum skólum með tilliti til styrkleika þeirra og veikleika. „Að þeirri vinnu lokinni mun ráðherra…Lesa meira

true

Stefnir á að fjórfalda framleiðslu ilmkjarnaolíunnar

Síðastliðinn sunnudag voru liðin tvö ár síðan Hraundís Guðmundsdóttir ilmolíufræðingur hóf framleiðslu á ilmkjarnaolíum á Rauðsgili í Borgarfirði undir vörumerkinu “Hraundís”. Það var því við hæfi að einmitt þann sama dag bærist Hraundísi nýtt 450 lítra eimingartæki til framleiðslunnar. Nýja tækið leysir af hólmi eldra tæki, sem var að sögn Hraundísar orðið allt of lítið.…Lesa meira

true

Stykkishólmur Cocktail Weekend er framundan

Dagana 6.- 8. júlí verður hátíðin Stykkishólmur Cocktail Weekend haldin í Hólminum. Þetta verður í annað sinn sem hátíðin er haldin en hún heppnaðist afar vel í fyrra og má því búast við góðri þátttöku í ár. Hátíðin er skipulögð af tveimur ungum Hólmurum, þeim Jóni Viðari Pálssyni og Ívari Sindra Karvelssyni sem báðir hafa…Lesa meira

true

Brautarmet í karla- og kvennaflokki slegin í Álmanninum

Á Akranesi var í síðustu viku haldin þríþrautin Álmaðurinn. Keppnin er smækkuð útgáfa af Járnmanninum sem margir þekkja. Álmaðurinn er skipulagður af Sjóbaðsfélagi Akraness í samstarfi við Björgunarfélag Akraness og ÍA. Álmaðurinn í ár hófst við Akraneshöll þar sem keppendur hjóluðu upp að Akrafjalli en leiðin er 5,5 kílómetrar, 1,3 km á malbiki og 4,2…Lesa meira

true

Auka leikskólapláss á Akranesi

Skessuhorn greindi frá því í síðustu viku að Akraneskaupstaður ætlar að innrita leikskólabörn oftar á ári en hingað til hefur aðeins verið innritað í leikskóla í ágúst. Skortur hefur verið á plássi hjá bæði dagforeldrum og leikskólum að undanförnu og sagði Þórður Guðjónsson, formaður skóla- og frístundarráðs í samtali við Skessuhorn í síðustu viku, að…Lesa meira