Fréttir

true

Fjölmenni í móttökuathöfn Akureyjar

HB Grandi bauð á föstudaginn til móttökuathafnar fyrir Akurey AK, en skipið kom til landsins síðastliðinn þriðjudagsmorgun. Athöfnin fór fram í heimahöfn skipsins á Akranesi um nónbil á föstudaginn og hófst með ávarpi Vilhjálms Vilhjálmssonar forstjóra. Benedikt Jóhannesson, fjármála- og efnahagsráðherra, flutti ávarp og Ólafur Adolfsson, formaður bæjarráðs Akraneskaupstaðar. Ingibjörg Björnsdóttir, ekkja Árna Vilhjálmssonar sem…Lesa meira

true

Stigasöfnun Skagamanna heldur áfram

Skagamenn hófu knattspyrnusumarið 2017 heldur illa og töpuðu fyrstu fjórum leikjunum. Þeir hafa þó verið að rétta úr kútnum að undanförnu og hafa nælt sér í átta stig í síðustu fimm leikjum. Um helgina lék ÍA í Garðabæ gegn Stjörnunni í níundu umferð Pepsideildar karla. Skagamenn nældu sér í mikilvægt stig í fallbaráttunni með 2-2…Lesa meira

true

Ekki tókst að selja eignasafnið í einu lagi

Ekki bárust tilboð í eignir á Bifröst í framhaldi af því að fasteignir og hótelrekstur var boðinn til sölu síðla vetrar í einu lagi. Fréttablaðið greinir frá. Samkvæmt upplýsingum blaðsins eru þó einhverjar þreifingar í gangi um möguleg kaup á hluta eigna á Bifröst, en ekki talið að þau mál skýrist fyrr en í byrjun…Lesa meira

true

Makríllinn mættur í Breiðafjörðinn

Það voru margir sem voru samankomnir á bryggjusporðinum í Ólafsvík seinni partinn í gær þegar spurðist út að makríllinn væri mættur. Arnór Ísfjörð Guðmundsson, sem var að veiða ásamt börnum sínum, sagði í samtali við Skessuhorn að makríllinn hafi komið síðdegis. „Það er bara mok hér,“ sagði Arnór og bætti við að það væri ekki…Lesa meira

true

Hótel Bifröst fær Vakann fyrst vestlenskra hótela

Hótel Bifröst í Borgarfirði fékk í síðustu viku gæðaviðurkenningu Vakans. Flokkast hótelið nú sem þriggja stjörnu hótel samkvæmt viðurkenndum gæðaviðmiðum Vakans. Hótel Bifröst er jafnframt fyrst vestlenskra hótela til að ná þessari vottun. Hótelið hóf umsóknarferlið hjá Vakanum árið 2015. „Með þátttöku í Vakanum kristallast vilji okkar til að veita gestum okkar framúrskarandi þjónustu sem…Lesa meira

true

Ein besta byrjun í Grímsá til fjölda ára

„Þetta er meiriháttar byrjun en núna er komnir á milli 80 og 90 laxar á land vítt og breytt úr ánni. Byrjunin er ein sú besta í Grímsá til fjölda ára,“ sagði Jón Þór Júlíusson við Grímsá í Borgarfirði en veiðin fór verulega vel af stað þetta sumarið. „Á opnunardaginn í síðustu viku veiddust um…Lesa meira

true

Leki kom upp í báti í Rifshöfn

Í morgun var björgunarsveitin Lífsbjörg í Snæfellsbæ kölluð út vegna leka sem komið hafði upp í Sæljósi GK. Báturinn var þá bundinn við bryggju í Rifi. Leki kom síðast upp í bátnum 16. mars á þessu ári, en þá var hann á veiðum sjö sjómílur frá landi og var einn skipsverji þá um borð. Greiðlega…Lesa meira

true

Norðurálsmótið er farið af stað

Nú í hádeginu var Norðurálsmótið sett á Akranesi, en því lýkur á sunnudaginn. Klukkan rétt rúmlega ellefu hófst skrúðganga frá ráðhúsinu við Stillholt sem öll liðin á mótinu tóku þátt í. Fyrir göngunni fóru nokkrir nemendur í Tónlistarskóla Akraness með trommuslætti. Mikil gleði og eftirvænting var hjá bæði knattspyrnumönnunum og foreldrum þeirra fyrir helginni. Skrúðgangan…Lesa meira

true

Herskipalest sigldi inn á Hvalfjörð

Flokkur herskipa með varðskipið Týr í broddi fylkingar auk norsks kafbáts sigldu í halarófu inn Hvalfjörð í morgun og að gömlu herstöðinni í Hvítanesi, við sunnanverðan fjörðinn. Auk sjö skipa var þyrla Landhelgisgæslunnar á sveimi og þyrla af einu herskipanna. Íbúum á höfuðborgarsvæðinu og Akranesi var mörgum talsvert brugðið þegar flotinn sigldi í halarófu inn…Lesa meira

true

Ný upplýsingaskilti um lífríkið á Langasandi

Við göngustíginn meðfram Langasandi á Akranesi er búið að koma fyrir upplýsingandi skiltum um lífríkið við ströndina. Það er Akraneskaupstaður sem kostar gerð skiltanna en framleiðandi þeirra er Jóhann Ísberg. Teikningar er eftir Jón Baldur Hlíðberg og sýna þær fugla og fiska, krabba og gróður sem vænta má að finna á göngu um sandinn. Að…Lesa meira