Fréttir

true

Fornbílaskoðun hjá Frumherja í Borgarnesi í dag

Sérstök fornbílaskoðun verður hjá Frumherja í Borgarnesi í dag, þriðjudaginn 6. júní frá kl. 15 til kl. 18. Skoðunarverð er kr. 3.100 krónur fyrir félaga í Fornbílafjelagi Borgarfjarðar. „Þeir fornbílaeigendur sem eiga bíla á Samgöngusafninu bera sjálfir ábyrgð á því að færa sína bíla til skoðunar eða að fela það öðrum. Skráðir fornbílar skulu færðir…Lesa meira

true

Aukinn áhugi á læknisfræði og sjúkraþjálfun

Áhugi á að þreyta inntökupróf í læknisfræði og sjúkraþjálfun við Háskóla Íslands hefur aukist mikið frá því í fyrra en 367 nemendur hafa skráð sig í prófið sem samsvarar 23% aukningu. Inntökuprófið fer fram í þessari viku, dagana 8. og 9. júní. Alls munu 311 manns þreyta inntökupróf í læknisfræði og 56 inntökupróf í sjúkraþjálfun.…Lesa meira

true

Undirbjuggu víðtæka leit að skemmtibát

Björgunarskip og bátar Landsbjargar frá Akranesi og af höfuðborgarsvæðinu voru kallaðar út um hálf fjögur leytið í dag til leitar að skemmtibáti sem saknað var. Sá kom ekki fram á tilkynningaskyldu og því var hafin leit. Í tilkynningu frá Landsbjörgu kemur fram að ekki er vitað hversu margir voru um borð í bátnum en honum…Lesa meira

true

Málar Bowie á húsgafl á Akranesi

Björn Lúðvíksson á Akranesi er einn þeirra sem finnur sér skemmtileg og öðruvísi verkefni. Margir muna steina sem hann málaði í öllum regnbogans fánalitum og kom fyrir á Breiðinni gestum þar til ánægju. Nú er Bjössi Lú kominn með annað verkefni. Hann er nú að mála á gafl hússins við Kirkjubraut 8, gömlu lögreglustöðina, myndir…Lesa meira

true

Hryssa fældist frá eiganda sínum

Lögreglan á Vesturlandi biður vegfarendur um Borgarfjörð að láta vita ef þeir verða varir við brúna, sjö vetra hryssu. Hún fældist frá eiganda sínum í Lundarreykjadal, við afleggjarann að Skorradal. Hryssan er örmerkt og var með beisli þegar hún slapp. „Þeir sem geta veitt upplýsingar um hvar hryssuna er að finna vinsamlega hafa samband við…Lesa meira

true

Tafir á fjármögnun fresta byggingu sólarkísilverksmiðju á Grundartanga

Silicor Materials hefur ákveðið að hægja á verkefnisþróunarvinnu vegna fyrirhugaðrar sólarkísilverksmiðju á Grundartanga. Tímaáætlun mun því breytast en vinna við verksmiðjuna gæti hafist á síðari hluta næsta árs,“ segir Davíð Stefánsson talsmaður Silicor Materials. Ástæður þessarar ákvörðunar eru nokkrar, að sögn Davíðs, en sú helsta eru tafir á fjármögnun annars áfanga verkefnisins. „Miklar kostnaðarhækkanir á…Lesa meira

true

Píratar brýna sverðin fyrir komandi kosningar

Sveitastjórnasmiðja Pírata fór fram á Akureyri um Hvítasunnuhelgina. Markmið smiðjunnar er að gefa Pírötum um allt land tækifæri til að hittast og hefja stefnumótunarvinnu fyrir næstu sveitastjórnarkosningar. „Það er stórkostlegt að sjá hvað það er mikill áhugi meðal félagsmanna af öllu landinu. Þegar við hófum undirbúninginn reiknuðum við með því að hingað kæmu nokkrir fulltrúar…Lesa meira

true

Ágúst með tvo verðlaunapeninga frá San Marino

Ágúst Júlíusson sundmaður frá Akranesi vann sér bæði inn silfur- og bronsverðlaun á Smáþjóðaleikunum sem fram fóru í San Marino í síðustu viku. Ágúst synti á miðvikudag 100m flugsund og hafnaði í þriðja sæti á tímanum 55.68. Þá synti hann með boðsundssveit karla í 4x100m fjórsundi á fimmtudaginn. Íslensku strákarnir gerðu sér lítið fyrir og…Lesa meira

true

Stelpugolf í dag á Akranesi

Nú á vormánuðum var Birgir Leifur Hafþórsson ráðinn íþróttastjóri hjá Golfklúbbnum Leyni á Akranesi. Birgir Leifur er fæddur og uppalinn Skagamaður og spilaði undir merkjum klúbbsins allt til ársins 1997. Hann þekkir því vel til en þessi reynslumikli kylfingur starfar einnig sem atvinnukylfingur samhliða því að vera íþróttastjóri Leynis. Nú er Birgir Leifur staddur í…Lesa meira

true

Gylfi Þór Sigurðsson landaði fyrsta laxi sumarsins

Veiði hófst í Norðurá í Borgarfirði í gærmorgun og þar með laxveiðisumarið. Í fyrrsumar voru stórsöngvarar sem hófu veiðina í Norðurá en nú var komið að knattspyrnuköppum, og þeim ekki af lakara taginu. „Gylfi Þór Sigurðsson var að landa sínum öðrum laxi rétt áðan. Báðir flottar fiskar, en þessi síðari var 92 sentimetra,“ sagði Einar…Lesa meira