Fréttir

true

Fjarðabyggð bar sigurorð af Akranesi í úrslitaþætti

Lokaviðureign í spurningaþættinum Útsvari fór fram á föstudaginn í Ríkissjónvarpinu.  Þar áttust við Fjarðabyggð og Akranes. Leikar fór þannig að Fjarðabyggð sigraði nokkuð örugglega, með 65 stigum gegn 38. Viðureignin var jöfn framan af en í orðaruglinu fór lið Fjarðabyggðar fram úr og hélt forystunni nokkuð örugglega eftir það. Engu að síður mega Skagamenn vera…Lesa meira

true

119 nýstúdentar frá þremur framhaldsskólum

Fyrir og um helgina voru útskriftarathafnir í þremur framhaldsskólum á Vesturlandi; Fjölbrautaskóla Vesturlands, Menntaskóla Borgarfjarðar og Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Alls voru 119 nemendur brautskráðir frá skólunum. Auk þess er talsverður hópur nemenda af Vesturlandi sem stundar nám í skólum utan landshlutans. Skessuhorn óskar útskriftarnemendum til hamingju, en nánar verður sagt frá útskriftum í næsta Skessuhorni.Lesa meira

true

Samþykktu ljósleiðara samhliða rafstreng

Á fundi í byggðarráði Borgarbyggðar í síðustu viku var lagt fram minnisblað og kort frá Guðmundi Daníelssyni verkefnisstjóra um lagningu ljósleiðararöra í Reykholtsdal í samvinnu við RARIK sem nú vinnur að þriggja fasa rafvæðingu á svæðinu. Um er að ræða 15 km. langa leið. Kostnaður við verkið er áætlaður 5,2 milljónir króna. Byggðarráð samþykkti að…Lesa meira

true

Leigja Lyngbrekku áfram

Leikdeild Umf. Skallagríms hefur farið þess á leit við Borgarbyggð að samningur um leigu á félagsheimilinu Lyngbrekku verði framlengdur. Jafnframt verði veitt leyfi til að fara í ákveðna tiltekt og hreinsun til að nýta húspláss betur. Einnig var bent á að nauðsynlegar viðhaldsframkvæmdir þyrftu að fara fram á húsinu. Á fundi byggðarráðs í síðustu viku…Lesa meira

true

Endurbótum að ljúka á Farfuglaheimilinu í Borgarnesi

Miklar endurbætur hafa að undanförnu staðið yfir við Farfuglaheimilið við Borgarbraut 9-13 í Borgarnesi. Innandyra lýkur framkvæmdum 1. júní en þá er eftir að mála og ganga frá utandyra. Gestamóttaka hefur nú verið endurnýjuð og einnig gestaeldhúsið. Öll 21 herbergið á heimilinu eru nú með nýjum húsgögnum. Eva Hlín Alfreðsdóttir er móttökustjóri á Farfuglaheimilinu en…Lesa meira

true

Akranes keppir til úrslita í kvöld

Akranes mætir í kvöld liði Fjarðabyggðar í úrslitaþætti Útsvars, spurningakeppni sveitarfélaganna sem sýnd er á RÚV. Skagamenn sigruðu Hafnfirðinga 65-46 í undanúrslitum en Fjarðabyggð bar sigurorð af liði Grindavíkur með 63 stigum gegn 39. Lið Akraness skipa þau Örn Arnarson, Vilborg Þórunn Guðbjartsdóttir og Gerður Jóhanna Jóhannsdóttir. Úrslitaviðureignin hefst í beinni útsendingu kl. 20:05 í kvöld.…Lesa meira

true

Bílaverkstæði Badda verður opnað á Akranesi

„Ég er búinn að ganga með þennan draum í maganum í mörg ár og í vetur ákvað ég að nú væri kominn tími til að láta verða af þessu,“ segir Bjarni Rúnar Jónsson í samtali við Skessuhorn. Hann hyggst opna Bílaverkstæði Badda á Akranesi í byrjun júní. Á Bílaverkstæði Badda mun hann sinna viðgerðum á…Lesa meira

true

Telja ráðlegt að skola seti úr farvegi Andakílsár

Sérfræðingar Hafrannsóknastofnunar í veiðimálum telja ráðlegt að reyna að hreinsa eða skola seti úr farvegi Andakílsár til að draga úr alvarlegum áhrifum þess þegar miklum aur var hleypt úr botni inntakslóns Andakílsárvirkjunar niður í farveg árinnar dagana 15.-18. maí. Þau mistök voru gerð að vakta ekki rennsli úr inntakslóni eftir að botnrás í stíflu var…Lesa meira

true

SS setur Hammara á markað

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra heimsótti kjötvinnslu SS á Hvolvelli í vikunni og kynnti sér viðamikla starfsemi fyrirtækisins. „Við kjötiðnað SS eru unnin um 170 ársverk. Starfsemi SS á Hvolsvelli auk sláturstöðvar SS á Selfossi og starfsemi dótturfélags SS, Reykjagarðs hf, víða um Suðurland, gerir SS að stærsta atvinnuveitanda Suðurlands,“ segir í tilkynningu frá…Lesa meira

true

Engey gæti haldið til veiða í næstu viku

Nú styttist í að Friðleifur Einarsson og áhöfn hans á Ásbirni RE komi í land og flytji sig um borð í Engey RE, nýjasta skipið í flota HB Granda. „Vonandi verður búið að ganga frá lestarkerfinu og millidekkinu í næstu viku. Eftir það munum við taka ný veiðarfæri um borð en það tekur okkur að…Lesa meira