Fréttir

true

Sundlaugin á Varmalandi opnuð á nýjan leik

Sundlaugin á Varmalandi hefur nú verið opnuð fyrir almenning á nýjan leik eftir endurbætur sem þar voru gerðar. Skipt var um dúk á lauginni og öryggismyndavélar settar upp. Á. Óskarsson sá um verkið, Vatnsverk ehf. sá um lagnavinnu en Pétur Oddsson og Guðjón Guðlaugsson sáu um smíðavinnuna. Laugin er nú opin fyrir gesti alla daga…Lesa meira

true

Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins í Grundarfirði

Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins lagðist að bryggju í Grundarfirði síðastliðin fimmtudag. Þar var á ferðinni franska skipið Le Soleal sem var smíðað árið 2012 og fór í jómfrúarferð sína árið eftir. Skipið tekur 264 farþega og er með 139 í áhöfn. Flestir farþeganna stigu beint upp í rútu og fóru í skipulagðar ferðir um Snæfellsnesið en…Lesa meira

true

Séra Hjálmar tekur tímabundið við Staðastaðarprestakalli

Á fréttaveitunni Dreifaranum á sunnanverðu Snæfellsnesi var greint frá því í gær að biskup Íslands hafi tekið ákvörðun um að færa séra Pál Ágúst Ólafsson sóknarprest í Staðastaðarprestakalli til í starfi. Séra Páll mun nú þjóna sem héraðsprestur í Vesturlandsprófastsdæmi frá 1. júlí, eða frá deginum í gær, og láta af starfi sóknarprests í Staðastaðarprestakalli.…Lesa meira

true

Trymbill frá Stóra-Ási efstur í úrslitum A flokks

Fjörðungsmóti hestamanna er nú lokið í Borgarnesi en mótið hefur staðið yfir frá því á miðvikudaginn. Hápunktur mótsins, líkt og á stórmótum í hestaheiminum, var þegar alhliða gæðingum var riðið til úrslita í A flokki. Þar kom, sá og sigraði stóðhesturinn Trymbill frá Stóra-Ási sem Mette Mannseth sýndi. Trymbill er i eigu Mette og Gísla…Lesa meira

true

Arnór Snær semur við ÍA til tveggja ára

Arnór Snær Guðmundsson varnarmaður í úrvalsdeildarliði ÍA í knattspyrnu hefur gert samkomulag við stjórn knattspyrnudeildar um að ljúka tímabilinu með liðinu. Arnór hefur nú skrifað undir samning til næstu tveggja ára og gildir hann út keppnistímabilið 2019. Arnór sem er aðeins 24 ára hefur spilað stórt hlutverk í hjarta varnar Skagaliðsins síðan hann kom frá…Lesa meira

true

Grundfirðingurinn Sigurður Heiðar er rauðhærðasti Íslendingurinn

Margt var um manninn á viðburðum Írskra daga sem haldnir voru á Akranesi um helgina. Fölskyldudagskrá var á Akratorgi þar sem Lalli töframaður stýrði dagskrá og kenndi ýmissa grasa. Þá var árlegur brekkusöngur á Þyrlupallinum við Jaðarsbakka í gærkvöldi og geisifjölmennt Lopapeysuball á bryggjunni fram á nótt. Einn af hápunktum hátíðarinnar er val á Rauðhærðasta…Lesa meira

true

Frestuðu um nokkra daga töku aðstöðugjalds við Hraunfossa

Landeigendur Hraunfossa II í Borgarfirði ásamt framkvæmdaaðilum um gjaldtöku á bílastæðum við fossana hafa tekið ákvörðun um að bíða með gjaldtöku á svæðinu í nokkra daga vegna lagalegrar óvissu um rétt til innheimtunnar. Í tilkynningu frá þeim segir: „Áætlað var að hefja gjaldtökuna klukkan 08.00 á laugardag en vegna vegna mótstöðu Vegagerðarinnar, Umhverfisstofnunar og veitingamanns…Lesa meira

true

Arna frá Skipaskaga langefst í B flokki

Nú er lokið úrslitum í B flokki gæðinga á Fjórðungsmóti vestlenskra hestamanna sem fram fer í Borgarnesi. Mótinu lýkur í dag með stóhestaverðlaunum og úrslitum í A flokki. Úrslit í B flokki urðu þau að Arna frá Skipaskaga varð langefst, en hún var einnig efst eftir forkeppni. Hlaut hún 9,2 í einkunn dómara sem er…Lesa meira

true

Úrslit í tölti 17 ára og yngri á fjórðungsmóti

Guðmar Freyr Magnússonn / Fönix frá Hlíðartúni = 6.61 Karítas Aradóttir / Sómi frá Kálfsstöðum = 6.11 Arna Hrönn Ámundadóttir / Elva frá Miklagarði = 5.83 Heiður Karlsdóttir / Frakkur frá Laugavöllum = 5.72 Eysteinn Tjörvi K. Kristinsson / Þokki frá Litla-MoshvoliLesa meira

true

Niðurstöður A-úrslita í barnaflokki á fjórðungsmóti

Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal / Daníel frá Vatnsleysu 8.69 Þórgunnur Þórarinsdóttir / Grettir frá Saurbæ 8.56 Heiður Karlsdóttir / Hávarður frá Búðarhóli 8.52 Rakel Gígja Ragnarsdóttir / Griffla frá Grafarkoti 8.34 Hafdís Lóa Sigurbjörnsdóttir / Hylling frá Minni-Borg 8.28 Dagbjört Jóna Tryggvadóttir / Dropi frá Hvoli 8.26 Elín Björk Sigurþórsdóttir / Begga frá Litlu-Tungu 2…Lesa meira