Fréttir

true

Niðurstöður A úrslita í Unglingaflokki á fjórðungsmóti

Guðný Rúna Vésteinsdóttir / Þruma frá Hofsstaðaseli 8.73 Karítas Aradóttir / Sómi frá Kálfsstöðum 8.49 Eysteinn Tjörvi K. Kristinsson / Þokki frá Litla-Moshvoli 8.48 Arna Hrönn Ámundadóttir / Elva frá Miklagarði 8.41 Ingunn Ingólfsdóttir / Bálkur frá Dýrfinnustöðum 8.37 Freydís Þóra Bergsdóttir / Ötull frá Narfastöðum 8.13 Inga Dís Víkingsdóttir / Ábóti frá Söðulsholti 8.11…Lesa meira

true

A úrslit ungmenna á fjórðungsmóti hestamanna

Sonja S Sigurgeirsdóttir / Jónas frá Litla-Dal = 8.60 Ásdís Ósk Elvarsdóttir / Koltinna frá Varmalæk = 8.58 Finnbogi Bjarnason / Kyndill frá Ytra-Vallholti = 8.38 Viktoría Eik Elvarsdóttir / Gjöf frá Sjávarborg = 8.38 Rósanna Valdimarsdóttir / Sprækur frá Fitjum = 8.34 Sigrún Rós Helgadóttir / Halla frá Kverná = 8.28 Kathrine Vittrup Andersen…Lesa meira

true

Ljósleiðaralögn hafin í Reykhólahreppi

Nýverið var hafist handa við að ljósleiðaravæða Reykhólahrepp. Mikil undirbúningsvinna hefur farið fram síðustu misseri fyrir fyrsta kafla framkvæmdanna en hann nær frá Miðhúsum og út að Árbæ. Á heimasíðu Reykhólahrepps segir að mikil tilhlökkun sé innan sveitarfélagsins að tengjast þessu nýja kerfi og ekki skemmir fyrir að það gerist í kringum þrjátíu ára afmæli…Lesa meira

true

Ókeypis ritföng í Grunnskóla Snæfellsbæjar

Síðastliðið ár hefur töluvert verið rætt um kostnað sem foreldrar þurfa að leggja út fyrir grunnskólagöngu barna sinna. Bent hefur verið á að í lögum um grunnskóla frá 2008 kemur fram að kennsla í skyldunámi í opinberum grunnskólum skuli vera börnum og foreldrum að kostnaðarlausu. Þá sé óheimilt að krefja foreldra um greiðslu fyrir kennslu,…Lesa meira

true

Trymbill stendur efstur í forkeppni A flokks

Stóhesturinn Trymbill frá Stóra-Ási stendur efstur að lokinni forkeppni í A flokki á Fjórðungsmóti Vesturlands sem nú stendur yfir í Borgarnesi. Er hann með 8,71 í sýningu Mette Mannseth. Fast á hæla hans með 8,68 í einkunn kemur Sproti frá Innri-Skeljabekku sem Jakob Svavar Sigurðsson sýnir og Atlas frá Lýsuhóli er þriðji efstur en hann…Lesa meira

true

Landeigendur hyggjast hefja gjaldtöku á bílastæðum í óþökk allra hlutaðeigandi

Þrír fjárfestar sem eru landeigendur að Hraunsási II í Hálsasveit í Borgarfirði hafa ákveðið að hefja innheimtu aðstöðugjalds á bílastæðum við Hraunfossa frá og með klukkan 8:00 í fyrramálið 1. júlí. Innheimt verður 1000-2000 króna aðstöðugjald af smábílum, sem smám saman hækkar fyrir jepplinga, jeppa og hópferðabíla, upp í 6000 krónur fyrir rútur. Markmiðið með…Lesa meira

true

Apótek Vesturlands er tíu ára í dag

Það var 30. júní árið 2007 sem Apótek Vesturlands tók til starfa á Akranesi og fagnar því tíu ára afmæli sínu í dag. Ólafur Adolfsson, lyfjafræðingur, stofnaði apótekið og rekur það enn. „Reksturinn hefur gengið vel og árin hafa verið fljót að líða. Það hafa orðið breytingar á markaðnum og ýmislegt gerst á þessum tíma.…Lesa meira

true

Búið að sjósetja Viðey RE í Tyrklandi

Ísfisktogarinn Viðey RE var sjósettur í Tyrklandi í síðustu viku. Skipið er það þriðja í röð raðsmíðaverkefna á ísfisktogurum fyrir HB Granda hjá Celiktrans skipasmíðastöðinni í Istanbul. Fyrri tvö skipin eru Engey RE og Akurey AK. Jóhannes Ellert Eiríksson, skipstjóri á Ottó N. Þorlákssyni RE, verður skipstjóri á Viðey.Lesa meira

true

Safe travel dagurinn er í dag

Safe travel dagurinn er átak í forvörnum fyrir ferðamenn og er hluti af verkefninu safetravel.is, sem hefur verið í gangi í allmörg ár. Dagurinn markar einnig upphaf hálendisgæslu björgunarsveitanna sem stendur yfir fram í ágústmánuð, en á þeim tíma standa björgunarsveitir frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg vaktina á þremur stöðum á hálendinu, með alls fjóra hópa og…Lesa meira

true

Írskir dagar voru settir á Akranesi í gær

Setning Írskra daga fór fram í blíðviðri við Akratorg í gær. Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri setti hátíðina ásamt leikskólabörnum og fólst setningin í afhjúpun á verki GAGA Skorrdal sem er tileinkað Írskum dögum en um risastóra indíána hárkollu í fánalitum Írlands var að ræða. Þegar Gerður (GAGA Skorrdal) er spurð út í verkið segir hún:…Lesa meira